Innlent | Morgunblaðið | 7.6.2026 | 10:17 Ábrystir og pönnukökur á Flugumýri Reisulegt íbúðarhús, fjós, hlaða, fjárhús og sóknarkirkja. Veggirnir eru hvítir, þökin rauðmáluð og allt snyrtilegt, eins og vera ber á höfðabóli. mbl.is/Sigurður Bogi Sigurður Bogi Sævarsson [email protected] Setja bókamerki „Vinnudagarnir í sveitinni eru oft langir og strangir en þetta er alltaf skemmtilegt,“ segir Jón Hjálmar Ingimarsson bóndi á Flugmýri í Blönduhlíð í Skagafirði. Hann er 23 ára að aldri og Eyjalín Harpa Eyjólfsdóttir kona hans 28 ára, og þau eru meðal yngstu bænda. Flugumýri, sem er stór staður í sögunni, er heimaslóð Jóns sem er fimmti ættliðurinn sem þar situr. Á undan honum voru foreldrar hans þar bændur, Margrét Óladóttir og Ingimar Jónsson, sem lést á besta aldri eftir erfið veikindi árið 2022. Eftir það um tíma var búreksturinn leigður út, en annars stóð stórfjölskyldan saman að þessu verkefni. Flugmýrarfólkið í fjósagallanum með kú á milli sín. Í bakgrunni er mjaltabás; mikið þarfaþing. mbl.is/Sigurður Bogi Undir Glóðafeyki Þann 1. ágúst á síðasta ári tóku þau Jón Hjálmar og Eyjalín Harpa við búskapnum á Flugumýri og ætla að skapa sína framtíð þar; býli sem er í svipsterku umhverfi undir bröttum hlíðum Glóðafeykis. „Ég hef verið í búskapnum hér alveg síðan ég man eftir mér og kom mikið inn í þetta strax þegar faðir minn veiktist. Hann lést síðsumars 2022. Ég var að læra vélvirkjun við Verkmenntaskólann á Akureyri en fór samt á milli nánast alla daga yfir veturinn, enda voru aðstæður hér heima krefjandi. En þetta bjargaðist með dugnaði og svo var nánast öll sveitin boðin og búin að hjálpa okkur á Flugumýri,“ segir Jón Hjálmar. Árið 2022 kynntust þau Jón og Eyjalín Harpa, sem er frá Bjarnanesi við Hornafjörð. Haustið 2023 héldu þau suður á Hvanneyri í búfræðinám til að vera með menntun og góða þekkingu til að geta sinnt því starfi sem fram undan var. Á meðan var jörðin í tvö ár leigð til bænda úr nágrenninu, en er nú komin að nýju í réttar hendur, ef svo mætti segja. „Að vera á Hvanneyri var mikið ævintýri. Með náminu þar fékkst góð undirstaða og þekking, en ekki síður er dýrmætt hvað maður kynnist mörgum sem eru á svipuðu reki og maður sjálfur. Tíminn þar skapaði tengslanet sem nær um landið allt,“ segir Jón Hjálmar. 600.000 mjólkurlítrar á ári Á Flugumýri eru reisuleg útihús; fjós byggt árið 1972 sem hefur verið breytt í samræmi við kröfur tímans. Gripir þar eru oft liðlega 100 og mjólkandi kýr á hverjum tíma um 80 talsins. Afurðir þeirra eru um 600.000 mjólkurlítrar á ári og nærri lætur að hver þeirra leggi til um 7.500 kg af mjólk á ári. Í Flugumýrarfjósi eru tveir rótbótar sem kýrnar ganga í eftir þörfum sínum, sem breytir bústörfunum til muna. „Galdurinn við að ná góðum afurðum felst meðal annars í því að vera með góð hey. Þess vegna erum við einmitt núna að endurrækta túnin og vinna okkur í haginn. Svo þarf að fínstilla kjarnfóðurgjöf og almennt talað huga að líðan gripa, hafa umgengni og hreinlæti í lagi. Einnig finnst okkur mikilvægt að kýrnar fái daglega útiveru sem lengst yfir sumartímann og fram á haust. Svo þarf líka að vakta öll gildi mjólkurinnar, svo sem að fita og prótein standi sem hæst enda fer greiðsla fyrir afurðirnar meðal annars samkvæmt því,“ segir Jón Hjálmar. Mörg stór kúabú eru í Skagafirði og þar hafa bændur á svæðinu meðal annars notið stuðnings Kaupfélags Skagfirðinga til uppbyggingar og kvótakaupa. Á Sauðárkróki starfrækir félagið mjólkurbú hvar lögð er áhersla á framleiðslu osta og ýmissa sértækra afurða. Allt þetta skapar vinnu og umsvif í héraði; allt helst í hendur og Skagafjörður stendur vel. Sjá og hugsa í lausnum „Í búskap lærir maður eitthvað nýtt á nánast hverjum degi. Mikilvægt er þar að halda alltaf ró sinni og skipuleggja allt vel. Panta aðföng í tíma, sjá og hugsa í lausnum og geta bjargað sér. Vélvirkjanámið hefur oft komið sér vel. Jú, þetta er auðvitað oft svolítið bras en allt vel yfirstíganlegt. Með tímanum verða störfin svo alltaf auðveldari úrlausnar. Nú bara bíðum við eftir