Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Utan­lands­ferðum Ís­lendinga fækkaði um 11%

  • What: Decline in Icelandic outbound travel
  • Impact: Tourism and travel industry trends
Read Full Article →

Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll námu um 164 þúsund í maí samkvæmt mælingum Ferðamálastofu sem er 0,4% aukning frá sama mánuði í fyrra. Í lok maí höfðu um 734 þúsund erlendir farþegar farið frá Íslandi, álíka margir og á sama tíma í fyrra, að því segir í frétt á vef Ferðamálastofu . Brottfarir Íslendinga voru um 59 þúsund í maí, 11% færri en í sama mánuði árið áður. Frá áramótum hafa Íslendingar farið um 248 þúsund utanlandsferðir, sem er 14,5% fækkun miðað við sama tímabil í fyrra. Um 52 þúsund Bandaríkjamenn fóru frá landinu í maí, sem samsvarar 31,8% allra brottfara erlendra farþega, en fjöldinn var nær óbreyttur frá sama mánuði í fyrra. Bretar voru næst fjölmennastir, um 12 þúsund talsins, 3,6% færri en í fyrra. Þjóðverjar voru þriðja fjölmennasta þjóðernið með um 10 þúsund brottfarir, einnig 3,6% færri en í maí í fyrra.

Share this article