Innlent | mbl | 8.6.2026 | 14:19 Níu aðildarríki andmæla umhverfiskröfum ESB Gerð er krafa um endurnýjun bílaflota. AFP Setja bókamerki Níu aðildarríki Evrópusambandsins hafa sameinast um að andmæla fyrirhugaðri reglugerð framkvæmdastjórnar ESB sem myndi skylda stór fyrirtæki til að rafvæða bíla- og sendibílaflota sína á næstu árum. Samkvæmt drögum að reglugerðinni yrðu fyrirtæki með meira en 250 starfsmenn eða yfir 50 milljóna evra ársveltu skylduð til að draga úr losun frá ökutækjaflotum sínum. Gert er ráð fyrir að frá árinu 2030 verði um 69% nýrra ökutækjakaupa slíkra fyrirtækja tengiltvinnbílar og um 45% hreinir rafbílar eða vetnisknúnir bílar, þótt markmiðin yrðu mismunandi milli ríkja. Dragi úr samkeppnishæfni Pólland leiðir andstöðuna ásamt Búlgaríu, Tékklandi, Eistlandi, Ungverjalandi, Ítalíu, Lettlandi, Slóvakíu og Rúmeníu. Ríkin segja fyrirtækjaflota geta gegnt lykilhlutverki í orkuskiptum og minnkun olíuinnflutnings, en vara við því að bindandi kvótar geti dregið úr samkeppnishæfni og aukið byrðar á atvinnulífið. Í sameiginlegri afstöðu ríkjanna er kallað eftir hvötum fremur en regluverki. Þau vilja að ESB leggi áherslu á leiðbeiningar, miðlun bestu starfsvenja, markvissa styrki og tæknilega aðstoð í stað lagalegra kvaða. Hleðsluinnviðir á ólíkum stað Ríkin benda einnig á að aðstæður séu mjög mismunandi milli aðildarríkja þegar kemur að hleðsluinnviðum, raforkukerfum, skattkerfum og leigumörkuðum. Því sé hætta á að samræmd markmið bitni sérstaklega á löndum þar sem undirbúningur fyrir orkuskiptin er skemmra á veg kominn. Sérstakar áhyggjur eru einnig af áhrifum reglugerðarinnar á lítil og meðalstór fyrirtæki. Þótt reglurnar beinist formlega að stórfyrirtækjum gætu þær haft óbein áhrif á smærri fyrirtæki sem reiða sig á rekstrarleigu ökutækja. Að mati ríkjanna gætu kvaðir á leigufyrirtæki í reynd færst yfir á viðskiptavini þeirra. Þurfa meira svigrúm Jafnframt er bent á að ökutæki sem tengjast neyðarþjónustu, mikilvægum innviðum og almannavörnum þurfi meira svigrúm en tillagan virðist gera ráð fyrir. Orkuskiptin verði að samræmast markmiðum Evrópusambandsins um viðnámsþrótt, neyðarviðbúnað og efnahagslegt öryggi á tímum aukinnar geópólitískrar óvissu. Málið er til umræðu á fundi samgönguráðherra ESB í Lúxemborg í dag. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Aðalsteinn aftur að sáttaborðinu Skoraði þrennu í sigri Frakka Ástráður: „Enn þá mjög erfið deila“ Gulf War veteran cycles across Iceland Flugfélög hafa meiri áhyggjur af sköttum en stríði Umræðan Rétturinn til að ráða eigin lífi Með brjóstvitið að leiðarljósi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert 35 látnir: Íbúar óttast eftirskjálfta Níu aðildarríki andmæla umhverfiskröfum ESB „Ekkert vesen“ að manna í viku „Versta mögulega sviðsmynd“ Mest lesið Í gær Í vikunni Gjaldtaka aukin með innviðafélagi Lögin sem Bubbi tók í Höllinni Bubbi ávarpar þjóðina frá Noregi „Versta mögulega sviðsmynd“ Reykjavík orðið fyrir árásum vegna dyggðaskreytinga 100 milljóna tjón hjá Sorpu í Álfsnesi Mega ekki fella niður gönguleið í Álfabakka Herða baráttuna gegn veggjalúsum „Þá lýsi ég því yfir að við séum ófær um þetta“ Þurfa reglulega að kalla til aðstoð Bubbi sleit liðband Tilbúnir að slást í sundklefunum Katla gæti verið nálægt þanmörkum „Ég veit að munurinn er svona mikill“ Bubba fagnað: „Hann er bara kóngurinn“ Drengurinn er fundinn Katrín lofuð í Bretlandi Malbikun Reykjanesbrautar frestað Vann Hengil Ultra eftir aðeins 8 mánaða þjálfun 35 vilja starf sveitarstjóra í Eyjafjarðarsveit Bubbi sleit liðband Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íslendings saknað á Taílandi Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Unglingsstúlka fannst meðvitundarlaus í Firði Nýjast á mbl.is » Aðalsteinn aftur að sáttaborðinu Skoraði þrennu í sigri Frakka Ástráður: „Enn þá mjög erfið deila“ Gulf War veteran cycles across Iceland Flugfélög hafa meiri áhyggjur af sköttum en stríði Umræðan Rétturinn til að ráða eigin lífi Með brjóstvitið að leiðarljósi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ástráður: „Enn þá mjög erfið deila“ Níu aðildarríki andmæla umhverfiskröfum ESB Segja Bandaríkin bera ábyrgð á átökum Hafa skotið næstum 30 flugskeytum í átt að Ísrael Mest lesið Í gær Í vikunni Gjaldtaka aukin með innviðafélagi Lögin sem Bubbi tók í Höllinni Bubbi ávarpar þjóðina frá Noregi „Versta mögulega sviðsmynd“ Reykjavík orðið fyrir árásum vegna dyggðaskreytinga 100 milljóna tjón hjá Sorpu í Álfsnesi Mega ekki fella niður gönguleið í Álfabakka Herða baráttuna gegn veggjalúsum „Þá lýsi ég því yfir að við séum ófær um þetta“ Þurfa reglulega að kalla til aðstoð Bubbi sleit liðband Tilbúnir að slást í sundklefunum Katla gæti verið nálægt þanmörkum „Ég veit að munurinn er svona mikill“ Bubba fagnað: „Hann er bara kóngurinn“ Drengurinn er fundinn Katrín lofuð í Bretlandi Malbikun Reykjanesbrautar frestað Vann Hengil Ultra eftir aðeins 8 mánaða þjálfun 35 vilja starf sveitarstjóra í Eyjafjarðarsveit Bubbi sleit liðband Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íslendings saknað á Taílandi Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Unglingsstúlka fannst meðvitundarlaus í Firði