- What: Box office performance of Star Wars movies
- Impact: No security relevance
Það verður að teljast óvanalegt að kvikmynd í Stjörnustríðsbálknum gangi illa í kvikmyndahúsum. Af þeim 50 kvikmyndum sem hafa verið söluhæstar í bíó eru fimm Stjörnustríðsmyndir, eða 10%. Upphaflega myndin var frumsýnd 1977 og varð hún söluhæsta kvikmynd allra tíma árið eftir. Fyrsta kvikmyndin í forþríleik Stjörnustríðs, The Phantom Menace , varð síðan næstsöluhæsta kvikmynd allra tíma árið 1999 á eftir Titanic . Þetta er ákveðið þema en fyrsta kvikmyndin í framhaldsþríleiknum, The Force Awakens , varð svo þriðja söluhæsta kvikmynd allra tíma árið 2015. Hún aflaði meira en tveggja milljarða bandaríkjadala í miðasölu, um 250 milljarða íslenskra króna. The Force Awakens er enn í dag söluhæsta kvikmyndin í Norður-Ameríku. Þar aflaði hún um 940 milljónir dala. Hún er í dag sjötta söluhæsta kvikmyndin á heimsvísu og sú tekjuhæsta úr bálki Stjörnustríðs. Allt útlit er fyrir að nýjasta kvikmyndin í seríunni, Stjörnustríð: Mandalorian og Grogu, nái hins vegar ekki einu sinni að skila hagnaði í kvikmyndahúsum. Halar inn tugi milljarða en þó gæti orðið tap Stjörnustríð: Mandalorian og Grogu var frumsýnd í kringum 21. maí. Kvikmyndin halaði inn 165 milljónir bandaríkjadala frumsýningarhelgina – sem er fínn árangur en lélegur fyrir Stjörnustríð. Til samanburðar komu um 530 milljónir dala í kassann helgina sem The Force Awakens var frumsýnd sem þá var met. Aðsókn á Mandalorian og Grogu dróst saman um heil 70% fyrir aðra helgina í sýningu, þá komu inn um 53 milljónir bandaríkjadala. Síðan þá hafa sífellt færri farið og séð myndina. Síðustu helgi sat Stjörnustríð í sjötta sæti yfir söluhæstu kvikmyndirnar í bíó, með aðeins tæpar 10 milljónir bandaríkjadala í miðasölu. Kvikmyndin hefur í dag halað inn um 300 milljónir bandaríkjadala, um 37 milljarða íslenskra króna. Þetta kunna að hljóma eins og miklir peningar en óvíst er hvort kvikmyndin nái að koma út á núlli. Framleiðslufyrirtækin Lucasfilm og Disney gætu jafnvel tapað á myndinni. Gjarnan er talað um að tekjur af miðasölu á Hollywood-kvikmyndir þurfi að vera nálægt tvöfaldri framleiðsluupphæð í miðasölu til að þær komi út á sléttu. Þá er auglýsingakostnaður tekinn með í reikninginn og að hluti tekna af sölu á sýningar verður eftir hjá bíóhúsunum. Áætlað er að framleiðslukostnaður við Stjörnustríð: Mandalorian og Grogu sé á bilinu 250-300 milljónir bandaríkjadala. Það þýðir að það verða að koma um 600 milljónir dala fyrir kvikmyndina til að hún komi út á núlli. Það eru um 74 milljarðar króna og því ljóst að hún yrði að ná tvöfalt meiri miðasölu áður en sýningum verður hætt. Það verður að teljast býsna hæpið að það takist, eiginlega ómögulegt að mati þess sem hér skrifar. Ungir kvikmyndagerðarmenn gera betur en gömlu kvikmyndaverin Það er ekki aðeins merkilegt að Stjörnustríði gangi illa í miðasölu, það er líka athyglisvert að sjá hvaða kvikmyndum vegnar vel. Um þessar mundir njóta kvikmyndirnar Baka til (Backrooms) og Þráhyggja (Obsession) töluverðra vinsælda í bíó. Um síðustu helgi voru tekjur af hvorri mynd 25 milljónir bandaríkjadala þrátt fyrir að þær hafi verið í sýningu í nokkrar vikur, og í vikunni á bilinu 135-152 milljónir alls. Þráhyggja er söluhærri. Myndirnar kostuðu þó aðeins brot af því sem Stjörnustríð kostaði í framleiðslu. Baka til kostaði um 10 milljónir dala og áætlað er að Þráhyggja hafi aðeins kostað um 750 þúsund. Ljóst er að báðar myndirnar eru orðnar gríðarlega arðbærar en arðsemin er sérstaklega athyglisverð í ljósi þess að báðar eru þær eftir leikstjóra sem eru að stíga sín fyrstu skref í Hollywood. Curry Barker, leikstjóri Þráhyggju , er 26 ára og Kane Parsons sem leikstýrði Baka til er ekki nema tvítugur. Báðir hófu ferilinn á YouTube. Baka til og Þráhyggja eru ekki fyrstu kvikmyndirnar eftir kvikmyndagerðarmenn með tengingu við samfélagsmiðla til að njóta vinsælda í bíó. Kvikmyndirnar Talaðu við mig (Talk to me) og Færðu mér hana (Bring her back) eftir Philippou-bræður og Járnlunga (Iron Lung) eftir Mark „Markiplier“ Fischbach hafa til dæmis einnig notið töluverðra vinsælda í bíó, þrátt fyrir að hafa kostað lítið í framleiðslu og vera eftir leikstjóra sem litla sem enga reynslu hafa af því að leikstýra kvikmyndum. Það vill svo til að allar þessar kvikmyndir má flokka til hryllingsmynda. Það má kannski velta því upp hvort vinsældir þeirra séu merki um breytingar í kvikmyndasókn; að stóru kvikmyndaverin í Hollywood geti ekki lengur reitt sig á þekkt vörumerki og persónur. Þróunin gæti verið vísir að því að kvikmyndaverin fari að treysta kvikmyndagerðarmönnum í auknum mæli og leggja meiri áherslu á höfundadrifnar kvikmyndir. Sambærileg þróun hófst í Hollywood á sjöunda áratug síðustu aldar og gat af sér fjölda áhugaverðra kvikmyndagerðarmanna, til dæmis George Lucas, sjálfan skapara Stjörnustríðs. Leikfangasala vegur á móti tapi í kvikmyndahúsum Kvikmynd eins og Stjörnustríð, sem höfðar til fólks á öllum aldri, skilar kvikmyndaverum einnig tekjum með sölu á ýmsum öðrum varningi, til dæmis leikföngum. Stjörnustríð er að vísu ekki nýtt af nálinni og Mandalorian og Grogu eru það ekki heldur. Persónurnar hafa notið töluverðra vinsælda síðan þær voru kynntar til sögunnar árið 2019. Í ljósi þess er erfitt að leggja mat á hvort útgáfa nýju kvikmyndarinnar eigi eftir að kynda undir sölu á varningi eins og Stjörnustríðsmyndir gera alla jafna – svo getur farið að Stjörnustríð: Mandalorian og Grogu verði fyrsta stóra feilsporið í sögu Lucasfilm.