Innlent | mbl | 4.6.2026 | 14:35 „Þetta er bara alveg hræðilegt“ Gerður segir meginvanda málsins vera þann að heimild Vegagerðarinnar til að kalla Baldur til siglinga til Vestmannaeyja byggi á veikum grunni. Samsett mynd Setja bókamerki Tengdar fréttir Landeyjahöfn Vill að höfnin verði bætt hraðar Vestmannaeyjabær mæti afgangi Vonbrigði með svör ráðherra: „Óboðlegar aðstæður“ Ekki hlutverk ríkisins að bæta Eyjamönnum tjónið Nauðsynlegt að móta heildstæða áætlun » Fleiri tengdar fréttir Bæjarstjóri Vesturbyggðar segir fjarveru Breiðafjarðarferjunnar Baldurs koma á versta tíma. Nú þegar sé farið að afbóka ferðir sem höfðu verið bókaðar með ferjunni. Þá segir bæjarstjórinn að í raun sé engin heimild fyrir því að ferjan sé tekin úr siglingum á Vestfjörðum og nýtt í siglingar til Vestmannaeyja. Greint var frá því í gær að ferjurnar Baldur og Herjólfur muni báðar sigla til og frá Vestmannaeyjum frá og með mánudeginum 8. júní. Fyrirkomulagið verður við lýði meðan unnið er að viðgerð á einni vél Herjólfs sem bilaði í apríl. Gert er ráð fyrir að viðgerðinni ljúki upp úr miðjum júní. Ferjan Særún mun sinna siglingum til Flateyjar á Breiðafirði í fjarveru Baldurs. Frétt af mbl.is Baldur og Herjólfur sameina krafta sína „Þetta er bara alveg hræðilegt“ „Þetta er bara alveg hræðilegt,“ segir Gerður Björk Sveinsdóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar, í samtali við mbl.is. „Þetta kemur á alversta tíma þar sem ferðaþjónustan er að komast í gang og við erum með afskaplega stuttan glugga af árstíðabundinni þjónustu. Hún er viðkvæm á þessu svæði. Ég hafði samband við Ferjuleiðir í gær og bókunarstaðan var bara mjög góð hjá þeim. Núna eru þeir í því að afbóka ferðir þeirra sem áttu far með bátnum.“ Hefur óskað eftir svörum Gerður segir þó meginvanda málsins vera þann að heimild Vegagerðarinnar til að kalla Baldur til siglinga til Eyja byggi á veikum grunni. Í samningi við Vegagerðina sé heimild til að nýta Baldur sem varaskip fyrir Herjólf ef Herjólfur fer í slipp eða er óstarfhæfur. Hvorugt eigi við í þessu tilfelli. Að sögn Gerðar hefur hún því óskað eftir svörum frá Vegagerðinni og Eyjólfi Ármannssyni innviðaráðherra um á hverju ákvörðunin sé byggð. „Þessi ákvörðun er tekin í rauninni til þess að auka flutningsþörf til Vestmannaeyja og ég hef fulla samúð með vanda Vestmannaeyinga en mér finnst mjög skrýtið að grípa til þess að kippa stoðum undan atvinnugrein hér á Vestfjörðum, og í rauninni bara samfélaginu í Flatey, til þess að bjarga þeirri stöðu sem upp er komin í Vestmannaeyjum, sem er ekki ný og það er með ólíkindum að það sé ekki búið að græja Herjólf 3. Þetta er í þriðja skiptið núna á stuttum tíma þar sem þetta er að koma upp,“ segir Gerður. Frétt af mbl.is Vestmannaeyjabær mæti afgangi Skrýtið samráð Í tilkynningu Vegagerðarinnar um málið kemur fram að samráð hafi verið haft við heimamenn í Breiðafirði vegna breytinganna. Gerður lýsir samráðinu hins vegar með þeim hætti að sendur hafi verið tölvupóstur sama dag og ákvörðunin var tekin og kynnt í Vestmannaeyjum. Hún segist sjálf hafa séð tölvupóstinn fyrir algjöra tilviljun þar sem hún var á ferðinni þann dag og kíkti á tölvupóstinn þegar hún stoppaði til að hlaða bílinn sinn. Hafi hún þá haft samband við Vegagerðina og bent á að næstu helgi færi fram bæjarhátíðin Sjómannadagshelgin á Patreksfirði og að margir treystu á Breiðafjarðarferjuna þá helgi. Því hafi tilfærslu Baldurs verið frestað þar til eftir helgina. „Það var allt samráðið. Við erum bara upplýst um að það sé verið að skoða þetta og það næsta sem við vitum er að ráðherra er að tilkynna á opnum fundi í Vestmannaeyjum að það sé búið að taka þessa ákvörðun.“ Setur allt samfélagið í Flatey í uppnám Þú talar um að það sé byrjað að afbóka ferðir. Er ferjan Særún þá ekki á sama kaliberi og Baldur? „Nei, nei, þetta er bara farþegaferja. Hún flytur ekki bíla og fer í rauninni bara frá Stykkishólmi til Flateyjar. Hún fer ekki á Brjánslæk,“ segir Gerður og heldur áfram: „Orkubú Vestfjarða vinnur að umfangsmiklu orkuskiptaverkefni í Flatey og hafði áformað að flytja stóran búnað yfir til Flateyjar, held ég bara núna í næstu viku. Það verður þá ekki þar sem Særún getur ekki flutt þann búnað. Það er ekki búið að leysa hvernig á að flytja vatn til Flateyjar eða sorp frá eyjunni. Nú er starfrækt hótel þar á sumrin og þetta náttúrulega setur allt samfélagið í Flatey í uppnám.“ Tengdar fréttir Landeyjahöfn Vill að höfnin verði bætt hraðar Vestmannaeyjabær mæti afgangi Vonbrigði með svör ráðherra: „Óboðlegar aðstæður“ Ekki hlutverk ríkisins að bæta Eyjamönnum tjónið Nauðsynlegt að móta heildstæða áætlun » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Ná samkomulagi um að framlengja búvörusamninga Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Goðsögn Chelsea látin Skyggnir flytur úr Borgartúni „Þetta er bara alveg hræðilegt“ Umræðan Evran er ekki töfralausn Hvíl í friði, jafnlaunavottun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Friðuðu húsi verður ekki breytt Er bæði eyðilagður og sorgmæddur Ellefu sagt upp hjá Kviku „Græðir ekkert á því að mjólka dauða belju“ Mest lesið Í gær Í vikunni SS hyggst hætta halal-slátrunum Andlát: Ragna Ragnars Hefur mikla þýðingu fyrir kaupendur fasteigna Þekkt nöfn í eigendahópi nýs kaffihúss Er bæði eyðilagður og sorgmæddur Vill skoða sölu eða niðurlagningu Sorpu Stærstu skjálftar síðan 2008 Sektuð fyrir að kalla dómara „lausláta mellu“ Stjórnvöld nýti neyðar- og fullveldisrétt Íslands Hundrað skjálftar mælst við Þórisjökul Áslaug Arna hættir á Alþingi Íslendings saknað á Taílandi Þota Icelandair föst á Tenerife eftir árekstur Andlát: Steingrímur Ari Arason Tekist á um hvort hundur megi drekka úr vatnshana Hegðunar- og agavandamál áberandi Vara við smáskilaboðum: Ekki ýta á hlekkinn Flytja fanga úr landi og losa um tugi rýma Deilan snúi ekki að launakjörum: Áratuga kverkatak Íslendingur vann 10 milljónir í Víkinglottó Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Íslendings saknað á Taílandi Nýjast á mbl.is » Ná samkomulagi um að framlengja búvörusamninga Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Goðsögn Chelsea látin Skyggnir flytur úr Borgartúni „Þetta er bara alveg hræðilegt“ Umræðan Evran er ekki töfralausn Hvíl í friði, jafnlaunavottun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert SS hyggst hætta halal-slátrunum Vill skoða sölu eða niðurlagningu Sorpu Hundrað skjálftar mælst við Þórisjökul Höfða mál gegn borginni: Réttindi ekki valkvæð Mest lesið Í gær Í vikunni SS hyggst hætta halal-slátrunum Andlát: Ragna Ragnars Hefur mikla þýðingu fyrir kaupendur fasteigna Þekkt nöfn í eigendahópi nýs kaffihúss Er bæði eyðilagður og sorgmæddur Vill skoða sölu eða niðurlagningu Sorpu Stærstu skjálftar síðan 2008 Sektuð fyrir að kalla dómara „lausláta mellu“ Stjórnvöld nýti neyðar- og fullveldisrétt Íslands Hundrað skjálftar mælst við Þórisjökul Áslaug Arna hættir á Alþingi Íslendings saknað á Taílandi Þota Icelandair föst á Tenerife eftir árekstur Andlát: Steingrímur Ari Arason Tekist á um hvort hundur megi drekka úr vatnshana Hegðunar- og agavandamál áberandi Vara við smáskilaboðum: Ekki ýta á hlekkinn Flytja fanga úr landi og losa um tugi rýma Deilan snúi ekki að launakjörum: Áratuga kverkatak Íslendingur vann 10 milljónir í Víkinglottó Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Íslendings saknað á Taílandi