Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

„Al­gjör­lega kjaft­stopp“ yfir gíslatöku flug­manna

Read Full Article →

Kjartan Smári Höskuldsson, framkvæmdastjóri Íslandssjóða, segist „algjörlega kjaftstopp“ yfir aðgerðum flugmanna Icelandair. „Flugmenn hafa tekið félagið í gíslingu og eru markvisst að eyðileggja fyrir því, dag eftir dag,“ segir Kjartan Smári í færslu á Facebook. „ENGIR fjárfestar munu nokkurn tímann setja pening inn í fyrirtæki sem er ósamkeppnishæft útaf legacy samningum sem eyðileggja rekstur félagsins til framtíðar.“ Deilt hefur verið um mögulegar óformlegar verkfallsaðgerðir flugmanna í mánuðinum, en Icelandair hefur ítrekað þurft að aflýsa eða fresta flugferðum þar sem erfitt hefur reynst að manna áhafnir. Sjá einnig Stál í stál Kjartan Smári, sem hefur stýrt Íslandssjóðum frá árinu 2016, tekur undir málflutning forstjóra Icelandair um að Icelandair greiði flugmönnum sínum töluvert hærri laun en víðast hvar og bætir við að laun þeirra séu „jafnvel hærri en í víðri veröld“. „Félagið stefnir aftur í gjaldþrot. Búið að tapa yfir 70 milljörðum á síðustu árum. Augljóst að það er engin „kaka” til skiptanna,“ segir Kjartan Smári. „Í öllum öðrum fyrirtækjum væru starfsmenn sem tækju þátt í slíku einfaldlega reknir með skít og skömm. Og látnir sæta ábyrgð. Erfitt er að reka menn og ráða aðra vegna ævilangra kjarasamninga við gíslatökumennina.“ Hann bendir á að aðeins örfá ár séu síðan að félaginu var bjargað af fjárfestum sem lögðu félaginu til tugi milljarða. Þar vísar hann í 30 milljarða króna hlutafjárútboð Icelandair í september 2020.

Share this article