- What: Icelandair reports record passenger numbers in May
- Impact: 464,000 passengers traveled with the airline
Icelandair flutti 464 þúsund farþega í maí, sem er fjögurra prósenta fjölgun frá sama mánuði í fyrra. Sætanýting félagsins var 83 prósent og jókst um 3,4 prósentustig á milli ára. Hún hefur ekki áður verið hærri í maímánuði hjá félaginu. Farþegum á leið til Íslands fjölgaði um átta prósent milli ára og farþegum frá Íslandi fjölgaði um 24 prósent. Icelandair segir þróunina vera í takt við áherslu félagsins á þessa markaði, sem skili nú hærri einingatekjum. Af farþegum félagsins í maí voru 30 prósent á leið til Íslands, 19 prósent á leið frá Íslandi, 45 prósent voru tengifarþegar og fimm prósent ferðuðust innanlands. Framboð félagsins, mælt í sætiskílómetrum, dróst saman um tvö prósent milli ára en farþegaumferð, mæld í tekjufarþegakílómetrum, jókst um tvö prósent. Á sama tíma hækkaði ávöxtun á hvern farþegakílómetra, eða yield, um fjögur prósent og nam 8,92 bandarískum sentum. Á fyrstu fimm mánuðum ársins hefur Icelandair flutt tæplega 1,8 milljónir farþega, sem er níu prósenta fjölgun frá sama tímabili í fyrra. Sætanýting á tímabilinu var 81,4 prósent, samanborið við 80,2 prósent á sama tíma í fyrra. Stundvísi félagsins var 82,3 prósent í maí og dróst saman um 1,8 prósentustig milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um tvö prósent en fraktflutningar, mældir í tonnkílómetrum, jukust um fjögur prósent. Kolefnislosun á hvern tonnkílómetra dróst saman um átta prósent milli ára. Icelandair segir það skýrast af aukinni nýtingu sparneytnari flugvéla, áframhaldandi umbótum í rekstri og hárri sætanýtingu. „Eftirspurn var sterk í maí sem endurspeglast í metsætanýtingu og áframhaldandi vexti á mörkuðunum til og frá Íslandi,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair. Hann segir maí jafnan vera krefjandi upptakt að sumaráætlun félagsins og að góð sætanýting endurspegli árangur í því að fanga eftirspurn og samhæfa áætlunina að mörkuðum í aðdraganda háannatímans. „Við höfum brugðist við áframhaldandi háu eldsneytisverði með því að aðlaga framboð og leggja áherslu á aðgerðir til þess að auka skilvirkni, meðal annars með því að flýta endurnýjun flugflotans eins og áður hefur verið tilkynnt um,“ segir Bogi. Tölurnar birtast á sama tíma og kjaraviðræður Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna hafa verið í brennidepli. Fjölmiðlar greindu um helgina frá því að viðræðurnar væru áfram í höndum ríkissáttasemjara og að Icelandair hefði kynnt nýjar tillögur sem samninganefnd flugmanna hefur til skoðunar. Kjaramálin hafa verið talin mikilvæg fyrir rekstrarhorfur félagsins, ekki síst í ljósi áherslu Icelandair á að bæta skilvirkni og samkeppnishæfni rekstrarins. Umræðan hefur meðal annars snúist um sveigjanleika, mönnun og möguleika félagsins til að bregðast við mikilli eftirspurn á háannatíma. Bogi segir félagið einnig hafa fengið góðar viðtökur við nýju flugi til Feneyja, sem hófst í maí. Þá nefnir hann markaðsherferð Icelandair þar sem auglýst var eftir „versta ljósmyndara í heimi“ til að kynna Ísland sem áfangastað. Sjá einnig Icelandair hefur valið „versta ljósmyndara heims“ „Viðbrögðin fóru fram úr væntingum en við fengum tæplega 130 þúsund umsóknir frá 178 löndum. Ljósmyndarinn sem varð fyrir valinu mun hjálpa okkur að sanna þá kenningu okkar að það sé nánast ómögulegt að taka slæma ljósmynd af íslenskri náttúru,“ segir Bogi.