Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Loka öllum kaffi­húsum Star­bucks í Suður-Kóreu

Read Full Article →

Til stendur að loka hverju einasta kaffihúsi Starbucks í Suður-Kóreu á mánudaginn í næstu viku í um þrjár klukkustundir til að veita starfsfólki sögukennslu. Þetta verður í fyrsta sinn sem Starbucks Korea lokar öllum verslunum sínum síðan keðjan opnaði þar árið 1999. Á vef BBC segir að ástæðan sé vegna auglýsingaherferðar fyrir endurnýjanlega bolla sem var harðlega gagnrýnd í landinu. Auglýsingaherferðin bar heitið Tank Day og hófst á minningardegi Gwangju-uppreisnanna sem áttu sér stað dagana 18. til 27. maí 1980. Suður-Kórea var á þeim tíma undir herforingjastjórn og markaði fjöldahreyfingin mikil tímamót í lýðræðisbaráttu landsins. Sjá einnig Starbucks í Suður-Kóreu ritskoðar nöfn Hátt í 165 íbúar létu lífið eftir að herforingjastjórnin beitti hernum til að bæla niður mótmælin. Raunveruleg tala hinna látnu er hins vegar talin vera mun hærri. Suðurkóreskir hermenn voru sendir til Gwangju-borgar þar sem þeir beittu miklu ofbeldi. Drykkjarílátin sem Starbucks auglýsti voru sögð vera „rúmgóð“ og innihélt auglýsingin einnig setninguna „tak on the table!“ en „tak“ var orðið sem lögreglan notaði til að greina frá dauða námsmannsins Park Jong-chul, sem lést í haldi lögreglu í seinni fjöldahreyfingu Suður-Kóreumanna árið 1987, ári fyrir endalok herforingjastjórnarinnar í landinu. Gagnrýnin á auglýsingaherferðina var það mikil að Lee Jae Myung, forseti Suður-Kóreu, lýsti meira að segja yfir reiði sinni á samfélagsmiðlum. Mótmæli voru jafnframt haldin fyrir utan verslanir Starbucks og varð keðjan fyrir töluverðu sölutapi í Suður-Kóreu vegna sniðgöngu.

Share this article