Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Ríkið sýknað í Skuggasundsmálinu

Read Full Article →

Innlent | mbl | 4.6.2026 | 21:50 Ríkið sýknað í Skuggasundsmálinu Lögregla beitti piparúða en gerðist ekki brotleg. mbl.is/Kristinn Magnússon Kjartan Leifur Sigurðsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Mótmæli á Íslandi Myndir: Mótmælendur fóru inn í ráðuneytið 23 fengið bætur vegna mistaka í skýrslu Mótmælendur brutu skilmála borgarinnar Mótmælt á Austurvelli Enginn gagnagrunnur um mótmælendur » Fleiri tengdar fréttir Níu einstaklingar sem stefndu íslenska ríkinu til greiðslu miskabóta vegna meints harðræðis lögreglumanna gagnvart þeim á mótmælum félagsins Ísland-Palestína fá ekki greiddar bætur. Þetta er niðurstaða dóms Landsréttar frá því í dag en niðurstaða héraðsdóms í málinu mun því standa óröskuð. Mótmælin fóru fram í maímánuði árið 2024 við Skuggasund þar sem ríkisstjórnarfundur var haldinn. Beitti lögregla piparúða á nokkra mótmælendur en sumir þeirra höfðu meðal annars lagst á götuna til að hindra för ráðherrabíls. Frétt af mbl.is „Þetta myndi sjást á búkmyndavélum“ Hrintu tveimur og drógu annan Þátttakendur á mótmælunum voru um 150 talsins þegar mest var og var lögregla með nokkurn viðbúnað á svæðinu. Sigurður Örn Hilmarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, flutti málið fyrir hönd mótmælendanna en í málatilbúnaðinum er byggt á því að þeir eigi rétt á miskabótum vegna þess að lögregla hafi gengið harðar fram gagnvart þeim en nauðsynlegt var. Sigurður Örn Hilmarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, flutti málið fyrir mótmælendur. mbl.is/Eggert Jóhannesson Þannig hafi tveimur þeirra verið hrint mjög harkalega af lögreglumönnum að ástæðulausu og dregið annan eftir götunni þannig að höfuð hans slóst í gangstéttarkant. Þá hefðu lán undangenginnar viðvörunar úðað piparúða, ítrekað og samfellt af stuttu færi og án þess að aðstæður gæfu nokkurt tilefni til þess, í andlit mótmælenda. Kröfðust mótmælendurnir þess að þeim yrðu hverjum og einum greiddar 800.000 krónur í miskabætur. Frétt af mbl.is Myndir: Lögregla beitti piparúða á mótmælendur Vörðuðu mótmælendur við Landsréttur benti á það í niðurstöðu sinni að þrátt fyrir að einstaklingar hefðu samkvæmt stjórnarskrá rétt til þess að safnast saman vopnlausir og mótmæla. Hlutverk lögreglu væri aftur á móti að veita yfirvöldum vernd eða aðstoð við framkvæmd starfa sinna og mætti lögregla því vísa fólki á brott eða fjarlægja það eftir þörfum. Enginn gæti komist hjá því að hlýða slíkum fyrirmælum þótt hann vefengdi heimildir lögreglu. Níu mótmælendur stefndu ríkinu. mbl.is/Kristinn Magnússon Benti Landsréttur á það að einn mótmælendanna hefði strax og hún var fjarlægð af götunni staðið upp og lagst í götuna að nýju til að hindra för ráðherrabíla. Taldi Landsréttur að mótmælin hefðu ekki getað talist ófriðsamleg en það útilokaði þó ekki að lögregla hefði getað gripið til umræddrar valdbeitingar. Tók Landsréttur tillit til þess að lögreglumennirnir hefðu varað mótmælendur við því að ef þeir færðu sig ekki af götunni yrði piparúða beitt. Taldi Landsréttur því ekki efni til þess að breyta niðurstöðu héraðsdóms þar sem ríkið var sýknað af öllum kröfum. Tengdar fréttir Mótmæli á Íslandi Myndir: Mótmælendur fóru inn í ráðuneytið 23 fengið bætur vegna mistaka í skýrslu Mótmælendur brutu skilmála borgarinnar Mótmælt á Austurvelli Enginn gagnagrunnur um mótmælendur » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Ríkið sýknað í Skuggasundsmálinu Diallo hetjan gegn Frakklandi Nemendur saumuðu teppi fyrir vökudeildina Reynir aldrei að „skýra burt“ ofbeldið Harma og mótmæla ákvörðuninni harðlega Umræðan Evran er ekki töfralausn Engan afslátt Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Mat ráðuneytis annað en höfunda Erum augu og eyru bandalagsins Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Höfða mál gegn borginni: Réttindi ekki valkvæð Mest lesið Í gær Í vikunni Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs SS hyggst hætta halal-slátrunum Þekkt nöfn í eigendahópi nýs kaffihúss Unglingsstúlka fannst meðvitundarlaus í Firði Andlát: Ragna Ragnars Hefur mikla þýðingu fyrir kaupendur fasteigna Ákærður fyrir manndráp af gáleysi eftir banaslys Er bæði eyðilagður og sorgmæddur Vill skoða sölu eða niðurlagningu Sorpu „Þetta er bara alveg hræðilegt“ Áslaug Arna hættir á Alþingi Íslendings saknað á Taílandi Þota Icelandair föst á Tenerife eftir árekstur Andlát: Steingrímur Ari Arason Tekist á um hvort hundur megi drekka úr vatnshana Hegðunar- og agavandamál áberandi Vara við smáskilaboðum: Ekki ýta á hlekkinn Flytja fanga úr landi og losa um tugi rýma Deilan snúi ekki að launakjörum: Áratuga kverkatak Íslendingur vann 10 milljónir í Víkinglottó Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Íslendings saknað á Taílandi Nýjast á mbl.is » Ríkið sýknað í Skuggasundsmálinu Diallo hetjan gegn Frakklandi Nemendur saumuðu teppi fyrir vökudeildina Reynir aldrei að „skýra burt“ ofbeldið Harma og mótmæla ákvörðuninni harðlega Umræðan Evran er ekki töfralausn Engan afslátt Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Friðuðu húsi verður ekki breytt „Græðir ekkert á því að mjólka dauða belju“ Nigel Farage ólíklegur á fund Viðreisnar „Verið að svíkja öll loforð“ Mest lesið Í gær Í vikunni Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs SS hyggst hætta halal-slátrunum Þekkt nöfn í eigendahópi nýs kaffihúss Unglingsstúlka fannst meðvitundarlaus í Firði Andlát: Ragna Ragnars Hefur mikla þýðingu fyrir kaupendur fasteigna Ákærður fyrir manndráp af gáleysi eftir banaslys Er bæði eyðilagður og sorgmæddur Vill skoða sölu eða niðurlagningu Sorpu „Þetta er bara alveg hræðilegt“ Áslaug Arna hættir á Alþingi Íslendings saknað á Taílandi Þota Icelandair föst á Tenerife eftir árekstur Andlát: Steingrímur Ari Arason Tekist á um hvort hundur megi drekka úr vatnshana Hegðunar- og agavandamál áberandi Vara við smáskilaboðum: Ekki ýta á hlekkinn Flytja fanga úr landi og losa um tugi rýma Deilan snúi ekki að launakjörum: Áratuga kverkatak Íslendingur vann 10 milljónir í Víkinglottó Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Íslendings saknað á Taílandi

Share this article