nýjum búvörusamningi við ríkið; svo mikilvægur er hann fyrir starfsskilyrði í landbúnaði. Þar þarf líka að tryggja nýliðun; að gera ungu fólki auðveldara að taka við búskap. Til þess horfum við meðal annars hér á bæ,“ segir Jón Hjálmar sem var á leiðinni í kvöldmjaltir þegar Morgunblaðið leit inn hjá honum í síðustu viku. Kaffispjallið dróst á langinn enda voru veitingarnar í allra hæsta gæðaflokki; íslenskar pönnukökur og ábrystir, en svo er kölluð soðin og tilhleypt broddmjólk kúa fyrst eftir burð. Saman fara þau í bústörfin, þau Jón og Eyjalín. Má þess geta að hún var handhafi Morgunblaðsskeifunnar á síðasta ári, það er 2025, verðlauna sem veitt eru nemendum við bændadeild Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri sem sýnt hafa frábæran árangur í hestamennsku og við tamningar. Skagfirskt vor í tæru lofti „Vorið er dásamlegur tími hér í sveitinni,“ segir Eyjalín Harpa. „Að koma út í tært loftið og birtuna á morgnana er afar ljúft. Dagarnir við störfin hér eru jafnan fljótir að líða og stundum tímir maður varla að fara inn á kvöldin; á þeim stundum þegar sólin er að setjast og geislar hennar roða landið. Og lífið vaknar í náttúrunni allt um kring.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Brasilískur sigur í síðasta leik fyrir HM Ábrystir og pönnukökur á Flugumýri „Einstaklega viðbjóðsleg árás“ „Mikill auður safnast á fárra hendur“ Myndir: Hjóluðu um borgina í spariklæðnaði Umræðan Þjóðaratkvæði Agi og agaleysi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Áhrif á heilann koma seint í ljós Enn langt frá nákvæmni í eldgosaspám Brunakerfi stúdentagarða í gang við sturtuferðir Skýrslan sýni ókosti krónunnar Mest lesið Í gær Í vikunni Bubbi sleit liðband Tilbúnir að slást í sundklefunum Bubba fagnað: „Hann er bara kóngurinn“ „Ég veit að munurinn er svona mikill“ Bubba-aðdáendur flykkjast í höllina Æfir yfir banni Náttúruverndarstofnunar Einn vann 2,5 milljónir Áhrif á heilann koma seint í ljós Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Slökkviliðið kallað út eftir að eldur kviknaði í grilli Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Kaflaskil hjá bardagakind Fórnarlömb lögmannsins mögulega fleiri Skólastjóri gefur kerfum samfélagsins falleinkunn Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð Íbúar ósáttir við rusl sem safnast hefur upp Skoruðu á forseta að slíta fundi: „Vanvirðing við sjómenn“ „Ég er ofboðslega sáttur við lífsferilinn“ Margir vilja Bubba-miða og streymið er vinsælt Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Íslendings saknað á Taílandi Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Nýjast á mbl.is » Brasilískur sigur í síðasta leik fyrir HM Ábrystir og pönnukökur á Flugumýri „Einstaklega viðbjóðsleg árás“ „Mikill auður safnast á fárra hendur“ Myndir: Hjóluðu um borgina í spariklæðnaði Umræðan Þjóðaratkvæði Agi og agaleysi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kaflaskil hjá bardagakind Þorvaldur segir kvikugang ekki upptök skjálftanna Óræð Íslandstenging í finnskri gröf Segir tillögur fela í sér skerðingar Mest lesið Í gær Í vikunni Bubbi sleit liðband Tilbúnir að slást í sundklefunum Bubba fagnað: „Hann er bara kóngurinn“ „Ég veit að munurinn er svona mikill“ Bubba-aðdáendur flykkjast í höllina Æfir yfir banni Náttúruverndarstofnunar Einn vann 2,5 milljónir Áhrif á heilann koma seint í ljós Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Slökkviliðið kallað út eftir að eldur kviknaði í grilli Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Kaflaskil hjá bardagakind Fórnarlömb lögmannsins mögulega fleiri Skólastjóri gefur kerfum samfélagsins falleinkunn Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð Íbúar ósáttir við rusl sem safnast hefur upp Skoruðu á forseta að slíta fundi: „Vanvirðing við sjómenn“ „Ég er ofboðslega sáttur við lífsferilinn“ Margir vilja Bubba-miða og streymið er vinsælt Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Íslendings saknað á Taílandi Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna