Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Málar dökka mynd: „Fólk er pirrað og reitt“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 5.6.2026 | 10:45 Málar dökka mynd: „Fólk er pirrað og reitt“ „Ég get alveg sagt það hreint og klárt út að það munu allir finna fyrir þessu tekjutapi. Ef þetta verður vika eða 10 dagar þá finna allir fyrir því. Og ef þetta verða þrjár vikur, eins og talað er um, eða jafnvel lengur, þá getur bara orðið algjört hrun fyrir ferðaþjónustuna á svæðinu,“ segir Gunnþórunn Bender um fjarveru ferjunnar Baldurs. mbl.is/Sigurður Bogi Setja bókamerki Tengdar fréttir Landeyjahöfn „Þetta er bara alveg hræðilegt“ Vill að höfnin verði bætt hraðar Vestmannaeyjabær mæti afgangi Vonbrigði með svör ráðherra: „Óboðlegar aðstæður“ Ekki hlutverk ríkisins að bæta Eyjamönnum tjónið » Fleiri tengdar fréttir Framkvæmdastjóri ferðaþjónustuskrifstofu á Patreksfirði segir ákvörðun stjórnvalda um að taka ferjuna Baldur úr siglingum á Vestfjörðum bera vott um skeytingarleysi gagnvart svæðinu og íbúum þess. Áhrifin geti orðið mikil. Greint var frá því í gær að ferjurnar Baldur og Herjólfur muni báðar sigla til og frá Vestmannaeyjum frá og með mánudeginum 8. júní. Fyrirkomulagið verður við lýði meðan unnið er að viðgerð á einni vél Herjólfs sem bilaði í apríl. Gert er ráð fyrir að viðgerðinni ljúki upp úr miðjum júní. Ferjan Særún mun sinna siglingum til Flateyjar á Breiðafirði í fjarveru Baldurs en fyrirkomulagið hefur þegar verið gagnrýnt af bæjarstjóra Vesturbyggðar. Frétt af mbl.is „Þetta er bara alveg hræðilegt“ Byrjuð að finna fyrir afbókunum Í samtali við mbl.is segir Gunnþórunn Bender, framkvæmdastjóri i Westfjords Adventures, að afbókanir séu nú þegar byrjaðar að detta inn hjá ferðaþjónustufyrirtækjum í kjölfar fregna af fjarveru Baldurs. Þá á hún von á að fleiri bókanir detti út á næstu dögum. „Núna er aðaltímabilið að hefjast hjá okkur, maí fer alltaf svona frekar rólega af stað og svo finnur maður á þessum tíma að það fer allt á blússandi siglingu. Við erum líka að reka tjaldsvæði og það er búið að vera síðustu viku, 10 daga, mjög þétt setið á tjaldsvæðinu, bæði á Patreksfirði sem og á öðrum tjaldsvæðum í kring, og þetta eru að mjög miklu leyti húsbílar eða hjólhýsi og fólk er að veigra sér við að fara með þessi tæki um malarvegina. Það eru auðvitað malarvegir hvert sem farið er frá t.d. Patreksfirði,“ segir Gunnþórunn og vísar því næst til þess að ferjan Særún sé einungis farþegaferja sem tekur ekki ökutæki um borð. Frétt af mbl.is Baldur og Herjólfur sameina krafta sína Enginn fyrirvari „Það er líka algjör skortur á samráði og enginn fyrirvari fyrir svæðið og manni finnst það vera svo mikið skeytingarleysi gagnvart svæðinu og íbúum á svæðinu, að það er bara algjörlega fyrirvaralaust hvernig við missum bátinn frá okkur.“ Gunnþórunn bendir á að þetta sé ekki í fyrsta skipti sem ferjan er tekin frá Vesturbyggð. Þá hafi fyrirtæki síðustu ár verið með rútuakstur á milli Patreksfjarðar og Ísafjarðar þar sem aksturinn er miðaður við siglingaráætlun Baldurs. Því sé búið að setja allt úr skorðum hvað varði tímaplön akstursins og megi búast við færra fólki um borð í rútunum nú þegar ferjan er komin annað. Dregst yfirleitt Eins og fyrr segir er áætlað að viðgerð á vél Herjólfs ljúki um miðjan júní og má þá búast við að Baldur verði fljótlega sendur til baka. Aðspurð segir Gunnþórunn þó að það myndi ekki koma á óvart ef fyrirkomulagið myndi dragast á langinn. „Það hefur sýnt sig hér að það yfirleitt dregst eitthvað. En manni finnst líka einhvern veginn að það að stjórnvöld ákveði að grípa til þessarar lausnar, að lagfæra eitthvað á einum stað og veikja þannig atvinnulífið á öðrum - það veldur reiði í samfélaginu og maður finnur að fólk er mjög pirrað og reitt yfir þessu þó svo að áhrifin séu ekki bein til annarra en fyrirtækjaeigenda. Þetta er svo mikið virðingarleysi við svæðið.