Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Kólumbíumenn sigruðu Úsbeka

Read Full Article →

Kólumbía vann Úsbekistan 3-1 í leik liðanna í K-riðli sem lauk á fjórða tímanum í nótt. Líklega bjuggust flestir við yfirburðasigri Kólumbíumanna í leiknum sem var æsispennandi strax frá byrjun. Fyrsta markið kom þó ekki fyrr en á 40. mínútu þegar Daniel Munoz skoraði fyrir Kólumbíu. Úsbekar áttu svo mjög óvænta laumu um tuttugu mínútum síðar þegar Abbosbek Fayzullaev skoraði glæsilegt mark Úsbeka. Luis Dias launaði þó Úsbekum lambið gráa aðeins fimm mínútum síðar. Jaminton Campaz gulltryggði Kólumbíu svo sigurinn með þriðja marki liðsins í uppbótatíma leiksins á 99. mínútu. Þetta er í sjöunda sinn sem Kólumbía fer með sigur af hólmi í fyrsta leik sínum á heimsmeistaramóti í fótbolta en landið hefur aðeins einu sinni tapað sínum fyrsta leik á heimsmeistaramóti. Leikvöllurinn í Mexíkóborg var þéttsetinn upp í rjáfur og tæplega 81.000 manns mættu á völlinn.

Share this article