Innlent | Morgunblaðið | 13.6.2026 | 8:00 Aðsend grein: Hólastaður á uppboði ríkisstjórnar Jón Bjarnason. Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Hólaskóli – Háskólinn á Hólum – verður lagður niður hinn fyrsta júlí næstkomandi, sömuleiðis rektorsstaðan á Hólum, samkvæmt samþykkt Alþingis 2. júní sl. Skólinn verður þá sviptur nafni sínu og kennitölu. Sjálfstæðu skólahaldi á Hólum í Hjaltadal, 1106-2026, er þá lokið í bili a.m.k., hvað sem tekur við. Sumir fagna og líta á þetta sem framþróun, aðrir draga í efa og eru sorgmæddir fyrir hönd Hóla og sértæks öflugs náms á landsbyggðinni. Fram á síðustu ár hefur þótt eðlilegt og sjálfsagt og reyndar bundið í lög að æðsti yfirmaður Hólaskóla byggi á Hólum sem staðarhaldari og bóndi á Hólajörðinni, einni af landstærstu jörðum landsins. Verða nú Hólar munaðarlausir á ný Þessi samtvinnuðu bönd skóla og staðar Hóla í Hjaltadal, sem stóðu undir velgengni hans, hafa trosnað á síðustu árum og nú endanlega slitið á. Hólajörðin, skólabúið ásamt hinum veglegu skólahúsum teiknuðum af höfuðarkitektum þjóðarinnar, stendur eftir munaðarlaus af hálfu stjórnvalda. Húsin verða að óbreyttu boðin upp og seld í bútum til framfærslu ríkissjóðs. Háskóli Íslands yfirtekur það til sín sem lifir af náminu og hann sækist eftir og reynir að stela „Hóla“-nafninu og stofna sem deild í „Háskóla Íslands“ á Sauðárkróki. Saga Hóla í Hjaltadal endurtekur sig Nú er það ekki danski kóngurinn heldur ríkisstjórn Íslands sem setur Hóla á uppboð. Sagan frá aldamótaárinu 1800 endurtekur sig þegar danski kóngurinn bauð Hólastað upp í bútum eftir að staðarhús höfðu drabbast niður í hörmungum móðuharðinda. Staðarhúsin á Hólum voru þá rifin og timbrið úr hinni 500 ára Auðunarstofu boðið upp og selt til framfærslu nýs eiganda. Dómkirkjan á Hólum var þó aldrei seld og seinna kveðið upp úr með að hún ætti sig sjálf og sama er með turninn. Ríkið getur ekki selt það sem það á ekki þótt sölugræðgin sé mikil. Munu „Ratcliffar“ og „Núbóar“ eignast Hólastað og setja hlið á dalinn? Umdeilt mál á Alþingi Frumvarpið um að leggja niður Hólaskóla og heimild til að selja staðarhús Hóla var mjög umdeilt, bæði á Alþingi og meðal velunnara Hóla. Það er mjög sérstakt að lög um lokun skóla og óvissa framtíð sjálfra Hóla í Hjaltadal skuli afgreidd í miklum ágreiningi á Alþingi. Eitthvað óhreint býr þar undir. Einungis þingmenn Samfylkingar, Viðreisnar, Flokks fólksins og einn Framsóknarmaður greiddu því atkvæði – 33 af 63 alls á þingi. Þingflokkur Sjálfstæðisflokks hafnaði stuðningi við frumvarpið vegna óvissu um framtíð Hóla. Þingmenn Miðflokks ásamt einum þingmanni Framsóknarflokks greiddu atkvæði gegn frumvarpinu en aðrir sátu hjá, neituðu ábyrgð á málinu og vöruðu við samþykkt þess. Óskað var eftir frestun og að skoða málið í heild betur, en því var hafnað. Þingmenn lýstu þungum áhyggjum sínum vegna Hóla og gagnrýndu lélegan undirbúning og rökstuðning frumvarpsins og hve illa væri staðið að málum gagnvart Hólum. RÚV fagnaði – Hólar – tákn fullveldis og sögu þjóðarinnar Sérstakt var að ríkisútvarpið fagnaði því með langri frétt að Hólaskóli skyldi „nú loksins“ lagður niður og staðurinn settur á uppboð; námið lagt inn í Háskóla Íslands (RÚV 6. júní). Því hafa reyndar sumir Skagfirðingar fagnað án þess að setja sig inn í málin, sem vekur furðu. En aðrir og fjölmargir Hólavinir sem gjörþekkja til hafa varað við og lagst gegn þessari árás stjórnvalda á helgan Hólastað og sjálfstætt háskólanám á landsbyggðinni. Í umræddri frétt RÚV var framganga ráðherra úr fyrri ríkisstjórn sérstaklega rómuð en sú er nú horfin af þingi og úr stjórnmálum. Turn Jóns Arasonar á Hólum eða „glópagull“ ríkisstjórnarinnar í Brussel? Það hefði einhvern tíma þótt fréttnæmt að þrír norðlenskir rá ðherrar stæðu í stafni við að leggja niður Háskólann á Hólum og byðu vanhirtar byggingar Hólastaðar upp sem „strandgóss“ eins og danski kóngurinn forðum. Hólaturninn bendir til himins við hlið hinnar fornhelgu dómkirkju í glæstri staðarmynd Hóla: Dómkirkjan byggð úr rauðum sandsteini Hólabyrðu sem gnæfir yfir