Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Vilja fella úr gildi nýsamþykktar fánareglur

Read Full Article →

Innlent | mbl | 2.6.2026 | 11:56 Vilja fella úr gildi nýsamþykktar fánareglur Fánar Úkraínu og Palestínu verða væntanlega teknir niður fljótlega. mbl.is/Eggert Jóhannesson Sólrún Lilja Ragnarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar í Reykjavík í borgarstjórn hefur lagt til að felldar verði niður nýsamþykktar reglur um notkun fána við stjórnsýsluhús Reykjavíkurborgar. Er um að ræða eina af tólf tillögum meirihlutans sem lagðar verða fram á fyrsta fundi nýrrar borgarstjórnar í dag. Í tillögunni er jafnframt lagt til að borgarstjórn samþykki að íslenski fáninn verði dreginn að húni daglega við Ráðhús Reykjavíkur, en nú er hann aðeins dreginn að húni á fánadögum, við opinberar móttökur og þegar fundir eru í borgarstjórn Reykjavíkur. Reglurnar sem nú verða felldar úr gildi voru samþykktar á fundi forsætisnefndar Reykjavíkurborgar þann 17. apríl síðastliðinn. Tilgangur endurskoðunar á reglunum var meðal annars að setja viðmið um hversu lengi fánar skuli blakta við stjórnsýsluhús og til að tryggja að auðveldara væri fyrir kjörna fulltrúa til að sýna þjóðum og íbúum samstöðu þegar það á við, eins og segir í bréfi skrifstofu borgarstjórnar til forsætisnefndar þann 13. apríl síðastliðinn. Fánum Úkraínu og Palestínu hefur til að mynda verið flaggað við Ráðhús Reykjavíkur á fánastöngum við Tjarnargötu um allnokkurt skeið. Þá hafa hinsegin fánar verið dregnir að húni á göngubrú vestan megin við Ráðhúsið á ákveðnum dögum til að sýna samstöðu. Frétt af mbl.is Breyta fánareglum Reykjavíkurborgar Engar reglur í gildi Tillaga meirihlutans sem væntanlega verður samþykkt síðar í dag felur aðeins í sé að hinar nýsamþykktu reglur verði felldar úr gildi. Virðast því engar sérstakar reglur eiga gilda um fána við stjórnsýsluhús Reykjavíkur en stuðst verður við lög um þjóðfána Íslendinga, eins og fram kemur í tillögunni. Ljóst er að skiptar skoðanir eru á málinu innan borgarstjórnar og leiða má því líkur að því að heitar umræður skapist í dag þegar tillagan verður lögð fram. Hildur Björnsdóttir, sem tekur við embætti borgarstjóra Reykjavíkur í dag, viðurkennir í Dagmálum í Morgunblaðinu í dag að tillagan sé táknræn. Hún segist vilja að íslenski fáninn blakti daglega við ráðhúsið í stað þess að erlendir þjóðfánar séu dregnir að húni í pólitísku samhengi. Reykjavík hafi ekki sjálfstæða utanríkisstefnu og borgin eigi fyrst og fremst að sinna raunverulegum verkefnum fyrir borgarbúa. Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, verður borgarstjóri Reykjavíkur, Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar, verður formaður borgarráðs og Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar, forseti borgarstjórnar mbl.is/Eggert Jóhannesson Hússtjórn setji mögulega reglur Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar sem verður forseti borgarstjórnar, sagði í færslu á Facebook-síðu sinni um helgina að það væri bæði táknrænt og fallegt að sýna samstöðu með því að flagga erlendum þjóðfánum en það missti marks þegar borgarstjórn fengi heimsmálin í fangið. Flókið og tímafrekt væri að draga línuna um hvaða erlendu fánum ætti að flagga, hvenær og hversu lengi. Benti hún á að utanríkismálum væri sinnt í utanríkisráðuneytinu. Björg tók það sérstaklega fram í færslu sinni að með tillögunni væri ekki verið að banna flöggun á fánanum, líkt og gert hefur verið á ákveðnum dögum, eins og minningardögum og á pride-hátíðinni. Þegar mbl.is spurði hvort hún væri sammála Hildi um að ekki ætti að draga erlenda fána að húni við ráðhúsið vísaði hún í færsluna og vildi ekki tjá sig um það frekar. Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar sem verður formaður borgarráðs, segir einfaldlega verið að taka utanríkismálin af dagskrá borgarstjórnar, enda sé ekki kosið um þau á vettvangi sveitarstjórna. Svo geti í framhaldinu verið að hússtjórn ráðhússins sjái fyrir sér að setja innanhússreglur um fánanotkun. „Það er einfalt úrlausnaratriði að fá sérstakan ramma um það,“ segir Einar í samtali við mbl.is. „Aðalatriðið er að þetta er pólitísk yfirlýsing um að við eigum að beina kröftum borgarstjórnar í að ræða um það að veita góða þjónustu og mæta þörfum borgarbúa en ekki vera að sóa tíma kjörinna fulltrúa í Reykjavík í langdregnar umræður um alþjóðamál sem við erum ekki kosin til þess að hérna að taka afstöðu til.“ Frétt af mbl.is Palestínska fánanum flaggað við ráðhúsið Palestínski fáninn dreginn að húni Endurskoðun á reglum um fánanotkun átti sér nokkurra mánaða aðdraganda. Það var á fundi borgarráðs þann 26. júní síðastliðinn sem meirihlutinn samþykkti að palestínski fáninn yrði dreginn að húni við ráðhúsið við hlið úkraínska fánans, sem áður hafði verið samþykkt að draga að húni. Í kjölfarið var forsætisnefnd falið að endurskoða reglur um notkun fána við stjórnsýsluhús borgarinnar. Á fundi 29. ágúst samþykkti forsætisnefnd að hefja endurskoðun á fánareglunum og fól viðburðastjórn Ráðhúss Reykjavíkur að gera tillögu að breytingum á reglunum. Þær voru svo samþykktar þann 17. apríl með þremur atkvæðum fulltrúa Samfylkingar, Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins gegn einu atkvæði fulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Fulltrúi Framsóknarflokks sat hjá við afgreiðslu málsins. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins og áheyrnarfulltrúi Viðreisnar lögðu fram bókun þar sem fram kom að Reykjavíkurborg ætti ekki að taka afstöðu í erlendum deilum eftir hentisemi borgarstjórnarmeirihlutans hverju sinni. Ólíkt Alþingi reki Reykjavíkurborg hvorki utanríkisráðuneyti né utanríkismálanefnd og búi ekki yfir þeim faglegu innviðum sem þurfa að liggja fyrir þegar höfuðborg Íslands tekur opinbera afstöðu með eða gegn erlendum þjóðríkjum, segir meðal annars í bókuninni. Frétt af mbl.is Öryggisgæsla aukin í ráðhúsinu Mismunandi reglur við hvert hús Stjórnsýsluhús Reykjavíkur, þar sem reglur um fána hafa verið í gildi, eru fjögur. Fyrir utan Ráðhúsið eru það Höfði, Höfðatorg við Borgartún 8-16a og skrifstofur við Tjarnargötu 12. Mismunandi reglur hafa verið í gildi um fána við hvert og eitt hús. Og við Ráðhúsið, þar sem fánasvæðin eru þrjú, hafa verið í gildi mismunandi reglur fyrir hvert svæði. Tvær fánastangir eru á horni Tjarnargötu og Vonarstrætis en samkvæmt reglunum sem samþykktar voru í apríl átti að flagga þar fána Reykjavíkurborgar þá daga sem Ráðhúsið er opið almenningi. Íslenska fánanum átti að flagga á öllum fánadögum, þegar fundir eru í borgarstjórn og við opinberar athafnir. Tekið er fram í reglunum að heimilt sé að láta fána Reykjavíkur víkja fyrir öðrum þjóðfána, gerist þess þörf. Einnig eru tvær fánastangir við inngang að Ráðhúsinu við Tjarnargötu þar sem flagga átti tveimur fánum Reykjavíkurborgar, þjóðfána og fána borgarinnar á fánadögum. Frétt af mbl.is Skorið á böndin á fánum Úkraínu og Palestínu Á göngubrú vestan megin við Ráðhúsið eru átta fánastangir. Þar átti, samkvæmt reglunum, sem nú hafa verið felldar niður, að vera heimilt að flagga þjóðfánum, fána Reykjavíkurborgar eða fánum er varða málefni og viðburði tengdum Reykjavíkurborg, eins og til dæmis Vetrarhátíð. Í reglunum var þó tekið fram að borgarráð gæti samþykkt að flagga þjóðfánum annarra ríkja í samstöðuskyni. En það átti að gera á fánastöngum við Tjarnargötu, líkt og gert hefur verið með fána Palestínu og Úkraínu. Átti þá að flagga í þrjá mánuði í senn, nema borgarráð tæki ákvörðun um annað. Þá segir í reglunum að borgarráð geti samþykkt að flagga þjóðfánum annarra ríkja í samstöðuskyni og skuli það gert á fánastöngum við Tjarnargötu. Í slíkum tilvikum skuli flöggun vera í þrjá mánuði í senn, nema borgarráð ákveði önnur tímamörk. Fánar Reykjavíkuborgar eru nú dregnir að húni á göngubrú við ráðhúsið, en þar er hinsegin fánum flaggað á ákveðnum dögum. mbl.is/Eggert Jóhannesson Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Vilja fella úr gildi nýsamþykktar fánareglur Stytt verði um 6 mánuði í stað 12 Innbrot í Reykjabú: „Ekki dýravelferð að haga sér svona“ Plága fyrir NBA-deildina Fjórir særðir eftir árásir bjarnar Umræðan Af hverju er ESB svona vinsælt? Krónan kostar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Þarna stóð ég og gat ekki annað“ Skjálftinn fannst víða Vilja grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar Orðskýringarnar orðnar óskiljanlegar Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Margrét Jónsdóttir Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Mennirnir ekki tengdir fjölskylduböndum „Reta er bara Ozempic á sterum“ Segir lyfin geta dregið fólk til dauða Vilja grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar Tveir skólar sameinast í haust Markaðsvirði Oculis hrynur Skýrt umboð til breytinga „Það eru ansi margar spurningar sem vakna“ Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Braut gegn stúlku sem lá á bráðamóttöku Mótmælendur öskruðu og blístruðu á þingheim Flugi Icelandair aflýst vegna mönnunarvanda Jafnlaunavottun lögð niður Kort: Hrinan á svæði þar sem líkur eru á gosupptökum „Ætlaði aldrei að eignast nýja vini“ Útskýring fengin á lágfluginu Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Nýjast á mbl.is » Vilja fella úr gildi nýsamþykktar fánareglur Stytt verði um 6 mánuði í stað 12 Innbrot í Reykjabú: „Ekki dýravelferð að haga sér svona“ Plága fyrir NBA-deildina Fjórir særðir eftir árásir bjarnar Umræðan Af hverju er ESB svona vinsælt? Krónan kostar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gervigreindin eyðileggur fyrir lestri Njálu Ógnar íslensku atvinnulífi Skjálftinn fannst víða Engin töfralausn til í gjaldmiðlamálum Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Margrét Jónsdóttir Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Mennirnir ekki tengdir fjölskylduböndum „Reta er bara Ozempic á sterum“ Segir lyfin geta dregið fólk til dauða Vilja grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar Tveir skólar sameinast í haust Markaðsvirði Oculi

Share this article