Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Óhagnaðardrifið kaffihús

Read Full Article →

Hrafnarnir lásu um það að þekkt nöfn úr íslensku athafna- og viðskiptalífi hefðu fest kaup á húsnæði verslunar­innar Kjötborgar við Ásvallagötu vestur í bæ. Í þessum hópi eru meðal annars Ragnar Jónasson rithöfundur, Sigurður Hannes­son, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðar­ins, athafnahjónin Erla Björnsdóttir og Hálfdán Steinþórsson, Hanna Birna Kristjánsdóttir og Pálmi Haraldsson fjárfestir svo einhverjir séu nefndir. Áform er að reka kaffihús í húsnæðinu og hermir Morgunblaðið að starfsemin verði enginn „gróðabissness“ heldur meira í átt við „samfélagsþjónustu“. Með öðrum orðum er fyrsta óhagnaðardrifna kaffihúsið að fara að líta dagsins ljós. Miðað við hvernig önnur óhagnaðardrifin starfsemi á borð við sölu á leiguhúsnæði hefur breiðst út á undanförnum árum telja hrafnarnir einsýnt að brátt verði óhagnaðardrifin kaffihús á nánast hverju götuhorni í borginni og rekstur þeirra fjármagnaður með niðurgreiddum lánum frá ríkinu í gegnum Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Huginn og Muninn er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í blaðinu sem kom út 10. júní 2026.

Share this article