Security News

Cybersecurity news aggregator

HIGH Attacks RÚV

Æðsti yfirmaður íranska sjóhersins sagður veginn í loftárás

This article describes a kinetic military threat, not a software vulnerability, detailing a targeted airstrike by the Israeli military that killed senior Iranian Revolutionary Guard naval commanders, including Alireza Tangsiri. The attack vector involved coordinated airstrikes against naval assets and leadership, part of an ongoing conflict campaign that has included strikes on Iranian ships equipped with missile systems. The report also covers geopolitical tensions, including alleged Russian drone shipments to Iran and intelligence sharing, which represent broader regional security threats.
Read Full Article →

Israel Katz, varnarmálaráðherra Ísraels, segir að Alireza Tangsiri æðsti yfirmaður sjóhers íranska byltingarvarðarins hafi ásamt fleiri háttsettum liðsforingjum verið drepinn í skipulagðri loftárás í gærkvöld. Katz segir Tangsiri bera ábyrgð á lokun Hormússunds og að hafa komið þar fyrir djúpsprengjum. Ísraelar hafa frá upphafi styrjaldarinnar meðal annars drepið æðsta leiðtogann Ali Khamenei og Ali Larijani, yfirmann öryggisráðsins. Ísraelsher hefur undanfarna viku grandað fjölda íranskra herskipa, meðal annars skipum búnum eldflaugaskotbúnaði. Stjórnvöld í Kreml segja af og frá að skipsfarmur af árásardrónum sé rétt ófarinn til Írans. Fréttir Financial Times þess efnis séu uppspuni. „Ekki taka mark á þessu,“ sagði Dmitry Peskov, talsmaður Rússlandsstjórnar, í svari við fyrirspurn AFP-fréttaveitunnar. Blaðið hafði þetta eftir vestrænum leyniþjónustumönnum á miðvikudag, sem sögðu drónana væntanlega til Írans fyrir mánaðamót. Rússar hafa frá upphafi stríðsins þvertekið fyrir alla njósna- og hernaðaraðstoð við Írana, þrátt fyrir að ríkin séu nánir samherjar. Fyrr í mars sögðu bandarískir fjölmiðlar Rússa hafa veitt Írönum viðkvæmar upplýsingar á borð við staðsetningar bandarískra herskipa og -flugvéla í Mið-Austurlöndum.

Share this article