Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Tekur undir orð stjórnenda Play um ummæli Jóns

Read Full Article →

Viðskipti | mbl | 17.3.2026 | 20:56 Tekur undir orð stjórnenda Play um Jón Viðar Guðjónsson [email protected] Setja bókamerki Arnar Þór Stefánsson, skiptastjóri þrotabús Play, telur að ummæli Jóns Þórs Þorvaldssonar, formanns Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA), hafi haft áhrif á fall flugfélagsins líkt og stjórnendur Play héldu fram eftir fall þess. Hann segir þó að fleiri þættir hafi einnig vegið þungt. „Þetta olli því að sala á flugmiðum hrundi og kröfuhafar og birgjar urðu stressaðir. Það þýddi að staðan breyttist úr því að vera erfið yfir í að vera kolsvört,“ segir Arnar Þór. Hann gefur ekki upp nákvæmlega hversu mikið miðasalan dróst saman, en segir bókanir hafa minnkað umtalsvert eftir ummælin. Að hans mati megi sjá sterkar vísbendingar um fylgni milli ummælanna og samdráttar í sölu. Virtur á Íslandi „Hann er flugstjóri hjá Icelandair, formaður FÍA og virtur á Íslandi. Hann starfar hjá keppinauti og því er umhugsunarvert hvort Icelandair beri ábyrgð á sínum starfsmönnum í þessu samhengi,“ segir Arnar Þór. Hann ítrekar þó að fleiri ástæður hafi legið að baki falli félagsins. Fjármögnun sem tryggð var með skuldabréfaútboði í ágúst, alls 2,8 milljarðar króna, hafi ekki dugað til að snúa rekstrinum við. Þá hafi verkfallsaðgerðir flugliða og flugmanna á lokadögum haft áhrif. Einnig hafi félagið átt erfitt með að standa við greiðslu fyrir ETS-einingar, eða losunarheimildir, upp á rúman milljarð króna sem féllu á gjalddag í þann mund sem félagið varð gjaldþrota. Misnotkun á markaðsráðandi stöðu Að sögn Arnars er lifir kvörtun vegna ummæla Jóns til Samkeppniseftirlitsins hjá þrotabúinu. Það sé hins vegar á forræði Samkeppniseftirlitsins að meta hana með tilliti til samkeppnislaga. Hann segir að kvörtunin lúti að því hvort um hafi verið að ræða mögulega misnotkun Icelandair á markaðsráðandi stöðu sem, ásamt öðrum þáttum, hafi haft áhrif á þrot félagsins. Bótamál ekki útilokað Arnar útilokar ekki að þrotabúið kunni að gera bótakröfu á hendur Icelandair, fari svo að Samkeppniseftirlitið komist að þeirri niðurstöðu að um misnotkun hafi verið að ræða. „Ef niðurstaðan verður sú að þetta hafi valdið tjóni gæti þrotabúið átt bótakröfu. Það sama gæti átt við um aðra sem höfðu hagsmuna að gæta, svo sem hluthafa og kröfuhafa,“ segir hann. Enn til meðferðar Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir að kvörtunin sé enn til meðferðar hjá stofnuninni og að ekki hafi verið tekin afstaða til hennar. Blogga um frétt Pistlar » Sigurður Már Jónsson Ísland og Balkanlöndin á sama farrými inn í ESB Sigurður Már Jónsson Bókadómur: Dátadraumurinn og Fröken Dúlla Fleira áhugavert Næsta gossprunga gæti legið frá Grindavík Kærir úrskurð um vanhæfi sitt Svona á að styrkja þjónustu við börnin Norðvestan stormur og hríð Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Höfnuðu tveggja milljarða tilboði Sterkari keppinautur eftir að SAS sleit samstarfi Forsendur ekki til staðar hér á landi Nordea segir upp 1.500 manns Kærir úrskurð um vanhæfi sitt Breytt stýrivaxtaspá vegna stríðs Spá 0,25 prósentustiga vaxtahækkun Vara við aukinni skattheimtu á orkumannvirki Lokuðu þremur verslunum í Leifsstöð í nótt Íris ráðin viðskiptastjóri hjá SI Íris ráðin viðskiptastjóri hjá SI Segir lokanirnar klárt brot á lögum landsins Lokuðu þremur verslunum í Leifsstöð í nótt Sameinast undir vörumerki Apótekarans Dræm sala skilar nýjum íbúðum á leigumarkað Gjaldeyrisáhættan þurrkaðist út Berjaya Hotels töpuðu milljarði Nær helmingur Tesla-bílanna fellur á fyrstu skoðun 55 af 84 íbúðum fóru í útleigu 581 milljón króna hagnaður hjá Póstinum Lokuðu þremur verslunum í Leifsstöð í nótt Höfnuðu tveggja milljarða tilboði Sameinast undir vörumerki Apótekarans Telur ástæðu til að endurskoða íslenska módelið Sjónvarpsfréttirnar ekki með: „Það er nóg eftir“ Sterkari keppinautur eftir að SAS sleit samstarfi Segir lokanirnar klárt brot á lögum landsins Guðmundur Fertram kaupir sig inn í hótelrekstur Gjaldeyrisáhættan þurrkaðist út Berjaya Hotels töpuðu milljarði Pistlar » Sigurður Már Jónsson Ísland og Balkanlöndin á sama farrými inn í ESB Sigurður Már Jónsson Bókadómur: Dátadraumurinn og Fröken Dúlla Fleira áhugavert Forsendur ekki til staðar hér á landi Ekki víst að greinin yrði virkjuð þrátt fyrir árás Loka einni hæð á spítalanum vegna myglu Svona á að styrkja þjónustu við börnin Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Höfnuðu tveggja milljarða tilboði Sterkari keppinautur eftir að SAS sleit samstarfi Forsendur ekki til staðar hér á landi Nordea segir upp 1.500 manns Kærir úrskurð um vanhæfi sitt Breytt stýrivaxtaspá vegna stríðs Spá 0,25 prósentustiga vaxtahækkun Vara við aukinni skattheimtu á orkumannvirki Lokuðu þremur verslunum í Leifsstöð í nótt Íris ráðin viðskiptastjóri hjá SI Íris ráðin viðskiptastjóri hjá SI Segir lokanirnar klárt brot á lögum landsins Lokuðu þremur verslunum í Leifsstöð í nótt Sameinast undir vörumerki Apótekarans Dræm sala skilar nýjum íbúðum á leigumarkað Gjaldeyrisáhættan þurrkaðist út Berjaya Hotels töpuðu milljarði Nær helmingur Tesla-bílanna fellur á fyrstu skoðun 55 af 84 íbúðum fóru í útleigu 581 milljón króna hagnaður hjá Póstinum Lokuðu þremur verslunum í Leifsstöð í nótt Höfnuðu tveggja milljarða tilboði Sameinast undir vörumerki Apótekarans Telur ástæðu til að endurskoða íslenska módelið Sjónvarpsfréttirnar ekki með: „Það er nóg eftir“ Sterkari keppinautur eftir að SAS sleit samstarfi Segir lokanirnar klárt brot á lögum landsins Guðmundur Fertram kaupir sig inn í hótelrekstur Gjaldeyrisáhættan þurrkaðist út Berjaya Hotels töpuðu milljarði

Share this article