Innlent | Sunnudagsblað | 13.6.2026 | 8:00 Pistill: Við erum pakkinn Ögmundur Jónasson Árni Sæberg Setja bókamerki Úr ólíkum áttum, pistill Ögmundar Jónassonar úr Morgunblaðinu Í vikunni sat ég fund í Þýskalandi þar sem þess var minnst hvernig friðarhreyfingum hefði tekist að skapa jarðveg fyrir afvopnunarsamninga undir lok síðustu aldar. Krafan sem milljónirnar á fjöldafundunum höfðu sameinast um var að í stað þess að færa vopnin nær hugsanlegum átakalínum yrðu þau fjarlægð þaðan og þeim fækkað. Nú væri öldin önnur, alið væri á stríðsótta og lausnin væri fleiri vopn en ekki færri, stigmögnun í stað slökunar, „ óvinurinn “ skyldi gersigraður! En eins og Hemingway sagði forðum vinnast stríð aldrei með vopnum, þau vinnist ekki einu sinni með sigri. Friður fengist með öðum hætti. Mér var bent á að í kauphöllunum birtist veruleikinn. Hlutabréf í Volkswagen, áður tryggust fjárfesting í Þýskalandi, hröpuðu í verði en bréfin í Rheinmetall-vopnaverksmiðjunum næðu háum hæðum. Vopnaiðnaðurinn væri orðinn ráðandi. Fjármunir sem áður var varið til velferðar færu nú í vígbúnað. Telji einhver að innan Evrópusambandsins sé lítil spilling ætti sá hinn sami að kynna sér hagsmunatengsl stjórnmálanna við vopnaiðnaðinn. En hvers vegna Evrópusambandsaðild Íslands? Þið búið við mestu hagsæld á byggðu bóli, eruð tengd mörkuðum Evrópu en getið jafnframt gert tvíhliða samninga við hvert það ríki sem þið viljið en ætlið að láta Evrópusambandið taka undan ykkur stólinn við samningaborð heimsins og lokast inni í glórulausri hervæðingu. Þið eigið að vera í stöðu friðflytjandans sem heiminn sárlega vantar. Ég sagði marga vilja „kíkja í pakkann“ og auk þess þætti meira öryggi að heyra til stórri efnahagssamsteypu með sameiginlegan gjaldmiðil. Þið viljið með öðrum orðum athuga hvort þið komist upp með að halda sjálfstæði umfram okkur hin, yfirráðum auðlinda og fullveldi fram yfir það sem þið fenguð með EES-samningnum? Það eruð þið sem eruð pakkinn og eruð það þá ekki þið sjálf sem þurfið að rýna í hvað þið eruð að gera og það óafturkræft? Allt þetta var sagt í vinsemd en forundran og klykkt út með einfaldri en umhugsunarverðri ábendingu: „ Stór skip geta sokkið ekkert síður en smá. “ Þarna var samhljómur við bréf sem mér barst : „ Það er enginn pakki að kíkja í. Ísland er pakkinn sem sumir vilja afhenda öðrum á kostnað íslensku þjóðarinnar með glæfralegum líkindareikningum sem byggjast á breytilegum aðstæðum eftir inngönguna, umsækjanda í óhag! Leyfum sjálfstæði þjóðarinnar að ná einnar aldar afmæli áður en við látum það frá okkur. “ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Hiti nálgast 20 stig í dag Pistill: Við erum pakkinn Aðsend grein: Hólastaður á uppboði ríkisstjórnar Markakóngurinn féll út um glugga „Við enduðum með að þurfa að framlengja ferðina okkar“ Umræðan „Gekk, fekk vargr at drekka“ Þessu fer að ljúka í bili Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Framburður starfsfólks: „Ég drap þau“ Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Sex flugferðum aflýst í dag Hagræðingarhópur kynntur Mest lesið Í gær Í vikunni „Ef ég fer til Úkraínu kem ég ekki til baka“ Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Styður ekki hjólhýsabyggð í borginni Framburður starfsfólks: „Ég drap þau“ Þremur skemmtistöðum lokað í aðgerðum lögreglu Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Myndir: Veðurblíða og stemning í miðbænum Klórar sér í hausnum yfir ummælum ráðherra Bjuggu til app til að smala vinum saman Andlát: Þórdís Kristmundsdóttir Íhuguðu að kasta sér fram af brú Samningnum sagt upp: „Eins og við séum ekki fólk“ Subway auglýsir verð í evrum Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Sex flugferðum aflýst í dag Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Réðst á dreng í sundi Eldurinn kviknaði út frá hleðslutæki Styður ekki hjólhýsabyggð í borginni Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Tilbúnir að slást í sundklefunum Óttast er að hundruð missi vinnuna Gjaldtaka aukin með innviðafélagi Nýjast á mbl.is » Hiti nálgast 20 stig í dag Pistill: Við erum pakkinn Aðsend grein: Hólastaður á uppboði ríkisstjórnar Markakóngurinn féll út um glugga „Við enduðum með að þurfa að framlengja ferðina okkar“ Umræðan „Gekk, fekk vargr at drekka“ Þessu fer að ljúka í bili Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hagræðingarhópur kynntur Íbúðaverð hækkaði um 103% á tíu árum Sex flugferðum aflýst í dag Spá 16-22 milljarða halla árið 2027 Mest lesið Í gær Í vikunni „Ef ég fer til Úkraínu kem ég ekki til baka“ Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Styður ekki hjólhýsabyggð í borginni Framburður starfsfólks: „Ég drap þau“ Þremur skemmtistöðum lokað í aðgerðum lögreglu Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Myndir: Veðurblíða og stemning í miðbænum Klórar sér í hausnum yfir ummælum ráðherra Bjuggu til app til að smala vinum saman Andlát: Þórdís Kristmundsdóttir Íhuguðu að kasta sér fram af brú Samningnum sagt upp: „Eins og við séum ekki fólk“ Subway auglýsir verð í evrum Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Sex flugferðum aflýst í dag Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Réðst á dreng í sundi Eldurinn kviknaði út frá hleðslutæki Styður ekki hjólhýsabyggð í borginni Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Tilbúnir að slást í sundklefunum Óttast er að hundruð missi vinnuna Gjaldtaka aukin með innviðafélagi