Innlent | mbl | 11.6.2026 | 22:50 Gert að greiða fyrrverandi sambýliskonu 6 milljónir Maðurin braust inn í íbúðina til að taka myndir af drasli sem hann hótaði að nota gegn konunni í forræðisdeilu. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Maður var dæmdur til þess að greiða fyrrverandi sambýliskonu og barnsmóður sinni rúmar sex milljónir króna, en hann hafði notað kort hennar í leyfisleysi við hin ýmsu tilefni auk þess tók hann út háar fjárhæðir í hraðbönkum víða um borgina. Umræddur dómur var kveðinn upp af héraðsdómi Reykjavíkur í júní 2025. Var hann staðfestur af Landsrétti fyrr í dag. Samkvæmt frumskýrslu lögreglu kom fyrrverandi sambýliskona og barnsmóðir mannsins á lögreglustöð 11. apríl 2018. Lagði hún fram kæru á hendur manninum vegna eignaspjalla, þjófnaðar og heimilisofbeldis. Eyddi á börum, veitingastöðum, rakarastofum og fatabúðum Viku áður en konan fór á lögreglustöðina kvaðst konan hafa fengið símtal frá erlendum banka sem hún var viðskiptavinur hjá og henni verið tilkynnt að sparireikningur hennar væri tómur og hún komin í 100.000 króna skuld þar. Í upphafi árs höfðu verið ein og hálf milljón króna inni á umræddum reikningi, en hún hafði fengið kort á reikninginn er hún og maðurinn bjuggu saman erlendis árið 2015. Óskaði hún í kjölfarið eftir yfirliti frá bankanum yfir árin 2017 og 2018 og þá hafi hún uppgötvað að hann hafi notað kortið hennar óspart. Í upphafi árs 2017 hafi verið rúmar sex milljónir inni á kortinu sem hann hafi notað í eigin neyslu án hennar vitundar. Höfðu úttektirnar verið á börum, veitingastöðum, rakarastofum, herrafataverslunum og stórar fjárhæðir í hraðbönkum. Taldi það hennar hlutverk að fylgjast með eyðslu á kortinu Maðurinn kvaðst hafa notað greiðslukort konunnar með hennar samþykki. Sagðist hann hafa talið hana vilja losna við þess peninga þar sem hún hafi erft hundruð milljóna. Þau hafi verið með sameiginlegan fjárhag og væri þetta dropi í hafið. Í skýrslugjöf í ágúst 2023 kvaðst hann hafa verið tekjulaus er sambandi hans og konunnar lauk. Hafði hann því oft fengið að nota kort hennar til að kaupa bjór og hamborgara. Hann hafi talið það hennar hlutverk að fylgjast með neyslu hans á kortinu og stöðva hann ef henni þætti ástæða til, en þar sem hún hafi ekki gert það hafi hann litið svo á að honum væri frjálst að nota kortið. „ Skýrði ákærði [maðurinn] frá því að það hafi verið erfitt að vera allt í einu peningalaus eftir sambandsslitin, en brotaþoli [konan] ætti fullt af peningum og hafi hann verið orðinn vanur góðu lífi í þeirra sambandi og eyðsla þeirra verið mikil.“ Aukin drykkja og eiturlyfjaneysla Höfðu þau verið í sambandi í um fimm ára skeið og eignast barn árið 2016. Erfiðleikar hafi einkennt sambandið eftir það þar sem drykkjuvandi mannsins hafi aukist og eiturlyfjaneysla bæst við og síðasta árið hafi eiginlega engin samskipti verið milli þeirra. Hann hafi verið farinn að meiða hana og haga sér furðulega. Í desember 2017 hafi hún loks gefist upp á honum og rekið hann út. Flutti hann til ættingja í kjölfarið. Eftir það hafi maðurinn í tvígang stolið lykil að heimilinu. Í annað skiptið vaknaði konan við það að hann var að læðast inn og í hitt skiptið fór hann inn í íbúðina til þess að taka myndir af drasli sem hann hótaði að nota gegn henni í forræðisdeilu. Ákvað hún því að skipta um lás á íbúðinni. Eina nóttina kom hann svo að læstum dyrum og sparkaði hann því upp hurðinni. Eins og áður segir var maðurinn dæmdur til að greiða konunni rúmar sex milljónir í skaðabætur, með vöxtum. Var hann einnig dæmdur í sex mánaða fangelsi en var fullnustu refsingarinnar frestað og mun hún falla niður að tveimur árum liðnum frá uppkvaðningu dómsins, haldi hann almennt skilorð. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Sex flugferðum aflýst í dag Ekki hleypt inn í landið fyrir HM Kanada – Bosnía kl. 19, bein lýsing Brennivín hlaut gullverðlaun í alþjóðlegri keppni Þverá gaf 25 laxa í opnunarholli Umræðan Höggvið á orkuhnúta, einn af öðrum Efnahagsleg hnignun ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Íbúðaverð hækkaði um 103% á tíu árum Samkomulag á lokametrunum Prinsessan er látin Sex flugferðum aflýst í dag Mest lesið Í gær Í vikunni Íhuguðu að kasta sér fram af brú Samningnum sagt upp: „Eins og við séum ekki fólk“ Subway auglýsir verð í evrum Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Réðst á dreng í sundi Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Afþakka risaeðlubein eftir þriggja ára vinnu starfshóps Starfsmönnum fjölgað og launakostnaður hækkaði Eldurinn kviknaði út frá hleðslutæki Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Réðst á dreng í sundi Óttast er að hundruð missi vinnuna Íslenskur maður ekki fundið sársauka í 73 ár Lokuðu skrifstofum Hagkaupa eftir alvarlega hótun Dæmið gengur ekki upp Farþegar skildir eftir vegna ölvunar Nýjar íbúðir seljast ekki á ásettu verði Borgarstjóri fagnar stórafmæli í Ráðhúsinu Dró sér 3,3 milljónir vegna leigu á Tenerife Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Um 300 þegar fengið viðvörun Tilbúnir að slást í sundklefunum Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Nýjast á mbl.is » Sex flugferðum aflýst í dag Ekki hleypt inn í landið fyrir HM Kanada – Bosnía kl. 19, bein lýsing Brennivín hlaut gullverðlaun í alþjóðlegri keppni Þverá gaf 25 laxa í opnunarholli Umræðan Höggvið á orkuhnúta, einn af öðrum Efnahagsleg hnignun ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Álverðið hefur rokið upp Hagræðingarhópur kynntur Hafa fengið hærri reikninga Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Mest lesið Í gær Í vikunni Íhuguðu að kasta sér fram af brú Samningnum sagt upp: „Eins og við séum ekki fólk“ Subway auglýsir verð í evrum Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Réðst á dreng í sundi Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Afþakka risaeðlubein eftir þriggja ára vinnu starfshóps Starfsmönnum fjölgað og launakostnaður hækkaði Eldurinn kviknaði út frá hleðslutæki Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Réðst á dreng í sundi Óttast er að hundruð missi vinnuna Íslenskur maður ekki fundið sársauka í 73 ár Lokuðu skrifstofum Hagkaupa eftir alvarlega hótun Dæmið gengur ekki upp Farþegar skildir eftir vegna ölvunar Nýjar íbúðir seljast ekki á ásettu verði Borgarstjóri fagnar stórafmæli í Ráðhúsinu Dró sér 3,3 milljónir vegna leigu á Tenerife Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Um 300 þegar fengið viðvörun Tilbúnir að slást í sundklefunum Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna