Security News

Cybersecurity news aggregator

HIGH Attacks RÚV

Íranar segjast hafa lokað Hormússundi

This article describes a geopolitical conflict scenario, not a technical software vulnerability. It details military actions including attacks on shipping in the Strait of Hormuz and cyber operations, but does not contain information on a specific CVE, CVSS score, affected software versions, patches, or technical workarounds.
Read Full Article →

SAMANTEKT Stríð í Mið-Austurlöndum Ólík skilaboð um friðarsamning frá Íran og Bandaríkjunum Íranar og Bandaríkjamenn héldu árásum sínum áfram í gærkvöld og í nótt. Skotið hefur verið á skip á Hormússundi. Íranar segjast hafa lokað alfarið fyrir skipaumferð. Utanríkisráðuneyti Írans segir að samningaviðræður séu nánast þýðingarlausar meðan á árásum Bandaríkjanna standi. Kínverjar hvetja ríkin til að hætta árásum strax og semja um varanlegt vopnahlé. Ísraelsher hefur ráðist inn í bæi í suðurhluta Sýrlands. Bandaríkjaforseti hótaði hörðum árásum í kvöld og sagðist meðal annars vilja taka yfir Kharg-eyju en dró síðar í land. Hann sagði sátt hafa náðst milli Bandaríkjanna og Íran – samkomulag yrði líklega undirritað í Evrópu á næstu dögum. Írönsk stjórnvöld sögðu hins vegar að engin lokaákvörðun hefði verið tekin um samkomulag við Bandaríkin. Sex hið minnsta voru drepnir í árásum Ísraelshers í og við Týros í Líbanon í dag. Brynjólfur Þór Guðmundsson, Mist Þormóðsdóttir Grönvold og Hugrún Hannesdóttir Diego 11. júní 2026 kl. 08:42, uppfært 12. júní 2026 kl. 01:35 A A A Donald Trump Bandaríkjaforseti. EPA – AARON SCHWARTZ / POOL 12. júní 2026 kl. 1:30 Fréttavakt lokið í bili Við ætlum að segja þessari fréttavakt lokið og tökum því saman það helsta frá deginum: Fyrir hádegi hótaði Donald Trump Bandaríkjaforseti hörðum árásum á Íran. Hann dró síðar í land og sagði það vera vegna góðs árangurs við samningaborðið. Hann fullyrti í dag að sátt hefði náðst milli Bandaríkjanna og Íran. Hann sagði að meint samkomulag þeirra yrði líklega undirritað í Evrópu – jafnvel um helgina. Trump sagðist telja að æðstiklerkur Írans hefði samþykkt samkomulagið. Samkvæmt yfirlýsingu Trumps standa eftirfarandi ríki að samkomulaginu: Bandaríkin, Ísrael, Sádi Arabía, Sameinuðu arabísku furstadæmin, Katar, Tyrkland, Pakistan, Barein, Kúveit, Jórdanía, Egyptaland „og fleiri ríki“. Talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins sagði stjórnvöld þar ekki hafa tekið lokaákvörðun um samkomulag við Bandaríkin. Því þyrfti að taka yfirlýsingum Trumps með fyrirvara. Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels sagði í yfirlýsingu að Ísrael ætti ekki aðild að sátt Bandaríkjanna og Írans sem hann kallaði eins konar gagnkvæma viljayfirlýsingu en ekki samkomulag. Hann hefði fengið fullvissu um að sáttin fæli í sér að Íranar láti af hendi auðgað úran og samþykki að draga úr vopnaframleiðslu. Árásir Ísraelshers á Líbanon héldu áfram í dag. Sex hið minnsta fórust í árásum hersins á hafnarborgina Týros. Sprengingar heyrðust við suðurströnd Írans í kvöld. Liðsmenn íranska byltingarvarðarins segja ríkismiðlum að herinn hafi skotið varúðarskotum að olíuflutningaskipi sem var á leið um Hormússund. Áhöfn skipsins hafi hlýtt fyrirmælum Íranshers í kjölfarið. Við sláum nú botninn í þessa fréttavakt og þökkum samfylgdina. 11. júní 2026 kl. 23:36 Sprengingar í suðurhluta Írans Sprengingar heyrðust við strendur Sirik í suðurhluta Írans, samkvæmt fréttum ríkisrekins fjölmiðils landsins, IRIB. Að sögn IRIB tengjast sprengingarnar átökum milli íranska sjóhersins og olíuskips sem reyndi að sigla um Hormússund og fór því gegn flutningsbanninu. 11. júní 2026 kl. 22:25 Trump og Netanjahú ræddu meint samkomulag við Íran Skrifstofa Benjamíns Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, segir í yfirlýsingu að ísraelsk stjórnvöld séu ekki aðili að meintu samkomulagi Bandaríkjanna og Íran. Trump fullyrðir að sátt hafi náðst og að samkomulag verði undirritað fljótlega. Í yfirlýsingu skrifstofu Netanjahús er sáttin hins vegar ekki kölluð samkomulag heldur eins konar gagnkvæm viljayfirlýsing. Netanjahú er sagður hafa rætt við Trump í kvöld og fengið fullvissun um að lokasamkomulega feli í sér að Íranir láti af hendi auðgað úran og samþykki að draga úr vopnaframleiðslu. Írönsk stjórnvöld segja enga niðurstöðu liggja fyrir um samkomulag við Bandaríkin. 11. júní 2026 kl. 21:24 Íranar segja enga ákvörðun liggja fyrir Talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins segir írönsk stjórnvöld ekki hafa tekið lokaákvörðun um samkomulag við Bandaríkin. Hann sagði að Íran myndi ekki gera málamiðlanir um „rauðar línur“ í viðræðunum. Trump fullyrti fyrr í kvöld að sátt hefði náðst milli ríkjanna og að samkomulag yrði líklega undirritað í Evrópu á næstu dögum – jafnvel um helgina. Hann sagði að hann myndi ekki sjálfur undirritað að heldur yrði J.D. Vance varaforseti fulltrúi Bandaríkjanna. 11. júní 2026 kl. 20:35 Útför Alis Khamenei frestað aftur Útför Alis Khamenei, fyrrum æðstaklersk Írans sem féll í árásum Bandaríkjanna og Ísrael í febrúar, hefur verið frestað. Þetta segir borgarstjóri Tehran. Til stóð að Khamenei yrði borinn til grafar í byrjun júní en hún verður þess í stað haldin í kringum mánaðamótin. Þetta er ekki í fyrst sinn sem útförinni er frestað. Hún átti upphaflega að vera í mars en var frestað vegna stríðsins. 11. júní 2026 kl. 20:28 Ætla ekki að taka yfir Kharg-eyju Ef samkomulag verður undirritað milli Bandaríkjanna og Íran ætla Bandaríkin ekki að taka yfir Kharg-eyju, segir Trump. Hann birti færslu á Truth Social í dag þar sem hann sagði að Bandaríkin ætluðu að taka yfir hana í náinni framtíð. Hann sagðist einnig telja að æðstiklerkur Írans hefði samþykkt meint samkomulag en írönsk stjórnvöld hafa ekki sent frá sér yfirlýsingu eða brugðist við fullyrðingum Trumps. 11. júní 2026 kl. 19:52 – uppfært Íranar muni aldrei að eiga kjarnorkuvopn Trump segir meint samkomulag við Írana fela í sér skilyrði varðandi kjarnorkuáætlun Írana. „Íranar munu aldrei eiga kjarnorkuvopn, það er allur tilgangurinn með því sem við þurftum að ganga í gegnum til að ná þessu,“ sagði hann við blaðamenn í Hvíta húsinu. Hormússund verði opnað um leið og samkomulagið hafi verið undirritað. Undirritun verði líklega í Evrópu og jafnvel um helgina. Írönsk stjórnvöld hafa ekki gefið frá sér yfirlýsingu um samkomulag né brugðist við þessum fullyrðingum Trumps. 11. júní 2026 kl. 19:44 Trump segir samkomulag liggja fyrir á næstu dögum Trump segir að Bandaríkin hafi náð sátt við Írana og að hann eigi von á að hún verði undirrituð á næstu dögum. Þetta sagði hann við blaðamenn í Hvíta húsinu. Undirritunin verði líklega í Evrópu. 11. júní 2026 kl. 19:19 Segja engan samning vera á borðinu Heimildir íranska ríkismiðilsins Fars herma að enginn samningstexti sé á samningaborðinu Fars vísar í heimildarmenn tengdum samninganefnd Írana. Trump sagði í færslu sinni að hann hefði afstýrt þungum árásum sem hann hótaði fyrr í dag vegna þess að góður gangur væri í viðræðum og að báðar hliðar væru sáttar við helstu atriði í viðræðunum. 