“ Ferðaþjónustan viðkvæm Aukinheldur bendir Gunnþórunn á að ferðaþjónusta sé viðkvæm á svæðinu. Koma ferðamanna yfir vetrartímann sé lítil og neyðast þá mörg fyrirtæki til að loka dyrum sínum. „Svo núna loksins þegar allt er að fara í gang og allt er að fara í blóma þá er gripið til þessara ráðstafana,“ segir Gunnþórunn sem tekur þó fram að ekki sé við Vestmannaeyinga að sakast. Þeir eigi alla hennar samúð þó að henni finnist lausn vandans ekki góð. „Getur orðið algjört hrun“ Aðspurð segir hún að hún muni beita sér fyrir því að eiga samtal við stjórnvöld. Ljóst sé að margir muni finna fyrir tekjutapinu. „Ég get alveg sagt það hreint og klárt út að það munu allir finna fyrir þessu tekjutapi. Ef þetta verður vika eða 10 dagar þá finna allir fyrir því. Og ef þetta verða þrjár vikur, eins og talað er um, eða jafnvel lengur, þá getur bara orðið algjört hrun fyrir ferðaþjónustuna á svæðinu.“ Hundfúl Að lokum bendir hún á að fleiri aðgerðir hafi gert rekstraraðilum ferðaþjónustufyrirtækja lífið leitt. T.a.m. hafi flugferðum vestur verið fækkað og minnist hún sömuleiðis á afnám tollfrelsisins á hringsiglingar, sem tók gildi í byrjun árs 2025, og hefur haft mikil áhrif á skipakomur til svæðisins. „Nú erum við búin að berjast svo svakalega fyrir því að ná upp fjölda skemmtiferðaskipa. Það hefur dottið niður vegna þessara aðgerða. Það eru alls konar aðgerðir sem hafa áhrif á svæðið. Við erum bara hundfúl yfir þessu.“ Frá Patreksfirði. mbl.is/Sigurður Bogi Tengdar fréttir Landeyjahöfn „Þetta er bara alveg hræðilegt“ Vill að höfnin verði bætt hraðar Vestmannaeyjabær mæti afgangi Vonbrigði með svör ráðherra: „Óboðlegar aðstæður“ Ekki hlutverk ríkisins að bæta Eyjamönnum tjónið » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Þuklaður á Íslandi en ekki í Róm Helgi nýr útibússtjóri á Sauðárkróki Sara Björk komin heim Minna fé og færri styrkir þrátt fyrir aukin gæði Engin svör frá ráðuneytinu Umræðan Evrópusambandið og átökin um auðlindirnar Þeir sem ekki eru verst settir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Verið að svíkja öll loforð“ Beri „óþjóðrækni“ vitni Brotamenn með þunga dóma gætu fengið reynslulausn Birtingarmynd miklu stærri vanda Mest lesið Í gær Í vikunni Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna „Fólk á bara að hafa vit á þessu sjálft“ Dró sér tæpar sex milljónir sem bæjarfulltrúi Um 300 þegar fengið viðvörun Ekki frá höfundum komið Andlát: Þórir Lárusson Andlát: Vigfús Kr. Vigfússon „Ég er alltaf jákvæður. Ég vinn við það“ Livio gert að greiða Ingunni 25 milljónir Brotamenn með þunga dóma gætu fengið reynslulausn Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs SS hyggst hætta halal-slátrunum Unglingsstúlka fannst meðvitundarlaus í Firði Þekkt nöfn í eigendahópi nýs kaffihúss Andlát: Ragna Ragnars Hefur mikla þýðingu fyrir kaupendur fasteigna Ákærður fyrir manndráp af gáleysi eftir banaslys Er bæði eyðilagður og sorgmæddur Vill skoða sölu eða niðurlagningu Sorpu „Þetta er bara alveg hræðilegt“ Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Lést við barnsburð á Landspítalanum Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Íslendings saknað á Taílandi Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Nýjast á mbl.is » Þuklaður á Íslandi en ekki í Róm Helgi nýr útibússtjóri á Sauðárkróki Sara Björk komin heim Minna fé og færri styrkir þrátt fyrir aukin gæði Engin svör frá ráðuneytinu Umræðan Evrópusambandið og átökin um auðlindirnar Þeir sem ekki eru verst settir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Engin svör frá ráðuneytinu Um 300 þegar fengið viðvörun Nigel Farage ólíklegur á fund Viðreisnar Ekki frá höfundum komið Mest lesið Í gær Í vikunni Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna „Fólk á bara að hafa vit á þessu sjálft“ Dró sér tæpar sex milljónir sem bæjarfulltrúi Um 300 þegar fengið viðvörun Ekki frá höfundum komið Andlát: Þórir Lárusson Andlát: Vigfús Kr. Vigfússon „Ég er alltaf jákvæður. Ég vinn við það“ Livio gert að greiða Ingunni 25 milljónir Brotamenn með þunga dóma gætu fengið reynslulausn Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs SS hyggst hætta halal-slátrunum Unglingsstúlka fannst meðvitundarlaus í Firði Þekkt nöfn í eigendahópi nýs kaffihúss Andlát: Ragna Ragnars Hefur mikla þýðingu fyrir kaupendur fasteigna Ákærður fyrir manndráp af gáleysi eftir banaslys Er bæði eyðilagður og sorgmæddur Vill skoða sölu eða niðurlagningu Sorpu „Þetta er bara alveg hræðilegt“ Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Lést við barnsburð á Landspítalanum Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Íslendings saknað á Taílandi Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Flugmaður Icelandair hjólar í Boga

Share this article