- What: Analysis of wage growth and labor market uncertainty
- Impact: Economic outlook for Iceland
Greining Íslandsbanka telur verulegar líkur á að forsenduákvæði kjarasamninga virkist í haust með tilheyrandi óvissu um launaþróun og frið á vinnumarkaði í kjölfarið. Þetta kemur fram í hagspá bankans. Rétt eins og Íslandsbanki gera Arion banki og Landsbankinn ráð fyrir að forsenduákvæði kjarasamninga, sem virkjast ef verðbólga mælist yfir 4,7% í ágúst, virkist í haust. Grunnsviðsmynd spár Arion banka gerir þó ekki ráð fyrir uppsögn kjarasamninga þó ekki sé á vísan að róa í þeim efnum. Landsbankinn reiknar ekki með að þetta leiði til verulegra átaka á vinnumarkaði en verði raunin önnur aukist óvissa um framhaldið. Ársverðbólga mældist 5,1% í maímánuði en eins og þekkt er hefur glíman við verðbólgudrauginn reynst strembin og langdregin. Hagspár bankanna og Seðlabankans gera ráð fyrir að baráttan við verðbólguna verði áfram strembin og verðbólga verði á bilinu 4,8% til 5,2% í lok árs. Landsbankinn reiknar með 4,8% verðbólgu, Arion banki 5%, Íslandsbanki 5,1% og loks Seðlabankinn 5,2%. Íslandsbanki er svartsýnastur á verðbólguþróun út spátímabilið og reiknar með 4,3% verðbólgu í lok árs 2027 og 3,8% verðbólgu í lok 2028. Landsbankinn er bjartsýnastur á verðbólguþróun næsta árs og reiknar með 3,3% verðbólgu í lok næsta árs og 2,8% verðbólgu í lok 2028. Arion banki gerir ráð fyrir að verðbólga verði 3,7% í lok árs 2027 og 3% í lok 2028. Seðlabankinn reiknar loks með 3,6% verðbólgu í lok næsta árs. Þá er Seðlabankinn bjartsýnastur á verðbólguhorfur fyrir árið 2028 en hann reiknar með að verðbólgan nái loks lögbundnu verðbólgumarkmiði, eða 2,5%, í lok þess árs. Verðbólgan hefur verið yfir verðbólgumarkmiði frá því í maí árið 2020. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .