Innlent | mbl | 4.6.2026 | 21:10 Livio gert að greiða Ingunni 25 milljónir Landsréttur tók fram að ekki lægju fyrir gögn sem styddu það að Ingunn hefði tekið þátt í tilgreindri starfsemi á tímabilinu. Ljósmynd/Aðsend Setja bókamerki Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Ingunnar Jónsdóttur frjósemislæknis gegn frjósemismiðstöðinni Livio. Er Livio gert að greiða Ingunni tæpar 25 milljónir króna auk dráttarvaxta og 1.350 þúsund krónur í málskostnað. