Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Hjarta háskólans er á Hólum“

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 30.5.2026 | 22:40 „Hjarta háskólans er á Hólum“ Sólrún Harðardóttir afhenti Margréti Hallgrímsdóttur skrifstofustjóra forsætisráðuneytisins undirskriftalista Hólavina í gær. mbl.is/Eggert Jóhannesson Dóra Ósk Halldórsdóttir [email protected] Setja bókamerki „Við viljum að tryggt verði að höfuðstöðvar Háskólans á Hólum verði á Hólum í Hjaltadal,“ segir Sólrún Harðardóttir sem er í hópi íbúa og velunnara sem afhentu undirskriftalista með 1.360 nöfnum í Stjórnarráðinu í gær. „Þetta er ein af þeim kröfum sem settar eru fram.“ Íbúar og velunnarar Hóla í Hjaltadal og Háskólans á Hólum héldu tvo fjölmenna fundi í vor um stöðu mála á Hólum og sendu frá sér yfirlýsingu ásamt skýrum kröfum, sem einmitt eru þær sömu og koma fram í tengslum við undirskriftalistann. Margrét Hallgrímsdóttir, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu, tók við undirskriftunum í gær, fyrir hönd Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra. Dýrmæt söguleg táknmynd Gerður var samningur á milli ríkis og sveitarfélagsins Skagafjarðar 13. maí sl. sem tekur á þjónustu við þéttbýlið á Hólum og skipulagsmál. „Það var mikilvægur áfangi sem vissulega kom verulega til móts við eina af kröfunum.“ Eftir stendur, að sögn Sólrúnar, óvissa um byggingar Háskólans á Hólum, m.a. aðalbygginguna, en áætlanagerð um viðhald húsanna og hlutverk sé enn í mótun og óljós. „Skólahúsið er táknmynd skólans og kjarni. Aðalbyggingin var byggð sem skólahús og hefur verið notuð sem slík í meira en 100 ár. Þessi staðarmynd eða ímynd Háskólans á Hólum hefur mikið gildi, tengist sögu staðarins, og við megum alls ekki kasta henni fyrir róða. Það eru verðmæti fólgin í þessari sögu og við teljum að hlutverk þessara bygginga sé að hýsa metnaðarfullt háskólastarf, þótt tími sé kominn á viðhald.“ Höfuðstöðvar á Hólum Sólrún segir einnig hafa skort á samráð við íbúa, starfsfólk og velunnara í tengslum við flest áform er sett hafa verið fram um framtíð Hóla og Háskólans á Hólum. „Það er ekki það sama, samráð og upplýsingagjöf,“ segir hún og bætir við að gert sé ráð fyrir mikilli uppbyggingu skólans á Sauðárkróki sem fólk telji að geti komið niður á eðlilegri uppbyggingu á Hólum. „Að sjálfsögðu verður fiskeldis- og fiskalíffræðideild áfram á Króknum, eins og hún hefur verið meira og minna undanfarin 20 ár. En hjarta háskólans er á Hólum og mikilvægt að nafli skólalífsins sé þar,“ segir hún og nefnir í því sambandi skrifstofur, félagsaðstöðu, bókasafn, mötuneyti, íþróttalífið og heimili nemenda. „Það er vissulega hægt að auka ferðaþjónustuna enn meira, því áhuginn er mikill. Best er að á Hólum verði haldið í söguna með myndarlegu skóla- og menningarstarfi, svo staðurinn endurspegli sína merku sögu.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Gamla ljósmyndin: Fyrsti leikur Stjörnunnar í efstu deild „Hjarta háskólans er á Hólum“ Hrifsa heiminn úr klóm tæknirisanna Klopp að fá nýtt starf? Góð birtuskilyrði lykilþáttur Umræðan Staðalbúnaður tungumálsins Óhreina tauið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Íhugar að kynna samningsmarkmið Segja stöðuna betri: „Skiljanlega er fólki brugðið“ Spyr hvort staða Landsbókasafns sæmi þjóðinni Leggja línurnar um lágmarksbirtu í nýbyggingum Mest lesið Í gær Í vikunni Myndband: Handtaka í Hveragerði Tekur undir orð Bjarna Breyta fánareglum Reykjavíkurborgar Timburdekkið lagt niður „Grunsamleg háttsemi“ við grunnskóla Hluthafar greiði launin Leyniherbergi í Alþingishúsinu Telur fánamál Snorra ekki hafa vegið þungt Skatturinn slæm ákvörðun en Ísland nái sér á strik Einn hlaut hátt í 12 milljónir Lést við barnsburð á Landspítalanum Inga farin í veikindaleyfi Eldri hjón unnu 336 milljónir Myndband: Handtaka í Hveragerði Veðurstofan varar við eldingaveðri og gul viðvörun gengur yfir Inga Sæland: Vonast til að verða ekki lengi frá Andlát: Stefán Jökulsson Séra Kristján segir af sér vegna meints brots Einn fluttur á slysadeild eftir harðan árekstur Daði tjáir sig um símtalið við Hildi Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ Myndband: Handtaka í Hveragerði Nýjast á mbl.is » Gamla ljósmyndin: Fyrsti leikur Stjörnunnar í efstu deild „Hjarta háskólans er á Hólum“ Hrifsa heiminn úr klóm tæknirisanna Klopp að fá nýtt starf? Góð birtuskilyrði lykilþáttur Umræðan Staðalbúnaður tungumálsins Óhreina tauið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vill selja Landsbankann vegna samgöngusáttmálans Fullveldisbaráttunni lauk 1. júní Meiðyrðamáli foreldranna vísað frá Óræð niðurstaða um krónu og evru Mest lesið Í gær Í vikunni Myndband: Handtaka í Hveragerði Tekur undir orð Bjarna Breyta fánareglum Reykjavíkurborgar Timburdekkið lagt niður „Grunsamleg háttsemi“ við grunnskóla Hluthafar greiði launin Leyniherbergi í Alþingishúsinu Telur fánamál Snorra ekki hafa vegið þungt Skatturinn slæm ákvörðun en Ísland nái sér á strik Einn hlaut hátt í 12 milljónir Lést við barnsburð á Landspítalanum Inga farin í veikindaleyfi Eldri hjón unnu 336 milljónir Myndband: Handtaka í Hveragerði Veðurstofan varar við eldingaveðri og gul viðvörun gengur yfir Inga Sæland: Vonast til að verða ekki lengi frá Andlát: Stefán Jökulsson Séra Kristján segir af sér vegna meints brots Einn fluttur á slysadeild eftir harðan árekstur Daði tjáir sig um símtalið við Hildi Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ Myndband: Handtaka í Hveragerði

Share this article