Innlent | Morgunblaðið | 11.6.2026 | 12:55 „Þetta er svona pínu íslenskt“ Fánar Reykjavíkurborgar blakta hér í vindinum á göngubrú við ráðhúsið en merkið sést ekki vel. mbl.is/Karítas Sólrún Lilja Ragnarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Opinber fáni Reykjavíkurborgar ber vott um ákveðið metnaðarleysi að mati grafísks hönnuðar. Taka mætti hann til endurskoðunar og horfa til fyrirmynda í fánum erlendra stórborga. Þá væri hægt að leika sér töluvert meira með skjaldarmerki borgarinnar, jafnvel taka upp árstíðarbundna fána eða hátíðarfána. Opinber fáni Reykjavíkurborgar er núna stafrænt merki borgarinnar hliðarsett, ásamt orðmerki með nafni borgarinnar, á hvítum grunni. Notkun á áður opinberum fána Reykjavíkurborgar, sem aðeins skjaldarmerki borgarinnar prýddi, hefur verið hætt. „Eins og það sé bara eðlilegt“ Sama stafræna merki er nú notað á allt efni frá Reykjavíkurborg, allt frá umslögum upp í opinberan fána borgarinnar. „Þetta er svona pínu íslenskt, að setja þetta stafræna merki á fánann eins og það sé bara eðlilegt,“ segir Sigurður Oddsson grafískur hönnuður í samtali við Morgunblaðið. „Það þyrfti aldrei að breyta merkinu mikið, heldur hvernig þessir hlutir eru hugsaðir sem kerfi, hvernig lítur skjaldarmerkið út, hvernig lítur fáninn út, hvernig lítur stafrænt merki út,“ segir hann jafnframt. Hvítir fánar ekki sterkir Letrið í orðmerki Reykjavíkur er hannað af OrType, sem er íslenskt leturhönnunarfyrirtæki, og er notað í öllu efni Reykjavíkurborgar. „En það er ekki þar með sagt að það þurfi að vera á fánanum,“ segir Sigurður og tekur fram að hvergi annars staðar séu nöfn borga á fánum. „Það vita allir í hvaða borg þeir eru.“ Fáni Reykjavíkurborgar var áður skjaldarmerkið á hvítum grunni, án orðmerkis, en Sigurður segir þann fána ekki mjög sterkan heldur. Hvítir fánar séu það yfirleitt ekki. Finnst honum vel mega taka fána borgarinnar til endurskoðunar, sem og fána fleiri sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. „Það er pínu óheppilegt hversu margir fánar á höfuðborgarsvæðinu eru bara skjaldarmerki sveitarfélagsins á hvítum grunni. Ef þú horfir á fána allra stærstu og flottustu borga í heimi; New York, Amsterdam, Kaupmannahafnar og Oslóar, þar er fáninn allt annað fyrirbæri en bara skjaldarmerkið. Þú ert búinn að taka skjaldarmerkið og setja það á einhvern grunn sem hefur einhverja sögu og einhverja reglu í sjálfu sér,“ útskýrir Sigurður. Fánar borgarinnar. „Þetta er rosalega óheppilegt form til þess að sýna merki í rauninni.“ mbl.is/Karítas Letrið verður ólæsilegt Hörður Lárusson, grafískur hönnuður og sérfræðingur í íslenska fánanum, tekur undir með Sigurði að nafni borgarinnar sé ofaukið á fánanum. Herði finnst fáninn með nýja stafræna merkinu og orðmerkinu verri fáni en sá eldri, með eingöngu skjaldarmerkinu. Hann hefur hannað fána fyrir nokkur sveitarfélög og í öllum tilfellum hefur skjöldurinn fengið að njóta sín eða formið í skildinum, enda sé einfaldleikinn bestur. „Þá erum við ekki að troða með heitum eða einhverju svoleiðis,“ segir Hörður í samtali við Morgunblaðið. „Þegar þetta er gert svona er ekki endilega verið að hugsa sérstaklega fyrir því að fánaformið sem slíkt er svo ólíkt öðrum flötum sem þú notar merki á. Fáni er í eðli sínu alltaf á hreyfingu og krumpaður og blaktir í vindinum, þannig að þú þarft að hugsa um það sem þú setur á fána, hvernig hægt er að lesa á þá.“ Þá minnki merki borgarinnar eðlilega til að pláss sé fyrir letrið á fánanum. „Svo nærðu ekkert að lesa letrið. Þetta er rosalega óheppilegt form til þess að sýna merki í rauninni.“ Leyfa skildinum að njóta sín Hörður segir vel hægt að setja byggðamerki fallega á fána. Þá bendir hann á að fánar geti verið í ýmsum hlutföllum, sem gleymist oft. Það þurfi ekki endilega að notast við hið klassíska form eins og við þekkjum á íslenska þjóðfánanum. Það megi leika sér töluvert meira með fánaformið og gera fallegan borgarfána. Þá myndi hann líka vilja sjá að mismunandi útlit á merkinu væri notað á mismunandi stöðum, ekki sama merkið prentað á allt, eins og nú er gert. Það sé þó gert víða, ekki bara hjá Reykjavíkurborg. „Án þess að vita ástæðuna nákvæmlega hjá hverjum og einum, og ef ég tala heilt yfir, þá er þetta ákveðið metnaðarleysi gagnvart útlitinu, að gera ekki meira. Að horfa ekki á hvern hlut og gera eitthvað skemmtilegt.