Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Fylkismaður Rómaveldis

Read Full Article →

Landsbankinn réð nýlega Jón Þór Grímsson sem yfirlögfræðing bankans en hann hefur starfað hjá bankanum í meira en tvo áratugi. Hann byrjaði í Landsbankanum sem sumarstarfsmaður eftir þriðja árið í lögfræðinni og hefur starfað þar alla tíð síðan. Yfirlögfræðingur stýrir lögfræðiþjónustu bankans sem heyrir beint undir bankastjóra og sinnir fjölbreyttri lögfræðiþjónustu og ráðgjöf fyrir svið bankans og bankaráð. Jón Þór segist spenntur fyrir komandi tímum og er þakklátur fyrir traustið að fá að takast á við ný verkefni með öflugu teymi. Hann segist einnig hafa verið heppinn að hafa fengið að starfa í mismunandi deildum og á mismunandi sviðum. „Ég hef tekist á við mörg af þeim verkefnum sem lögfræðingar innan bankans sinna. Ég hef verið á fyrirtækjasviði, í fyrirtækjaráðgjöf, í lögfræðideild, í endurskipulagningu og hef einnig sinnt lögfræðiráðgjöf á sviði verðbréfaviðskipta, þannig hef ég fengið að þroskast og mótast með bankanum.“ Nánar er fjallað um Jón Þór í Viðskiptablaði vikunnar . Áskrifendur geta nálgast umfjöllunina í heild sinni hér .

Share this article