Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Piltur sigrar Hollywood

Read Full Article →

Hryllingsmyndin Backrooms, nýjasta kvikmynd framleiðslufyrirtækisins A24, hefur hlotið frábærar viðtökur og var söluhæsta kvikmyndin í bíóhúsum yfir síðustu helgi. Það er þrátt fyrir að ný kvikmynd um Stjörnustríð hafi verið á sinni annarri helgi í bíó. Kvikmyndin sópaði að sér 118 milljónum bandaríkjadala á heimsvísu. Það er þreföldun á fyrra aðsóknarmeti A24 um opnunarhelgi en Civil War frá 2024 átti áður metið, 25,5 milljónir dala. Þá er þetta stærsta opnun hryllingsmyndar sem byggir á nýrri sögu en metið átti Us sem halaði inn 87 milljónum dala á opnunarhelgi sinni árið 2019. En rúsínan í pylsuendanum hlýtur að vera þessi: Leikstjóri og annar handritshöfunda Backrooms, Kane Parsons, er ekki nema 20 ára gamall. Byrjaði á YouTube Parsons er yngsti leikstjórinn til að eiga vinsælustu kvikmyndina í bíóhúsum. Hann er raunar allnokkru yngri en fyrri methafi. Það var Josh Trank, þá 27 ára, sem leikstýrði kvikmyndinni Chronicle sem kom út árið 2012 og halaði inn 22 milljónum dala á opnunarhelgi sinni. Trank þótti um nokkurra ára skeið mjög efnilegur leikstjóri en hann hefur þó aðeins gert tvær kvikmyndir síðan og hlutu þær báðar heldur dræmar undirtektir. Leikstjórinn tvítugi sem nú trónir á toppi miðasölu víða um veröld hóf feril sinn á YouTube. Þar gengur hann undir nafninu Kane Pixels en hann stofnaði aðganginn árið 2015. Parsons hefur 3,2 milljónir fylgjenda á YouTube, sem er ekki svo mikið í hinu stóra samhengi, og um 350 milljónir áhorfa á myndbönd sín í heild. Hryllingsmyndin Backrooms byggir einmitt á vinsælli myndbandaseríu hans á miðlinum. Serían, sem einnig heitir Backrooms, fjallar um millibilsrými (e. liminal spaces) sem eru sérkennileg og virðast engin mörk eiga. Kvikmyndin fylgir eiganda húsgagnaverslunar, leiknum af Chiwetel Ejiofor, sem finnur óvænt leið inn í slíkt rými. Þegar húsgagnasalinn hverfur fer sálfræðingur hans, leikinn af Renate Reinsve, í leit að honum. Það má til gamans nefna að Reinsve var tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir leik í aðalhlutverki í flokki kvenna í ár. Það var fyrir frammistöðu hennar í kvikmyndinni Affeksjonsverdi sem hefur fengið heitið Tilfinningalegt gildi á íslensku. Það vill svo til að Parsons var í fyrsta sinn á ferli sínum að leikstýra „alvöru leikurum“, ekki áhugaleikurum, við gerð Backrooms. Þykir hæfileikaríkur fyrir aldur Parsons er greinilega nokkuð fjölhæfur ungur maður. Á YouTube lýsir hann sér sem leikstjóra og tölvutæknibrellusmið (e. visual effects artist). Við gerð Backrooms var Parsons í fjölda hlutverka: leikstjóri, annar tveggja handritshöfunda ásamt Will Soodik, tónskáld og yfirframleiðandi. James Wan, einn áhrifamesti leikstjóri hryllingsmynda á þessari öld (Saw, Conjuring, Insidious), er framleiðandi Backrooms. Wan hafði samband við Parsons að fyrra bragði en hafði þá ekki hugmynd um hve ungur kvikmyndagerðarmaðurinn var – aðeins 16 ára. Reynslumeiri leikstjórinn hafði þá komið auga á eitthvað í myndskeiðum hins unga Parsons sem hann var handviss um að yrði að koma á hvíta tjaldið. „Það var eitthvað einstakt við þetta. Þetta var öðruvísi,“ hefur Variety eftir Wan. „Það var einhver stemning og hugmynd í þessu sem hefur ekki sést áður.“ YouTube-gaurar gera það gott Framleiðsla Backrooms kostaði um 10 milljónir bandaríkjadala, jafnvirði um 1,2 milljarða króna. Gjarnan er talað um að Hollywood-kvikmyndir þurfi að þéna um tvöfalda framleiðsluupphæð í miðasölu til að koma út á núlli. Þá er tekinn með í reikninginn auglýsingakostnaður og að hluti af tekjum fyrir sölu á sýningar verður eftir hjá bíóhúsunum. Með þetta allt í huga er ljóst að Backrooms er nú þegar orðin gífurlega arðbær kvikmynd. Backrooms er ekki eina kvikmyndin sem er að gera það gott um þessar mundir og er eftir ungan kvikmyndagerðarmann sem ruddi sér til rúms á YouTube. Kvikmyndin Obsession er einnig í sýningu en leikstjóri, handritshöfundur og klippari hennar er Curry Barker. Sá hefur verið iðinn við að framleiða sketsagrín á bæði YouTube og TikTok. Obsession hefur nú þénað 150 milljónir bandaríkjadala á heimsvísu. Kvikmyndinni er lýst sem sálfræðilegum trylli. Bæði Backrooms og Obsession þykja hafa gert betur en Stjörnustríð: Mandalorian og Grogu um helgina. Stjörnustríðsmyndir hafa frá upphafi verið með söluhæstu kvikmyndum allra tíma í bíóhúsum. Yfir helgina þénaði Backrooms sem áður segir 188 milljónir bandaríkjadala á heimsvísu. Obsession var frumsýnd 15. maí erlendis en hún þénaði 26,4 milljónir dala yfir síðustu helgi, sem er 10% meira en hún gerði helgina á undan. Hún er því að sækja í sig veðrið. Stjörnustríð: Mandalorian og Grogu halaði inn 165 milljónum bandaríkjadala á opnunarhelgi sinni, en hún var frumsýnd þann 21. maí. Aðsókn á myndina dróst síðan saman um heil 70% á milli helga og þénaði hún um 53 milljónir bandaríkjadala á annarri helgi sinni í sýningu. Áætlað hefur verið að framleiðslukostnaður Stjörnustríð: Mandalorian og Grogu sé á bilinu 250 til 300 milljónir bandaríkjadala. Það þýðir að kvikmyndin verður að þéna um 600 milljónir dala til að koma út á núlli. Það eru hér um bil 74 milljarðar króna. Sem stendur hefur nýja Stjörnustríðsmyndin þénað um 246 milljónir bandaríkjadala á heimsvísu. Hagnaður fyrir kvikmynd sem þessa felst þó að miklu leyti í sölu á öðrum varningi og hefur önnur aðalpersóna hennar, Grogu sem einnig er þekktur sem Baby Yoda, notið gríðarlegra vinsælda. Hann er eins konar gullnáma fyrir Lucasfilm. Grogu hefur að vísu verið það lengi vel enda hefur hann verið hluti af heimi Stjörnustríðs frá árinu 2019. Grein þessi byggir að hluta á nýlegri umfjöllun Variety um Backrooms.

Share this article