“ Göngubrúin við ráðhúsið sé til að mynda svæði þar sem hægt sé að leika sér meira með fánana. Þar væri hægt að gera ásýndina betri með fallegum borgarfánum þegar fánastangirnar eru ekki nýttar til að flagga af ákveðnu tilefni eins og stundum er gert. „Það sem við erum rosalega feimin við að gera hérna heima, sem Norðurlöndin eru mjög dugleg við að gera, það er að gera greinarmun á hvað er merki borgarinnar og hvað er hægt að gera við merkið í öðru efni. Eins og með skjaldarmerkið, þá er það alltaf notað í þeirri útgáfu sem það er gefið út í. Á meðan það eru til óendanlega margar útgáfur af teikningu á dönsku kórónunni fyrir mismunandi fleti, sem virkar öðruvísi á bréfsefni, fána eða merkingu á bíl. Þetta er klárlega eitthvað sem við ættum að leika okkur meira með. Einfaldast væri að leyfa skildinum að njóta sín á fánafletinum, eins stórum og hann getur.“ Fljót að sjá að reglur vanti Hörður segir líka hægt að leika sér með merki Reykjavíkurborgar, sem sé alltaf auðþekkjanlegt. „Þú gætir tekið elementin úr skildinum, þau eru svo auðþekkjanleg, það myndu allir tengja það strax við borgina. Það væri líka hægt að leika sér og snúa honum við, vera með bláan fána með hvítum skildi. Það eru margar leiðir, þær eru ekkert endilega augljósar, en til þess eru hönnuðir, til að finna leiðir og gera þetta fínt.“ Hægt væri að vera með mismunandi fána sem væru breytilegir eftir árstíðum og jafnvel hátíðarfána til að flagga við sérstök tilefni. „Þegar farið er að flagga alla daga þá hættir það að vera eftirtektarvert eða hátíðlegt. Hvað ætlarðu þá að gera þegar borgin á afmæli eða eitthvað? Ætlarðu þá að vera með öðruvísi fána?“ spyr Hörður. „Sem hönnuður er ég alveg sannfærður um það að það er hægt að gera margt skemmtilegt við fánana. Svona fánar, þegar við erum ekki að tala um þjóðfána, þá á ekki að taka þetta of alvarlega. Borgin gæti búið sér til einhverja fána sem eru sérstaklega hugsaðir fyrir sumarið og eru litríkir og glaðir.“ Þá segir Hörður gott að hafa einhverjar reglur um fána og hvenær á að flagga. Á fyrsta fundi borgarstjórnar í síðustu viku voru nýlega endurskoðaðar reglur um fánanotkun við stjórnsýsluhús borgarinnar felldar úr gildi. Engar reglur verða því í gildi um fánanotkun en stuðst við íslensk fánalög. Þá var samþykkt á fundinum að draga skyldi íslenska fánann að húni daglega við ráðhúsið. „Ég held að þau verði fljót að komast að þeirri niðurstöðu að þau þurfa að hafa einhverjar reglur,“ segir Hörður. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Kanada – Bosnía kl. 19, bein lýsing Brennivín hlaut gullverðlaun í alþjóðlegri keppni Ekki hleypt inn í landið fyrir HM Þverá gaf 25 laxa í opnunarholli Argentínumaðurinn að fá stórt starf Umræðan Höggvið á orkuhnúta, einn af öðrum Réttar forsendur, rangar ályktanir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Kristrún: „Auðvitað mótmælum við óeðlilegum afskiptum“ Skerða um 1% í þorski og 20% í ýsu Samkomulag á lokametrunum Mest lesið Í gær Í vikunni Íhuguðu að kasta sér fram af brú Subway auglýsir verð í evrum Samningnum sagt upp: „Eins og við séum ekki fólk“ Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Réðst á dreng í sundi Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Afþakka risaeðlubein eftir þriggja ára vinnu starfshóps Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Starfsmönnum fjölgað og launakostnaður hækkaði Er upptaka evru ógn við efnahag Íslands? Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Réðst á dreng í sundi Óttast er að hundruð missi vinnuna Íslenskur maður ekki fundið sársauka í 73 ár Lokuðu skrifstofum Hagkaupa eftir alvarlega hótun Dæmið gengur ekki upp Farþegar skildir eftir vegna ölvunar Nýjar íbúðir seljast ekki á ásettu verði Borgarstjóri fagnar stórafmæli í Ráðhúsinu Dró sér 3,3 milljónir vegna leigu á Tenerife Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Um 300 þegar fengið viðvörun Tilbúnir að slást í sundklefunum Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Nýjast á mbl.is » Kanada – Bosnía kl. 19, bein lýsing Brennivín hlaut gullverðlaun í alþjóðlegri keppni Ekki hleypt inn í landið fyrir HM Þverá gaf 25 laxa í opnunarholli Argentínumaðurinn að fá stórt starf Umræðan Höggvið á orkuhnúta, einn af öðrum Réttar forsendur, rangar ályktanir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þrengdi að hálsi fyrrum sambýliskonu sinnar Íbúðaverð hækkaði um 103% á tíu árum Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Mest lesið Í gær Í vikunni Íhuguðu að kasta sér fram af brú Subway auglýsir verð í evrum Samningnum sagt upp: „Eins og við séum ekki fólk“ Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Réðst á dreng í sundi Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Afþakka risaeðlubein eftir þriggja ára vinnu starfshóps Létu lí