Kvika banki spáir því að vísitala neysluverðs hækki um 0,3% milli mánaða í júlí og að ársverðbólga verði óbreytt í 5,2%. Hagstofa Íslands birtir nýja verðbólgumælingu á morgun. Arion banki, Íslandsbanki og Landsbankinn spá einnig 5,2% ársverðbólgu og er því full samstaða meðal bankanna um niðurstöðuna. Arion spáir 0,3% hækkun vísitölunnar milli mánaða, Íslandsbanki 0,35% og Landsbankinn 0,34%. Flugfargjöld vega þyngra en áður Hafsteinn Hauksson, aðalhagfræðingur Kviku, segir undirliggjandi verðbólguþrýsting hafa heldur minnkað í síðustu mælingum. Þróunin í einstökum undirliðum sé þó ekki næg til að lækka ársverðbólguna í júlí, meðal annars vegna árstíðabundinna hækkana í ferðaþjónustu. Kvika telur helmingslíkur á að ársverðbólga mælist á bilinu 5,0–5,4%. Spá bankans um 0,3% hækkun vísitölunnar milli mánaða er yfir algengustu júlímælingu síðustu 15 ára, sem er 0,1%. Það skýrist meðal annars af því að áhrif sumarútsalna hafa minnkað á síðustu árum og að flugfargjöld vega nú þyngra í vísitölunni en áður. Ferðaþjónustan heldur verðbólgunni uppi Kvika gerir ráð fyrir að verð á ferðaþjónustu hækki um 8,3% milli mánaða og leggi 0,5 prósentustig til hækkunar vísitölunnar. Þar munar mest um flugfargjöld, sem bankinn spáir að hækki um 14% milli mánaða. Þótt það sé minni hækkun en í júlí í fyrra hefur vægi flugfargjalda í vísitölunni aukist úr 2,0% í 3,2% á einu ári. Hækkun þeirra leggur því meira til verðbólgunnar en áður Kvika telur að aukið vægi ferðaþjónustunnar hækki ársverðbólguna um 0,1 prósentustig og komi þannig í veg fyrir að hún hjaðni í júlí. Bankinn leggur þó áherslu á að þróunin endurspegli fyrst og fremst breytta samsetningu vísitölunnar en ekki aukinn undirliggjandi verðbólguþrýsting. Á móti vegur lægra eldsneytisverð. Verðkönnun Kviku bendir til þess að bensín og dísilolía hafi lækkað um rúm 3% milli mánaða. Eldsneytisliðurinn er talinn draga vísitöluna niður um 0,1 prósentustig. Bankinn bendir þó á að dæluverð sé enn um 20% hærra en í febrúar, að teknu tilliti til tímabundinnar lækkunar virðisaukaskatts. Þótt hráolíuverð hafi lækkað sé vinnsluálag olíuhreinsistöðva enn nálægt sögulegum hágildum. Húsnæði hækkar enn Kvika spáir því að húsnæðisliður vísitölunnar hækki um 0,4% milli mánaða og leggi 0,1 prósentustig til hækkunar hennar. Húsnæðisliðurinn hefur hækkað umfram væntingar bankans þrjá mánuði í röð. Hafsteinn telur þó að draga muni úr hækkuninni, enda bendi bæði leigu- og íbúðaverðsvísitölur Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar til þess að fasteignamarkaðurinn hafi kólnað. Leiguverð hefur hækkað um 4,9% síðastliðið ár og íbúðaverð um 2,2%. Til samanburðar hefur húsnæðisliður vísitölu neysluverðs hækkað um 6,6%, en hann bregst við breyttum aðstæðum á markaði með nokkurri töf. Matur og drykkjarvörur eru talin hækka um 0,1% milli mánaða. Tólf mánaða hækkun matvælaverðs hefur hjaðnað úr 5,8% í 3,9% á síðustu þremur mánuðum. Á móti lækka ýmsar innfluttar vörur vegna sumarútsalna. Kvika spáir 2% lækkun kjarnavara á borð við fatnað, húsgögn og heimilistæki, sem dregur vísitöluna niður um 0,4 prósentustig. Líklega áfram yfir viðmiði kjarasamninga Verðlagsforsenda kjarasamninga miðast við að verðbólga verði komin niður í 4,7%. Spár bankanna benda hins vegar til þess að ólíklegt sé að viðmiðið náist á næstu mánuðum. Kvika spáir því að verðbólga hækki í 5,5% í ágúst, meðal annars vegna tímabundinna verðhækkana í ferðaþjónustu í kringum sólmyrkvann. Bankinn gerir síðan ráð fyrir að hún lækki í 5,1% í september og fari fyrst niður fyrir 5% í október, þegar hún mælist 4,9%. Meðaltal spáa Arion banka, Íslandsbanka og Landsbankans hljóðar upp á 5,4% verðbólgu í ágúst, 5,43% í september og 5,1% í október. Bankarnir þrír gera því allir ráð fyrir að verðbólga verði enn yfir 4,7% viðmiðinu fram á haust. Arion og Íslandsbanki spá 5,5% verðbólgu í september en Landsbankinn 5,3%. Í október spáir Arion 5,1%, Íslandsbanki 5,3% og Landsbankinn 5,0%. Miðað við þessar spár þyrfti verðbólga að hjaðna hraðar en allir bankarnir gera nú ráð fyrir svo verðlagsforsenda kjarasamninganna næðist á næstu mánuðum. Vaxtaákvörðunin gæti staðið á hnífsegg Júlímælingin er sú síðasta sem peningastefnunefnd Seðlabankans fær fyrir vaxtaákvörðun sína 19. ágúst. Hafsteinn telur líklegt að val nefndarinnar standi á milli óbreyttra vaxta og 0,25 prósentustiga hækkunar. Verðbólga í samræmi við spá Kviku myndi þýða að hún hefði ekkert hjaðnað frá síðasta fundi nefndarinnar í maí. Á móti vegur að hrávöruverð hefur lækkað frá því í vor og að vaxtahækkanir upp á samtals 0,5 prósentustig hafa þegar aukið aðhald peningastefnunnar. Hafsteinn telur því að mælist verðbólga undir spánni muni það auka líkur á óbreyttum vöxtum. Mælist hún hins vegar meiri en spáð er gæti það aukið líkur á frekari vaxtahækkun.