- What: Football match details
- Impact: Sports event information
Vestramenn unnu sér sæti í forkeppni Evrópudeildarinnar í fótbolta þegar liðið varð bikarmeistari í fyrra. Vestri, sem féll í Lengjudeildina eftir síðustu leiktíð, mun mæta aserska liðinu Qarabag í fyrstu umferð undankeppni Evrópudeildarinnar. Qarabag lauk keppi í öðru sæti asersku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili. Þá komst liðið í umspil um sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar en tapaði þar fyrir Newcastle. Liðin mætast fyrst ytra þann 9. júlí og svo á Þróttarvelli þann 16. júlí. Víkingar fá ungversku meistarana Þá er einnig komið í ljós hvaða liði Íslandsmeistarar Víkings mætir í undankeppni Meistaradeildar Evrópu. Andstæðingurinn er Györ sem varð ungverskur meistari á síðasta tímabili. Víkingar byrja á heimavelli 7. eða 8. júlí og svo kemur ungverska liðið hingað til lands viku síðar.