Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Búið að kíkja, búið að fá undanþágur og búið að semja

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 30.5.2026 | 8:00 Búið að kíkja, búið að fá undanþágur og búið að semja Ögmundur Jónasson Ljósmynd/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Úr ólíkum áttum Pistill Ögmundar Jónassonar úr Sunnudagsblaðinu Samkvæmt skoðanakönnunum er meirihluti þjóðarinnar andvígur því að Ísland gangi í Evrópusambandið. Jafnara er hins vegar á metunum þegar spurt er hvort eigi að kíkja í pakkann, sjá hvort Íslendingar geti fengið sérmeðferð, varanlegar undanþágur frá laga- og regluverki ESB umfram það sem önnur ríki fái. Varla getur þetta talist stórmannleg nálgun. En fordæmið hafði verið sett þótt á sinn hátt hafi verið gengið hreinna til verks í fyrri lotu með bréfi sem forsætisráðherra og utanríkisráðherra undirrituðu hinn 16. júlí árið 2009 en þar segir: „The Government of Iceland has the honour to present hereby … the application of the Republic of Iceland for membership of the European Union“ ­ ­­ (Ríkisstjórn Íslands hefur þann heiður að sækja hér með … um aðild að Evrópusambandinu). Þetta var gert og samþykkti Alþingi jafnframt fyrirvara til brúks fyrir „samningamenn“ Íslands að ræða í Brussel í aðdraganda inngöngu Íslands. Þessum fyrirvörum hafnaði Evrópusambandið jafnharðan og þeir voru settir fram en lýsti sig reiðubúið að semja um aðlögunarhraða á ýmsum sviðum. Sama staða er nú komin upp. Inngöngusinnar í ríkisstjórn og á Alþingi leggja áherslu á að hér sé um framhaldsviðræður að ræða frá 2009 og gildir framhaldið þá væntanlega í þeirra huga um aðildarumsóknina og þá einnig fyrirvarana sem settir voru á sínum tíma. Af hálfu þeirra sem ginnkeyptir eru fyrir Evrópusambandsaðild hafa þær raddir heyrst að mikilvægt sé að samið verði um óskorað forræði Íslendinga yfir auðlindum sínum til lands og sjávar, að við ráðum í grundvallaratriðum landbúnaði og getum heft innflutning á lifandi búfénaði til að verja íslenska stofna fyrir sjúkdómum, að við höfum mótun utanríkisstefnu í eigin höndum, getum samlagað okkur stefnu Evrópusambandsins þegar til þess er vilji en greint okkur frá henni þegar þannig skipast mál, að við sitjum sjálf með eigin fulltrúa við samningaborð gagnvart Bandaríkjunum um hernaðarmál en að ESB sé ekki málsvari okkar við slíkt borð, að við eigum sæti sjálf í alþjóðasamningum um viðskipti til dæmis hjá Alþjóðaviðskiptastofnuninni, að við getum gert tvíhliða viðskiptasamninga við erlend ríki án aðkomu ESB en jafnframt haldið stöðu okkar innan innri markaðar Evrópusambandsins og notið þess sem sá markaður hefur upp á að bjóða. Raunsæismenn segja margir hverjir á hinn bóginn að þessar kröfur verði ekki samþykktar nú fremur en fyrr og engan veginn í heild sinni. Gengjum við í ESB myndum við verða að hlíta auðlindastefnu sambandsins, sjávarútvegsstefnunni, sameiginlegri utanríkisstefnu, sameiginlegri viðskiptastefnu og tollapólitík. Um þetta snúist Evrópusambandið, hvorki meira né minna! En ófáir eru þeir sem ekki láta segjast, vilja láta reyna á samninga og freista þess að fá undanþágur að hætti Dana árið 1973, fyrir rúmlega hálfri öld, varðandi sumarbústaði á Jótlandi eða Maltverja löngu síðar með fimm hundruð tonna túnfiskkvóta sinn. Að vísu ekki varanlegan kvóta en mikilvæga aðlögun engu að síður. Við eigum ekki að hræðast samninga er klykkt út með, það eigi að reyna að ná eins miklu fram og framast má. Verum galvösk, berum höfuðið hátt, hræðumst ekki sólarupprás, heyrðist ágætur maður segja í útvarpsþætti. En hvernig væri að staldra ögn við, gæti verið að um allt þetta hefðum við þegar samið, náð öllu okkar fram og það varanlega? Er þarna ekki komin lýsingin á samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, EES, frá 1994? Að sjálfsögðu er þetta hann, sjávarútvegsstefnan, heimild til að banna innflutning á lifandi sýklaberum, mótun utanríkisstefnu á eigin forsendum, stóllinn við samningaborð hjá Alþjóðaviðskiptastofnuninni, heimild til