11. júní 2026 kl. 18:17 – uppfært Trump dregur í land Donald Trump Bandaríkjaforseti er hættur við að ráðast á Íran af fullum þunga í kvöld eins og hann boðaði fyrir nokkrum klukkustundum. Í færslu á samfélagsmiðlinum Truth Socal í dag sagði Trump að Bandaríkin hefðu í hyggju að taka yfir Kharg-eyju á næstunni, ásamt öðrum olíuinnviðum Írans. Kharg-eyja er meiriháttar olíuvinnslueyja undan ströndum Írans. Trump dró síðar í land og sagðist efast um að Bandaríkjamenn treystu sér til að taka yfir eyjuna. Nú á sjötta tímanum tilkynnti hann aftur á sama miðli að árásunum væri aflýst vegna þess hve vel viðræður við Íran gengju. Árásir Bandaríkjanna á Íran héldu áfram í nótt. Í þeim var meðal annars ráðist á þrjú flutningaskip á Óman-flóa með þeim afleiðingum að þrír indverskir sjómenn létu lífið. Íranar hafa varað við því að vopnahléð milli þeirra og Bandaríkjanna hafi litla þýðingu í ljósi átakanna síðustu sólarhringa. Fulltrúar fjölda ríkja og ríkjabandalaga hafa varað við áframhaldandi stigmögnun og þrýst á ríkin að ná samkomulagi um endalok stríðsins sem allra fyrst. Skjáskot / Truth Social @realDonaldTrump 11. júní 2026 kl. 16:06 – uppfært Segir viðbúnað Írana á Kharg-eyju á hæsta stigi Yfirvöld í Íran hóta kröftugum hefndaraðgerðum ef Bandaríkin fylgja eftir fyrirætlunum sínum um að taka yfir Kharg-eyju. Bandarísk stjórnvöld hafa sagt eyjuna vera „tengingu fyrir allt olíuframboð Írans“. Ebrahi Azizi, yfirmaður þjóðaröryggis- og utanríkisstefnunefndar íranska þingsins, lýsti Donald Trump Bandaríkjaforseta sem „rugluðum og óstöðugum“ í samtali við íranska fjölmiðla í dag. Azizi sagði Írana vera að fullu undirbúna fyrir mögulega atlögu Bandaríkjamanna að eyjunni. Hann sagði viðbúnaðarstig herafla Írans í hámarki á Kharg-eyju. „Herafli okkar er reiðubúinn, með allan sinn styrk og alla sína getu,“ sagði Azizi. 11. júní 2026 kl. 15:53 Indversk stjórnvöld harmi slegin yfir dauða sjómannanna þriggja Stjórnvöld á Indlandi funduðu í dag með Jason Meeks, varasendiherra Bandaríkjanna í Nýju Delí. Tilgangur fundarins var að mótmæla aðgerðum Bandaríkjanna sem leiddu til dauða þriggja indverskra sjómanna á olíuflutningaskipinu Settebello við strendur Óman í gær. Mennirnir þrír, sem nú hafa verið nafngreindir, gegndu ólíkum hlutverkum á skipinu. Aditya Sharma var skipstjórnarnemi, Shivanand Chaurasia var vélsmiður og Patnala Suresh starfaði sem yfirverkfræðingur. Skipamálaráðherra Indlands segir dauða sjómannanna þriggja vera tjón sem ómögulegt verður að laga. Hann kveðst vera afar hryggur yfir atvikinu sem sé „hörmulegt.“ Ráðherrann segir að lík mannanna þriggja verði send aftur til Indlands við fyrsta tækifæri. EPA / DIVYAKANT SOLANKI 11. júní 2026 kl. 15:03 Hezbollah-samtökin segjast hafa grandað ísraelskum dróna nærri Líbanon Hezbollah-samtökin segjast hafa skotið niður dróna ísraelska hersins nærri Bekaa-dalnum í austurhluta Líbanon í dag. Þetta staðfesta ríkisfjölmiðlar í Líbanon. Fyrr í dag gerði Ísraelsher loftárás nærri sjúkrahúsi í borginni Týros í suðurhluta landsins. 11. júní 2026 kl. 14:15 Einn lést í loftárás Ísraelshers nærri sjúkrahúsi í Líbanon Einn lést og 17 særðust þegar Ísraelsher gerði loftárás nærri sjúkrahúsi í Týros í dag. Samkvæmt líbönskum fjölmiðlum hafnaði loftskeyti Ísraelshers á íbúðahúsnæði nálægt sjúkrahúsi í borginni Týros í suðurhluta Líbanons. Tíu starfsmenn sjúkrahússins særðust, þar á meðal hjúkrunarfræðingar sem urðu fyrir glerbrotum og braki sprengingarinnar. Þá urðu einnig skemmdir á bráðamóttöku sjúk

Share this article