Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

„Gæti verið hluti af lausn fyrir Icelandair“

Read Full Article →

Á síðustu dögum hefur kjaradeila flugmanna og Icelandair verið mikið í umræðunni. Egill Almar Ágústsson, sem starfaði áður sem forstöðumaður leiðakerfis Icelandair, segir að nú séu fjárfestar farnir að láta í sér heyra. „Hvorki flugmenn né fjárfestar virðast trúa því að til sé framtíðarsýn innan félagsins, sem búi til almennilegan hagnað,“ segir Egill Almar. „Félag sem er með óarðbært viðskiptalíkan til langs tíma getur hvorki greitt há laun til flugmanna né borgað arð til fjárfesta.“ Sjá einnig Segir Icelandair vera að missa af ris­atækifæri „Þegar Delta Airlines átti í fjárhagserfiðleikum fyrir þó nokkrum árum samdi forstjóri félagsins við sína flugmenn, sem eru allir í stéttarfélagi, með því að lofa því að hluti af framtíðarhagnaði yrði greiddur til starfsmanna, í skiptum fyrir þolinmæði. Það gæti verið hluti af lausn fyrir Icelandair í dag, en til þess þarf von og trú á að betri tímar séu framundan.“ Þurfa trúverðugt viðskiptalíkan Að sögn Egils Almars er kjarni málsins sá að hagsmunir flugmanna og fjárfesta fari í raun saman. Báðir aðilar séu að veðja á að rekstur félagsins geti verið arðbær. „Það er kominn tími á að stjórnendur Icelandair viðurkenni að þær skýringar sem gefnar hafa verið á lélegri arðsemi eiga ekki við rök að styðjast. Félagið er einfaldlega með óarðbært viðskiptalíkan og það er ekki vegna skammtímavandamála eða of hás kostnaðar. Það er vegna þess að varan, sem býr til hagnaðinn á Norður-Atlantshafsmarkaðnum, betri farrými, er ekki í boði hjá Icelandair nema að mjög litlu leyti. Vélarnar eru fullar af fólki en reksturinn samt sem áður óarðbær.“ „Icelandair þarf viðskiptalíkan, sem fjárfestar hafa trú á, hvort sem það eru flugmenn eða hlutafjáreigendur og það hlýtur að vera stærsta skrefið til að sannfæra báða hópana um að áframhaldandi fjárfesting þeirra í félaginu sé þess virði,“ segir Egill Almar. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article