tvíhliða viðskiptasamninga og síðan fjórfrelsið á innri markaði. Sjálfur var ég alltaf andvígur EES-samningnum og er enn; vildi fara þá leið sem margir vildu á þeim tíma er um hann var samið að gera tvíhliða samning við Evrópusambandið eins og ýmis önnur ríki hafa gert í seinni tíð. EES-samningurinn þrengir að mínu mati um of að lýðræðinu á Íslandi og dómsvaldinu einnig þrátt fyrir bókun 35. En þegar Viðreisn, peningafrjálshyggjudeild stjórnmálanna, heimtar nú að gengið verði enn lengra og markaðslögmálin lögbundin með innlimun Íslands í Evrópusambandið þá er fokið í flest skjól. Með EES-samningnum var gerð málamiðlun sem gekk of langt í fullveldisafsali að mínu mati. Nú þegar heimtað er að gengið verði enn þá lengra í þessa átt segi ég nei og vonast til þess að flestir geri slíkt hið sama. Almennt leggjast vinstri menn gegn markaðsvæðingu innviða og alræði markaðshyggjunnar, ég er þar; almennt hafna hægri menn miðstýringu, þeir eru þar, og rökrétt væri fyrir miðjumenn að hafna lögþvingaðri miðstýrðri markaðshyggju. Verkefnið er að gera þjóðfélag okkar samstæðara og réttlátara en verið hefur í stað þess að leggja upp í leiðangur sem gerir ekkert annað en að sundra þjóðinni. Hún þyrfti auk þess að borga með sér til að ná í meintan ávinning sem í meira lagi er umdeilanlegt að sé raunverulegur hvað þá að hann standist til frambúðar. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Óræð niðurstaða um krónu og evru Tekur undir orð Bjarna Búið að kíkja, búið að fá undanþágur og búið að semja Aðsend grein: Verðbólga er ekki náttúruafl Hluthafar greiði launin Umræðan Staðalbúnaður tungumálsins Óhreina tauið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Varar við umgjörð Spyr hvort staða Landsbókasafns sæmi þjóðinni Óttast að atvinnulífið sé úr jafnvægi Eldri hjón unnu 336 milljónir Mest lesið Í gær Í vikunni Myndband: Handtaka í Hveragerði Timburdekkið lagt niður Skatturinn slæm ákvörðun en Ísland nái sér á strik Svarar gagnrýni kennara: „Niðurstaðan stendur“ „Grunnsamleg háttsemi“ við grunnskóla Vill selja Landsbankann vegna samgöngusáttmálans Hluthafar greiði launin Líkur á að kjarasamningar bresti Eldri hjón unnu 336 milljónir Vill tengja Tansaníu, Tesla og Ísland Lést við barnsburð á Landspítalanum Inga farin í veikindaleyfi Eldri hjón unnu 336 milljónir Myndband: Handtaka í Hveragerði Veðurstofan varar við eldingaveðri og gul viðvörun gengur yfir Inga Sæland: Vonast til að verða ekki lengi frá Andlát: Stefán Jökulsson Séra Kristján segir af sér vegna meints brots Einn fluttur á slysadeild eftir harðan árekstur Daði tjáir sig um símtalið við Hildi Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Nýjast á mbl.is » Óræð niðurstaða um krónu og evru Tekur undir orð Bjarna Búið að kíkja, búið að fá undanþágur og búið að semja Aðsend grein: Verðbólga er ekki náttúruafl Hluthafar greiði launin Umræðan Staðalbúnaður tungumálsins Óhreina tauið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segja stöðuna betri: „Skiljanlega er fólki brugðið“ Leggja línurnar um lágmarksbirtu í nýbyggingum Einn fluttur á slysadeild eftir harðan árekstur Meiðyrðamáli foreldranna vísað frá Mest lesið Í gær Í vikunni Myndband: Handtaka í Hveragerði Timburdekkið lagt niður Skatturinn slæm ákvörðun en Ísland nái sér á strik Svarar gagnrýni kennara: „Niðurstaðan stendur“ „Grunnsamleg háttsemi“ við grunnskóla Vill selja Landsbankann vegna samgöngusáttmálans Hluthafar greiði launin Líkur á að kjarasamningar bresti Eldri hjón unnu 336 milljónir Vill tengja Tansaníu, Tesla og Ísland Lést við barnsburð á Landspítalanum Inga farin í veikindaleyfi Eldri hjón unnu 336 milljónir Myndband: Handtaka í Hveragerði Veðurstofan varar við eldingaveðri og gul viðvörun gengur yfir Inga Sæland: Vonast til að verða ekki lengi frá Andlát: Stefán Jökulsson Séra Kristján segir af sér vegna meints brots Einn fluttur á slysadeild eftir harðan árekstur Daði tjáir sig um símtalið við Hildi Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað

Share this article