Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Landsréttur sýknar ríkið af skaðabótakröfum mótmælenda

Read Full Article →

Íslenska ríkið var sýknað í Landsrétti af kröfum níu mótmælenda sem kröfðust skaðabóta vegna aðgerða lögreglu í mótmælum við ráðherrafund árið 2024. Ríkið var sýknað af kröfum mótmælendanna í héraðsdómi Reykjavíkur í fyrravor. Oddur Ástráðsson, lögmaður níumenninganna, segir niðurstöðuna vonbrigði. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um áfrýjun málsins. Níumenningarnir mótmæltu fyrir utan ríkisstjórnarfund 31. maí í fyrra. Fundurinn var haldinn við Skuggasund í húsakynnum umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins. Hópurinn hafði komið saman til þess að mótmæla aðgerðaleysi íslenskra stjórnvalda vegna stríðsglæpa ísraelska hersins á Gaza. Lögregla hafi gætt meðalhófs Landsréttur staðfesti dóm héraðsdóms þar sem kemur fram að lögregla hafi gætt meðalhófs í aðgerðum sínum. Í aðgerðunum beitti lögregla piparúða að mótmælendunum. Í dómi Hæstaréttar var sagt að mótmælendur hefðu hagað sér ófriðsamlega en í dómi Landsréttar var orðalaginu hins vegar breytt. Oddur segir það vera lítinn sigur í málinu að orðalaginu í dómnum hafi verið breytt. Oddur segir að fyrst og fremst hafi verið tekin ákvörðun um að fara í mál við ríkið til þess að veita valdinu aðhald, lögregla hafi misbeitt valdi í mótmælunum. Oddur segir að ekki hafi enn verið tekin ákvörðun um áfrýjun dómsins.

Share this article