Security News

Cybersecurity news aggregator

HIGH Attacks RÚV

Hezbollah hefnir fyrir árásirnar á Líbanon

This article describes a geopolitical conflict, not a technical software vulnerability. It details Hezbollah's retaliatory cyber attacks on Northern Israel following Israeli military strikes in Lebanon, resulting in significant casualties and international condemnation. The summary does not contain any information pertaining to a specific CVE, CVSS score, affected software versions, patches, or technical workarounds.
Read Full Article →

Hezbollah-samtökin gerðu gagnárásir á Norður-Ísrael í nótt. Samtökin segja að árásirnar séu vegna þess að Ísraelar virtu ekki vopnahlé og gerðu miklar árásir á Líbanon í gær. Ekki hefur verið greint frá mannfalli í þessum árásum. Yfirmaður sendinefndar Alþjóðaráðs Rauða krossins í Líbanon, Agnes Dhur, fordæmir dráp og eyðileggingu ísraelska hersins og árásir hersins á Líbanon í gær. Sameinuðu þjóðirnar hafa einnig fordæmt árásirnar. Volker Türk, mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna, sagði árásirnar hræðilegar. Alls voru 182 drepnir í árásunum og um 900 eru særð. Miklar árásir voru gerðar á höfuðborgina Beirút í gær og eru þetta mestu árásirnar sem hafa verið gerðar á borgina síðan átökin brutust út milli Hezbollah-samtakanna og Ísrael. Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, segir að Ísraelsher sé tilbúinn til árása á Íran þrátt fyrir vopnahlé Bandaríkjanna og Írans. Þetta kom fram í sjónvarpsávarpi Netanyahu í Ísrael. Hann sagði að stjórnvöld í Ísrael væru enn með markmið sem þau ætluðu sér að ná, annaðhvort með samkomulagi eða með áframhaldandi árásum. Íranar hafa lagt til leiðir fyrir skip til að sigla um Hormússund, þar sem hætta er á að þau rekist á tundurdufl á aðalsiglingarleiðinni. Með yfirlýsingunni fylgdu upplýsingar um bestu siglingarleiðirnar um sundið.

Share this article