Hólastað. Hólaturninn, minnismerkið sem stoltir Skagfirðingar reistu 1950 til heiðurs Jóni Arasyni biskup sem var höggvinn 1550. Og um leið var fagnað aldalangri baráttu fyrir fullveldi og sjálfstæði íslensku þjóðarinnar. Turninn var fullveldistáknið. Nú snúa stjórnvöld baki við helgum Hólastað og horfa blinduð á „glópagull“ turnanna í Brussel. „Hefnist þeim sem svíkur sína huldumey“ Hólar hafa áður þurft að lúta lágt fyrir sinnuleysi stjórnvalda, auðmýkt og niðurlægingu fyrir valdafíkn og ásælni erlends valds. Hólaskóli og Hólastaður var endurreistur 1882 í fullveldissókn Íslendinga. Hólar hafa síðan þá vaxið og dafnað sem einn af virtustu helgu stöðum og skólasetur landsins fram á þennan dag. Og gátu gert áfram. Endurreist vígslubiskupsetur frá 1986 sem starfar af mikilli prýði. Þjóðkirkjan hefur lýst stuðningi við Hóla. Í aldanna rás, eins og sagan hermir, hefur lítil gæfa fylgt því að „særa“ helgi og vanvirða Hóla í Hjaltadal. Það reyndi Galdra-Loftur á sínum tíma og varð að taka afleiðingunum. Hólar í Hjaltadal hafa ávallt risið upp á ný af reisn og munu gera. Velkomin heim að Hólum! Jón Bjarnason, fyrrverandi ráðherra og skólasjóri á Hólum. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Hiti nálgast 20 stig í dag Pistill: Við erum pakkinn Aðsend grein: Hólastaður á uppboði ríkisstjórnar Markakóngurinn féll út um glugga „Við enduðum með að þurfa að framlengja ferðina okkar“ Umræðan „Gekk, fekk vargr at drekka“ Þessu fer að ljúka í bili Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Klórar sér í hausnum yfir ummælum ráðherra „Þetta eru allt saman nýir skattar“ Samkomulag á lokametrunum „Elskuð, virt og dáð af fólki um allt konungsríkið“ Mest lesið Í gær Í vikunni „Ef ég fer til Úkraínu kem ég ekki til baka“ Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Styður ekki hjólhýsabyggð í borginni Framburður starfsfólks: „Ég drap þau“ Myndir: Veðurblíða og stemning í miðbænum Þremur skemmtistöðum lokað í aðgerðum lögreglu Klórar sér í hausnum yfir ummælum ráðherra Bjuggu til app til að smala vinum saman Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Sex flugferðum aflýst í dag Íhuguðu að kasta sér fram af brú Samningnum sagt upp: „Eins og við séum ekki fólk“ Subway auglýsir verð í evrum Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Sex flugferðum aflýst í dag Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Réðst á dreng í sundi Eldurinn kviknaði út frá hleðslutæki Styður ekki hjólhýsabyggð í borginni Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Tilbúnir að slást í sundklefunum Óttast er að hundruð missi vinnuna Gjaldtaka aukin með innviðafélagi Nýjast á mbl.is » Hiti nálgast 20 stig í dag Pistill: Við erum pakkinn Aðsend grein: Hólastaður á uppboði ríkisstjórnar Markakóngurinn féll út um glugga „Við enduðum með að þurfa að framlengja ferðina okkar“ Umræðan „Gekk, fekk vargr at drekka“ Þessu fer að ljúka í bili Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Elskuð, virt og dáð af fólki um allt konungsríkið“ Samkomulag á lokametrunum Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Íhuguðu að kasta sér fram af brú Mest lesið Í gær Í vikunni „Ef ég fer til Úkraínu kem ég ekki til baka“ Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Styður ekki hjólhýsabyggð í borginni Framburður starfsfólks: „Ég drap þau“ Myndir: Veðurblíða og stemning í miðbænum Þremur skemmtistöðum lokað í aðgerðum lögreglu Klórar sér í hausnum yfir ummælum ráðherra Bjuggu til app til að smala vinum saman Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Sex flugferðum aflýst í dag Íhuguðu að kasta sér fram af brú Samningnum sagt upp: „Eins og við séum ekki fólk“ Subway auglýsir verð í evrum Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Sex flugferðum aflýst í dag Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Réðst á dreng í sundi Eldurinn kviknaði út frá hleðslutæki Styður ekki hjólhýsabyggð í borginni Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Tilbúnir að slást í sundklefunum Óttast er að hundruð missi vinnuna Gjaldtaka aukin með innviðafélagi