Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Aðsend grein: Skoðum fyrst, ákveðum svo

  • What: An opinion piece discusses Iceland's potential EU membership
  • Impact: The article focuses on political debates around EU negotiations
Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 30.7.2026 | 7:00 Aðsend grein: Skoðum fyrst, ákveðum svo Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Þann 29. ágúst ákveður þjóðin hvort fara á í samningaviðræður við Evrópusambandið. Samþykki þjóðin að fara í viðræður kýs þjóðin svo aftur um samninginn þegar hann liggur fyrir. Eins og Sjálfstæðisflokkur lofaði þjóðinni fyrir um áratug en stóð svo ekki við. Atkvæðagreiðslan núna í lok sumars snýst þess vegna ekki um inngöngu í Evrópusambandið heldur um rétt þjóðarinnar til að fá fram allar upplýsingar um hvað samningur myndi fela í sér. Samningur hefur ekki verið gerður Núna fer mikil orka í það hjá ýmsum að berjast af krafti gegn þessum rétti þjóðarinnar til að fá fram allar upplýsingar. Og að berjast gegn samningi sem enginn hefur séð og ekki hefur verið gerður. Það er í sjálfu sér athyglisverð nálgun. Og þessi nálgun er sérstaklega athyglisverð í ljósi hagsmuna fólks og fyrirtækja af því að hlutirnir breytist. Að útiloka ESB áður en við vitum hvernig samningur lítur úr gæti reynst rándýr ákvörðun fyrir fólk og fyrirtæki á Íslandi. Skoðum samninginn fyrst, ákveðum svo. Stýrivextir á Íslandi eru nú rúmlega þrefalt hærri en á evrusvæðinu og verðbólga hefur lengi verið meiri en í helstu viðskiptalöndum. Lítill og sveiflukenndur gjaldmiðill leiðir til hærri verðbólgu og felur í sér meiri áhættu en stærri gjaldmiðlar. Þetta leiðir til hærri vaxta fyrir fólk og fyrirtæki. Lítið myntsvæði hamlar sömuleiðis erlendri fjárfestingu sem kemur í veg fyrir samkeppni og skilar almenningi hærri álagningu. Lífeyrissjóðunum er gert að geyma þúsundir milljarða í eiginlegum gjaldeyrishöftum. Ítalía norðursins Evra mun vitaskuld ekki leysa öll okkar vandamál. En raunveruleikinn á Íslandi er og hefur verið sá að vextir eru háir. Meira að segja þegar hér var lágvaxtaskeið voru vextir á Íslandi langtum hærri en í þeim löndum sem við viljum bera okkur saman við. Með evru myndu vextir lækka, erlend fjárfesting aukast og hagkerfið yrði stöðugra til lengri tíma. Hver prósenta í vaxtalækkun myndi spara heimilum og fyrirtækjum rúmlega 60 milljarða króna miðað við núverandi útlánastöðu fjármálafyrirtækja. Almenningur hefur mikla hagsmuni af því að geta keypt fasteign án þess að þau kaup séu eins og áhættufjárfesting. Lægri vextir eru hagsmunir fólks og fyrirtækja og raunar ríkissjóðs. Ríkissjóður greiðir gríðarlega háa vexti í alþjóðlegum samanburði. Þótt skuldastaða hins opinbera sé lág greiðir ríkissjóður vexti á við lönd sem skulda margfalt meira. Ísland er ekkert annað en Ítalía norðursins þegar kemur að greiðslubyrði. Þessi mikli vaxtakostnaður ríkisins eru útgjöld sem á meðan geta ekki farið í fjárfestingu í innviði eða þjónustu fyrir almenning. Ákvörðun þjóðar Þeir sem hagnast helst á háum vöxtum og takmarkaðri samkeppni á Íslandi, í skjóli krónunnar, eru þeir sem eiga mikið fjármagn en skulda lítið. Fyrir langflest heimili og fyrirtæki er staðan önnur. Það vekur því athygli þegar forsvarsmenn fyrirtækja sem í raun hafa yfirgefið krónuna tala fyrir því að óbreytt fyrirkomulag sé þjóðinni allri fyrir bestu eða að í smæð Íslands felist samkeppnisforskot. Og það vekur athygli að Samtök atvinnulífsins tali gegn því að skoða tækifæri í aukinni samkeppni í atvinnulífinu. Það felst engin áhætta í að skoða samning og hafna honum eða samþykkja svo. Íslendingar fá núna einfaldlega tækifæri til að taka ákvörðun um samning við Evrópusambandið, sem byggð er á bestu upplýsingum. Og atkvæðagreiðslan 29. ágúst snýst fyrst og fremst um að þjóðin fái sjálf að taka þessa ákvörðun. Skoðum fyrst. Tökum svo ákvörðun. Um það á samtalið að snúast núna. Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Rændu heilum gámi af kampavíni Vöruðu við nýju landamærakerfi Fékk ný lungu eftir margra ára veikindi Aðsend grein: Við vitum nú þegar meira en nóg Aðsend grein: Skoðum fyrst, ákveðum svo Umræðan Áður en lagt er af stað Skoðum fyrst, ákveðum svo Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Framtíð salarins óljós: „Megum ekki láta þetta gerast“ Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Vaknaði við minka í garðinum „Það er áhyggjuefni“ Mest lesið Í gær Í vikunni Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Gríðarlegt tjón: „Þetta eru hryðjuverk“ Hvetja íbúa til að fylgjast með „Lítið eftir“ af timburhúsinu í Stykkishólmi Framtíð salarins óljós: „Megum ekki láta þetta gerast“ Gríðarlega skaðlegt málstað dýravelferðar „Það þarf bara meiri aga á vinnumarkaði“ Fangelsin yfirfull: Varðhald ekki alltaf svarið Veiðimenn beðnir um að mæta ekki á svæðið Skyttur á vaktinni í nótt Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Vaknaði við minka í garðinum „Við erum alltaf að fá ný og ný vandamál í fangið“ Lætur af störfum sem forstjóri Hrafnistu Nokkur hundruð minka sluppu frá minkabúi Allt bendir til innbrots: 10 til 12 þúsund minkar „Þetta gæti farið verr en menn halda“ Nágranni: Mun hafa áhrif á öll dýr í mörg ár „Hrein og bein hryðjuverk á íslenskri náttúru“ „Þetta er ófremdarástand“ Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Flugmaðurinn fundinn: Fluttur á Landspítalann Átti að mæta eftir hálftíma: „Ég er dottinn í það“ Nýjast á mbl.is » Rændu heilum gámi af kampavíni Vöruðu við nýju landamærakerfi Fékk ný lungu eftir margra ára veikindi Aðsend grein: Við vitum nú þegar meira en nóg Aðsend grein: Skoðum fyrst, ákveðum svo Umræðan Áður en lagt er af stað Skoðum fyrst, ákveðum svo Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Gríðarlega alvarlegt“ Bílvelta í Tálknafirði: Rúðan mölbrotin Skyttur á vaktinni í nótt Ming Ting færð í gæsluvarðhald Mest lesið Í gær Í vikunni Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Gríðarlegt tjón: „Þetta eru hryðjuverk“ Hvetja íbúa til að fylgjast með „Lítið eftir“ af timburhúsinu í Stykkishólmi Framtíð salarins óljós: „Megum ekki láta þetta gerast“ Gríðarlega skaðlegt málstað dýravelferðar „Það þarf bara meiri aga á vinnumarkaði“ Fangelsin yfirfull: Varðhald ekki alltaf svarið Veiðimenn beðnir um að mæta ekki á svæðið Skyttur á vaktinni í nótt Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Vaknaði við minka í garðinum „Við erum alltaf að fá ný og ný vandamál í fangið“ Lætur af störfum sem forstjóri Hrafnistu Nokkur hundruð minka sluppu frá minkabúi Allt bendir til innbrots: 10 til 12 þúsund minkar „Þetta gæti farið verr en menn halda“ Nágranni: Mun hafa áhrif á öll dýr í mörg ár „Hrein og bein hryðjuverk á íslenskri náttúru“ „Þetta er ófremdarástand“ Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Flugmaðurinn fundinn: Fluttur á Landspítalann Átti að mæta eftir hálftíma: „Ég er dottinn í það“

Share this article