Security News

Cybersecurity news aggregator

CRITICAL Attacks RÚV

Árásir víða í Sumy – rússneskur dróni kveikti mikinn eld i Kyiv

This article describes kinetic drone attacks targeting civilian infrastructure and residential buildings, with a specific focus on the conflict in Ukraine. The primary attack vector is the use of military-grade drones to deliver explosive payloads against urban targets, causing fires and structural damage. No software vulnerability, CVSS score, affected versions, or technical mitigation is discussed, as the content covers real-world physical attacks rather than a digital security flaw.
Read Full Article →

Rússar gerðu drónaárásir á sjö staði í Rússlandi í nótt. Árásirnar ollu töluverðum skemmdum og nokkrir særðust. Úkraínumenn segjast hafa skotið niður 102 af 117 drónum Rússa í nótt. Rússar gerður árásir á sjö stöðum í Úkraínu í nótt, þar á meðal í Kyiv-héraði. Úkraínumenn gerðu einnig árás á rússneska borg sem er um 1.600 kílómetrum frá landamærunum. Umfangsmestu árásirnar voru í borginni Sumy í norðausturhluta Úkraínu. Minnst níu sprengingar heyrðust víða um borgina og einn dróninn hæfði íbúðarblokk. Það kviknaði í þremur íbúðum en eldurinn var þó fljótt slökktur. Einn særðist. Skotmörkin voru borgaralegir innviðir og byggingar. Rússar gerður árásir á sjö stöðum í Úkraínu í nótt, þar á meðal í Kyiv-héraði. Úkraínumenn gerðu einnig árás á rússneska borg sem er um 1.600 kílómetrum frá landamærunum. Þrír særðust þegar rússneskur dróni hæfði íbúðarhús í Mykolaiv í nótt. Tveir bílar og 14 íbúðir skemmdust af völdum bæði braks og sprengjuhöggs. Vitalij Kim, yfirmaður umdæmisskrifstofu hersins í Mykolaiv, sem tók myndirnar hér að ofan, segir að minnst fimm hafi særst í héraðinu undanfarinn sólarhring. Rússar gerður árásir á sjö stöðum í Úkraínu í nótt, þar á meðal í Kyiv-héraði. Úkraínumenn gerðu einnig árás á rússneska borg sem er um 1.600 kílómetrum frá landamærunum. Drónaárás í Boryspil í Kyiv-héraði í gærkvöld varð til þess að eldur kviknaði á um 2.000 fermetra svæði. Slökkviliðsmenn þurftu að nota froðu til að slökkva eldinn. Engar fregnir bárust af slysum á fólki. Í tilkynningu almannavarna Úkraínu segir að árásin hafi beinst að innviðabyggingu, án þess að það sé útskýrt nánar hvers konar innviðir þar eru. Úkraínumenn ráðast á Rússa á þjóðhátíðardegi Rússa Úkraínumenn gerðu í nótt drónaárás á borgina Nizhnekamsk í Tatarstan-héraði sem er í um 1.600 kílómetra fjarlægð frá Úkraínu. Dróninn hæfði olíuhreinsunarstöð og verksmiðju sem framleiðir íhluti í vopn. Borgarstjóri Nizhnekamsk segir að dróni hafi einnig hæft íbúðarhús. Svo vill til að þjóðhátíðardagur Rússa er í dag. Hátíðarhöldum í Nizhnekamsk í tilefni dagsins var aflýst, auk þess sem aðalhátíðarhöldin sem áttu að vera á Rauða torginu í Moskvu verða innan dyra.

Share this article