Innlent | mbl | 11.6.2026 | 17:06 Áhyggjuefni segir fjármálaráðherra Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra. mbl.is/Eyþór Setja bókamerki Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir að boðuð endurákvörðun virðisaukaskatts á bílaleigur til hækkunar fyrir árin 2024 og 2025 sé áhyggjuefni því ákvörðun Skattsins geti haft veruleg áhrif á einstök fyrirtæki. Morgunblaðið greindi frá því í dag að nokkrar bílaleigur hefðu fengið bréf frá Skattinum, þar sem boðuð er endurákvörðun virðisaukaskatts til hækkunar fyrir árin 2024 og 2025, að viðbættu 10% álagi og dráttarvöxtum. Fram kom í fréttinni að tvær bílaleigur til viðbótar væru búnar að greiða hátt í 500 milljónir vegna endurákvörðunar virðisaukaskatts, en þær hefðu ekki verið með dreifingarsamning við vátryggingarfélögin. Rósa Guðbjartsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gerði málið að umtalsefni í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í dag. Frétt af mbl.is Óttast er að hundruð missi vinnuna Rósa Guðbjartsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Karítas Bakreikningurinn hefur áhrif „Ég vakti athygli á því fyrr í vikunni að nú er dálítið sérstök deila komin upp, í þessu tilviki milli bílaleigufyrirtækja og skattyfirvalda, þar sem verið er að túlka skattalöggjöfina á nýjan hátt og krefja bílaleigur í landinu um afturvirkar greiðslur svo hundruðum milljóna nemur í einstaka tilvikum. Ég tók dæmi af bílaleigu sem hefur fengið endurákvörðun um virðisaukaskatt upp á rúmar 700 milljónir kr., auk álags og dráttarvaxta, fyrir árin 2024 og 2025. Við getum öll ímyndað okkur hvaða áhrif slíkur bakreikningur hefur á rekstur meðalfyrirtækis,“ sagði Rósa. Hún bætti við að þetta væri komið til vegna þess að bílaleigufyrirtæki hefðu fengið leiðbeiningar fyrir níu árum um að þeim væri heimilt að selja valkvæðar tryggingar til sinna viðskiptavina. „Þú tekur bílaleigubíl og getur valið hvort þú tryggir hann eða ekki. Í leiðbeiningum til rekstraraðila ári síðar var fullyrt að bílaleigufyrirtækjum væri þetta heimilt og tveimur árum síðar var það svo áréttað í lögum. En nú er þessi bakreikningur að koma og það eru upplýsingar um að ekki sé um að ræða þetta eina fyrirtæki sem ég vitnaði til og tók dæmi af hér um daginn heldur séu fleiri að fá slíka reikninga. Mig langar til að spyrja hæstvirtan ráðherra hvort hann sé meðvitaður um þetta mál og hvort ráðuneytið hafi gert sér grein fyrir þeim afleiðingum sem þetta kann að hafa á þessi fyrirtæki, á störf þar og á ferðaþjónustuna í heild sinni,“ spurði Rósa. Frétt af mbl.is Telur fjöldagjaldþrot yfirvofandi Óvenjulegt hve langt tímabil er undir Daði Már sagði að það væri alveg rétt hjá Rósu að hér væri um töluvert mikla breytingu á túlkun að ræða. Búið væri að vekja athygli hans á málinu og ráðuneytið væri að fylgjast með framþróun þess. „Það er auðvitað þannig að Skatturinn vinnur sjálfstætt og það er auðvitað þannig að þrátt fyrir að Alþingi vandi mjög vinnu sína að jafnaði þá koma upp vafaatriði sem þýðir að frekari útfærsla fer oft fram í túlkun yfirskattanefndar og jafnvel dómstóla. Þarna er tvímælalaust um vafaatriði að ræða og ekki óeðlilegt að það fari þá í þann farveg sem svona frekari skýringar að jafnaði fara í. Það sem er óvenjulegt þarna er hversu langt tímabil er undir og hversu háar upphæðirnar eru þar af leiðandi. Það gerir það auðvitað að verkum að þetta getur haft veruleg áhrif á einstök fyrirtæki og ég tek undir með háttvirtum þingmanni að það er áhyggjuefni,“ sagði fjármálaráðherra. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Æðislegar stuttbuxur fyrir góða veðrið „Við vildum yfirgefa þennan heim öll saman“ Hildur Soffía nýr markaðsstjóri Nathan Missti af leikjum með Liverpool til að vera klár fyrir HM Sex flugferðum aflýst í dag Umræðan Höggvið á orkuhnúta, einn af öðrum Réttar forsendur, rangar ályktanir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sex flugferðum aflýst í dag Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Skerða um 1% í þorski og 20% í ýsu Þrengdi að hálsi fyrrum sambýliskonu sinnar Mest lesið Í gær Í vikunni Íhuguðu að kasta sér fram af brú Samningnum sagt upp: „Eins og við séum ekki fólk“ Subway auglýsir verð í evrum Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Réðst á dreng í sundi Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Afþakka risaeðlubein eftir þriggja ára vinnu starfshóps Eldurinn kviknaði út frá hleðslutæki Starfsmönnum fjölgað og launakostnaður hækkaði Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Réðst á dreng í sundi Óttast er að hundruð missi vinnuna Íslenskur maður ekki fundið sársauka í 73 ár Lokuðu skrifstofum Hagkaupa eftir alvarlega hótun Dæmið gengur ekki upp Farþegar skildir eftir vegna ölvunar Nýjar íbúðir seljast ekki á ásettu verði Borgarstjóri fagnar stórafmæli í Ráðhúsinu Dró sér 3,3 milljónir vegna leigu á Tenerife Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Um 300 þegar fengið viðvörun Tilbúnir að slást í sundklefunum Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Nýjast á mbl.is » Æðislegar stuttbuxur fyrir góða veðrið „Við vildum yfirgefa þennan heim öll saman“ Hildur Soffía nýr markaðsstjóri Nathan Missti af leikjum með Liverpool til að vera klár fyrir HM Sex flugferðum aflýst í dag Umræðan Höggvið á orkuhnúta, einn af öðrum Réttar forsendur, rangar ályktanir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hagræðingarhópur kynntur Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Verðbólga á sterum frá 2023 Samkomulag á lokametrunum Mest lesið Í gær Í vikunni Íhuguðu að kasta sér fram af brú Samningnum sagt upp: „Eins og við séum ekki fólk“ Subway auglýsir verð í evrum Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Réðst á dreng í sundi Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Afþakka risaeðlubein eftir þriggja ára vinnu starfshóps Eldurinn kviknaði út frá hleðslutæki Starfsmönnum fjölgað og launakostnaður hækkaði Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Réðst á dreng í sundi Óttast er að hundruð missi vinnuna Íslenskur maður ekki fundið sársauka í 73 ár Lokuðu skrifstofum Hagkaupa eftir alvarlega hótun Dæmið gengur ekki upp Farþegar skildir eftir vegna ölvunar Nýjar íbúðir seljast ekki á ásettu verði Borgarstjóri fagnar stórafmæli í Ráðhúsinu Dró sér 3,3 milljónir vegna leigu á Tenerife Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Um 300 þegar fengið viðvörun Tilbúnir að slást í sundklefunum Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna