Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Gert að endurgreiða ekkju föður síns 16,4 milljónir

Read Full Article →

Innlent | mbl | 30.4.2026 | 16:39 Gert að endurgreiða ekkju föður síns 16,4 milljónir Málið snýst um fjárúthlutun úr dánarbúi móður mannsins en við skipti búsins var gengið út frá því að búinu hefði aldrei áður verið skipt. mbl.is/Eggert Setja bókamerki Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að maður skuli endurgreiða ekkju föður síns rúmlega 16,4 milljónir króna sem hann fékk greiddar úr dánarbúi foreldra sinna við einkaskipti árið 2022. Málið snýst um fjárúthlutun úr dánarbúi móður mannsins en við skipti búsins var gengið út frá því að búinu hefði aldrei áður verið skipt. Í kjölfarið fékk maðurinn greiddar tæpar 17,4 milljónir króna. Konan, sem er ekkja föður mannsins og situr í óskiptu búi, taldi greiðsluna ranga og höfðaði mál til að fá fjármunina endurgreidda til búsins. Talið að maðurinn hafi vitað af fyrri skiptum Í dómi Landsréttar kemur fram að gögn málsins sýni að maðurinn hafi þegar árið 1974 leitað upplýsinga um móðurarf sinn og gert samkomulag við föður sinn um útgreiðslu hans. Af þeim sökum taldi dómurinn að maðurinn hafi vitað, eða að minnsta kosti mátt vita, að skipti á dánarbúi móður hans hefðu þegar farið fram. Því hafi forsendur einkaskiptagerðarinnar árið 2022 verið rangar, þar sem hún byggði á því að engin fyrri skipti hefðu átt sér stað. Manninum var gert að endurgreiða 16,4 milljónir króna. Ólögmæt greiðsla úr búinu Landsréttur taldi að greiðslan til mannsins hefði ekki haft lögmætan grundvöll og að óeðlilegt og ósanngjarnt væri að hann héldi fjármununum. Var því staðfest frá dómi héraðsdóms að honum bæri að endurgreiða 16.430.744 krónur til búsins. Þá var einnig komist að þeirri niðurstöðu að maðurinn hefði ekki verið í góðri trú þegar hann tók við greiðslunni og því bæri honum að greiða dráttarvexti, þó aðeins frá því að málið var höfðað árið 2024. Konan hafði rétt til að krefjast endurgreiðslu Dómurinn staðfesti jafnframt að konan, sem situr í óskiptu búi eftir eiginmann sinn, hefði fullan rétt til að krefjast endurgreiðslu fjárins fyrir hönd búsins, þar sem hún færi með forræði þess. Manninum var einnig gert að greiða 1,1 milljón króna í málskostnað fyrir Landsrétti. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Trump hrósaði Karli: „Merkasti konungurinn“ Gert að endurgreiða ekkju föður síns 16,4 milljónir Segir bakvörð Liverpool þann besta í sögunni Unglingadeild Klettaskóla flytur í Korpu í haust Úlfari Steindórssyni veitt nafnbótin Úlfar-san Umræðan Reykjavíkurvæðing Kópavogs Trúin á manneskjuna og kraftur samfélagsins Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sakaður um að hafa logið að bandarísku þjóðinni Andleg heilsa þeirra sem starfa í leikskóla mælist verri en annarra hópa „Ég segi nei“ Hallærisplanið er ekki að virka Mest lesið Í gær Í vikunni Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki „Allt hefur verið afbókað“ Danska konan skuldar laun Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Blikur á lofti hjá hótelum Jón Gnarr fékk greitt fyrir ESB-innslag á RÚV Unnu í raun í Víkingalottóinu Líkur á misnotkun veikindaréttar Biðu ekki boðanna og níddust á samfélaginu Húsnæði Kjötborgar til sölu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Vesturlandsvegur skal varinn Meintir risaafslættir á heitu vatni Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Strandabyggð: Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Nýjast á mbl.is » Trump hrósaði Karli: „Merkasti konungurinn“ Gert að endurgreiða ekkju föður síns 16,4 milljónir Segir bakvörð Liverpool þann besta í sögunni Unglingadeild Klettaskóla flytur í Korpu í haust Úlfari Steindórssyni veitt nafnbótin Úlfar-san Umræðan Reykjavíkurvæðing Kópavogs Trúin á manneskjuna og kraftur samfélagsins Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Ég segi nei“ Fleiri sigldu með ótrygga björgunarbáta Sakaður um að hafa logið að bandarísku þjóðinni Gert að endurgreiða ekkju föður síns 16,4 milljónir Mest lesið Í gær Í vikunni Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki „Allt hefur verið afbókað“ Danska konan skuldar laun Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Blikur á lofti hjá hótelum Jón Gnarr fékk greitt fyrir ESB-innslag á RÚV Unnu í raun í Víkingalottóinu Líkur á misnotkun veikindaréttar Biðu ekki boðanna og níddust á samfélaginu Húsnæði Kjötborgar til sölu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Fjórir í varðhaldi: Sá elsti á sextugsaldri Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Vesturlandsvegur skal varinn Meintir risaafslættir á heitu vatni Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Strandabyggð: Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“

Share this article