Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Frá Lands­bankanum til Juris

Read Full Article →

Hallgrímur Ásgeirsson lögmaður hefur bæst í eigendahóp Juris lögmannsstofu. Hallgrímur starfaði sem yfirlögfræðingur Landsbankans frá janúar 2011 til apríl 2026. „Það er mér mikil ánægja að ganga til liðs við Juris. Ég hef um árabil haft afar jákvæð samskipti við lögmenn Juris og hafa þau kynni ávallt einkennst af trausti, fagmennsku og afburða þjónustu. Juris er ein traustasta lögmannsstofa landsins og starfar mikið á sviði viðskipta og fjármála, samhliða almennri lögfræðiráðgjöf, og á stofunni býr mikil reynsla við rekstur dómsmála,“ segir Hallgrímur . Hjá Landsbankanum bar Hallgrímur m.a. ábyrgð á lögfræðiráðgjöf til stjórnar og stjórnenda, annaðist mótun lögfræðilegra ákvarðana í starfsemi bankans og leiddi innleiðingu nýrra lagalegra krafna. Á árunum 2005-2011 starfaði Hallgrímur sem framkvæmdastjóri hjá Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) í Brussel þar sem hann bar ábyrgð á því sviði sem fer með öll mál er varða innri markað EES. Áður var hann staðgengill framkvæmdastjóra fjármálasviðs Seðlabanka Íslands og jafnframt framkvæmdastjóri Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta. Hallgrímur er aðjúnkt við lagadeild Háskólans í Reykjavík á sviði Evrópuréttar, verðbréfamarkaðsréttar, bankaréttar og félagaréttar. Hallgrímur er lögfræðingur frá Háskóla Íslands, hefur lokið prófi í verðbréfamiðlun og er með réttindi sem héraðsdómslögmaður. Hann lauk LL.M. gráðu í Evrópurétti frá University of Leicester árið 2005 og MSc gráðu í fjármálafræðum og rekstrarstjórnun frá Boston University árið 2001. Halldór Jónsson, framkvæmdastjóri Juris, segir mikinn feng fyrir Juris og viðskiptavini stofunnar að fá Hallgrím til liðs við þau. „Reynsla hans styrkir áherslur stofunnar í þjónustu á sviði banka- og fjármálamarkaðar, þar sem áreiðanleiki og traust skiptir öllu máli. Hann smellpassar inn í karakter stofunnar og við hlökkum mjög til samstarfsins,“ segir Halldór . Með innkomu Hallgríms eru eigendur Juris orðnir 12 og á meðal þeirra eru lögmenn með réttindi á Íslandi og á Englandi. „Það er góð viðurkenning fyrir Juris að Hallgrímur komi til okkar eftir farsæl störf sín hjá Landsbankanum og samstarf okkar undanfarin ár,“ segir Andri Árnason , stjórnarformaður Juris. Sjá einnig Þrír eigendur hætta hjá Juris

Share this article