Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Ari og Pétur í hagræðingarhópi Hildar

Read Full Article →

Ari Edwald og Pétur Marteinsson munu sitja í nýjum hagræðingarhópi Hildar Björnsdóttur borgarstjóra. Þetta kemur fram í erindisbréfi stýrihóps um hagræðingar og stjórnkerfisbreytingar í borgarkerfinu sem var samþykkt á fundi borgarráðs í dag. Róbert Ragnarsson, borgarfulltrúi Viðreisnar, verður formaður hópsins. Auk hans sitja oddvitar meirihlutaflokkanna í borgarstjórn, þ.e. Hildur, Björg Magnúsdóttir, og Einar Þorsteinsson, ásamt Ara og Pétri. Sjá einnig Hagræðingarhópur og afnám fánareglna á fyrsta fundi Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Vinstrisins, gagnrýndi í bókun að fjórir fulltrúar meirihlutans sitji í hópnum en eingöngu tveir fyrir hönd minnihlutans. Hún sagði jafnframt að betur hefði farið á því að allir flokkar ættu fulltrúa í hópnum. Skipaður til tveggja ára Í greinargerð með erindisbréfinu segir að markmið verkefnisins sé að gera stjórnsýslu Reykjavíkurborgar, bæði miðlæga og á fag- og kjarnasviðumm skilvirkari, gagnsærri og þjónustumiðaðri, draga úr kostnaði við yfirbyggingu og nýta fjármuni borgarinnar betur. Markmiðunum verði náð með því að innleiða afmarkaðar og mælanlegar breytingar. „Gert er ráð fyrir utanaðkomandi ráðgjöf og að innleiðingu verkefna verði lokið eigi síðar en júní 2028.“ Meirihluti Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknar var myndaður í lok maí. © Eyþór Árnason (Eyþór Árnason) Stýrihópnum ber að leggja fram tillögur jafnóðum og þær eru tilbúnar til ákvarðanatöku og innleiðingar, í stað þess að bíða heildarniðurstöðu í lok verkefnisins. Í lok verkefnisins verður lagt mat á árangur þess. Í erindisbréfinu sjálfu segir að rekstur borgarinnar standi ekki undir nauðsynlegri fjárfestingu og viðhaldi innviða. Kostnaður við miðlæga stjórnsýslu borgarinnar sé hærri en landsmeðaltal, og hærri en samanburðar sveitarfélaga. Nauðsynlegt sé að bæta rekstur borgarsjóðs, m.a. til að skila meira fjármagni í fjárfestingar og niðurgreiðslu skulda, auka fjárframlög til grunnþjónustu, og lækka skatta í samræmi við verkefnalista meirihlutans. Úttekt á stöðu 200 starfshópa Á fundi borgarráðs var einnig samþykkt tillaga borgarstjóra um að fela borgarritara í samvinnu við sviðsstjóra að rýna stöðu starfs- og stýrihópa sem og aðra vinnuhópa sem stofnaðir hafa verið með erindisbréfi hjá Reykjavíkurborg á kjörtímabilinu 2022-2026. „Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar benda á að á síðasta kjörtímabili hafi heildarfjöldi starfs- og stýrihópa borgarinnar verið hátt í 200. Aðeins rúmur helmingur þeirra hafi skilað niðurstöðu við lok kjörtímabils,“ segir í bókun meirihlutans. „Telja fulltrúarnir nauðsynlegt endurskoða stöðu starfandi starfs- og stýrihópa við upphaf kjörtímabils. Fulltrúarnir leggja jafnframt áherslu á að slíkir hópar séu ekki fleiri en nauðsyn krefur, þeir hafi skýru hlutverki að gegna og beri að skila niðurstöðu innan skilgreinds tímaramma.“

Share this article