Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ísland enn friðsælasta land í heimi

Read Full Article →

Ísland trónir enn á toppi lista áströlsku stofnunarinnar Institute for Economics and Peace (IEP) sem friðsælasta land í heimi. Stofnunin hefur gefið út heimsfriðarstuðul sinn, Global Peace Index, frá árinu 2007. Ísland hefur allt frá 2008 verið hæst á lista og er þetta því nítjánda árið í röð sem IEP útnefnir Ísland sem friðsælasta land í heimi. Heimsfriðarstuðullinn nær til 163 landa og 99,7% jarðarbúa og er byggður á 23 vísum á þremur sviðum, þ.e. samfélagslegu öryggi, átökum bæði innanlands og erlendis og vígbúnaðarstigi. Samkvæmt skýrslu IEP hefur dregið úr friðsæld í heiminum síðan árið 2025 og búa íbúar 119 landa við minni friðsæld núna heldur en árið 2008. Lokaeinkunn Íslands í úttektinni var 1,161 en gefin er einkunn á bilinu 1 til 5. Því lægri einkunn, því meiri friðsæld. Í skýrslunni segir að rekja megi niðurstöðuna til herleysis Íslands, lágrar glæpatíðni og mikillar samfélagslegrar samheldni. Friðsæld jókst mest í Póllandi Næstu sæti á listanum skipa Nýja Sjáland, Sviss, Slóvenía og Írland. Neðsta sætið skipar Rússland, annað árið í röð. Friðsæld jókst mest í Póllandi en landið situr í 22. sæti listans eftir að hafa stokkið upp um 23 sæti frá 2025. Í skýrslunni segir að árangur Póllands endurspegli þá pólitísku umbreytingu sem varð í kjölfar stjórnarskipta sem urðu árið 2023. Ný stjórn hafi aftur komið á sjálfstæðu dómskerfi, losað um fjármagn frá ESB og tekið á ný þátt í samstarfi evrópskra stofnana.

Share this article