Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Íslenski fáninn dreginn að húni við Ráðhúsið

Read Full Article →

Innlent | mbl | 3.6.2026 | 16:50 Íslenski fáninn dreginn að húni við Ráðhúsið Íslenski fáninn blaktir nú við Ráðhús Reykjavíkur. mbl.is/Karítas Sólrún Lilja Ragnarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Þjóðfánar Úkraínu og Palestínu, sem flaggað var um allnokkurt skeið við Ráðhús Reykjavíkur á fánastöngum við Tjarnargötu, hafa verið teknir niður. Þá hefur íslenski fáninn verið dreginn að húni, en hingað til hefur það aðeins verið gert á fánadögum, við opinberar heimsóknir og þegar fundir eru í borgarstjórn. Á fyrsta fundi nýrar borgarstjórnar í gær var samþykkt tillaga meirihlutans um að fella niður nýtilkomnar reglur um notkun fána við stjórnsýsluhús borgarinnar. Einnig var samþykkt að íslenski fáninn yrði daglega dreginn að húni. Frétt af mbl.is Vilja fella úr gildi nýsamþykktar fánareglur Táknrænar breytingar Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur, hefur viðurkennt að tillagan hafi verið táknræn. Hún vilji að íslenski fáninn blakti daglega við ráðhúsið í stað þess að erlendir þjóðfánar séu dregnir þar að húni í pólitísku samhengi. Reykjavík hafi ekki sjálfstæða utanríkisstefnu og borgin eigi fyrst og fremst að sinna raunverulegum verkefnum fyrir borgarbúa. Bæði Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar og nýr forseti borgarstjórnar, og Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar og nýr formaður borgarráðs, hafa tekið í sama streng. Sagði Björg í færslu á Facebook um helgina að flókið og tímafrekt væri að draga línuna hvaða erlendu fánum ætti að flagga, hvenær og hversu lengi. Þá sagði Einar í samtali við mbl.is í gær að um pólitíska yfirlýsingu væri að ræða, um að vera ekki að sóa tíma kjörinna fulltrúa í Reykjavík í langdregnar umræður um alþjóðamál sem þeir væru ekki kosnir til að taka afstöðu til. Frétt af mbl.is Palestínska fánanum flaggað við ráðhúsið Palestínski fáninn dreginn að húni Reglurnar sem í gær var samþykkt var að fella úr gildi voru samþykktar á fundi forsætisnefndar Reykjavíkurborgar þann 17. apríl. Tilgangur endurskoðunar á reglunum var meðal annars að setja viðmið um hversu lengi fánar skuli blakta við stjórnsýsluhús og til að tryggja að auðveldara væri fyrir kjörna fulltrúa að sýna þjóðum og íbúum samstöðu þegar það á við, eins og segir í bréfi skrifstofu borgarstjórnar til forsætisnefndar þann 13. apríl síðastliðinn. Farið var í endurskoðun á reglunum í kjölfar þess að samþykkt var í borgarráði í júní síðastliðnum að draga palestínska fánann að húni við hlið þess úkraínska. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Svíinn ráðinn í brúna í Noregi Íslenski fáninn dreginn að húni við Ráðhúsið Oculis sótti í sig veðrið síðdegis Lán í óláni Ásgeir: „Sjaldan verið meiri óvissa“ Umræðan 200 mílurnar mótuðu hagsæld þjóðarinnar Með 5% hlutdeild í einum alþingismanni Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Íslenski fáninn dreginn að húni við Ráðhúsið „Þó að einn fótboltaleikur sé búinn þá byrjar annar“ Tuttugu ára tilmæli til ráðuneytisins enn í gildi Seðlabankastjóri gagnrýnir skýrsluna Mest lesið Í gær Í vikunni Áslaug Arna hættir á Alþingi Íslendings saknað á Taílandi Andlát: Steingrímur Ari Arason Þota Icelandair föst á Tenerife eftir árekstur Tekist á um hvort hundur megi drekka úr vatnshana Hegðunar- og agavandamál áberandi Í tísku að fara í sund í nærbuxunum Fjárdráttur upp á 12,5 milljónir til rannsóknar Hefur greinilega farið úrskeiðis löngu áður Fara í vegagerð vegna sólmyrkvans Andlát: Margrét Jónsdóttir Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Mennirnir ekki tengdir fjölskylduböndum „Reta er bara Ozempic á sterum“ Segir lyfin geta dregið fólk til dauða Stefna að upptöku evru „Skelfilega erfið mál“ Í tísku að fara í sund í nærbuxunum Tveir skólar sameinast í haust Vilja grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Andlát: Margrét Jónsdóttir Áslaug Arna hættir á Alþingi Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Nýjast á mbl.is » Svíinn ráðinn í brúna í Noregi Íslenski fáninn dreginn að húni við Ráðhúsið Oculis sótti í sig veðrið síðdegis Lán í óláni Ásgeir: „Sjaldan verið meiri óvissa“ Umræðan 200 mílurnar mótuðu hagsæld þjóðarinnar Með 5% hlutdeild í einum alþingismanni Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Stjórnin „gjörsamlega að taka þetta mjög alvarlega“ Flytja fanga úr landi og losa um tugi rýma Stefna að upptöku evru Frederiksen heldur áfram um stjórnartaumana Mest lesið Í gær Í vikunni Áslaug Arna hættir á Alþingi Íslendings saknað á Taílandi Andlát: Steingrímur Ari Arason Þota Icelandair föst á Tenerife eftir árekstur Tekist á um hvort hundur megi drekka úr vatnshana Hegðunar- og agavandamál áberandi Í tísku að fara í sund í nærbuxunum Fjárdráttur upp á 12,5 milljónir til rannsóknar Hefur greinilega farið úrskeiðis löngu áður Fara í vegagerð vegna sólmyrkvans Andlát: Margrét Jónsdóttir Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Mennirnir ekki tengdir fjölskylduböndum „Reta er bara Ozempic á sterum“ Segir lyfin geta dregið fólk til dauða Stefna að upptöku evru „Skelfilega erfið mál“ Í tísku að fara í sund í nærbuxunum Tveir skólar sameinast í haust Vilja grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Andlát: Margrét Jónsdóttir Áslaug Arna hættir á Alþingi Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað

Share this article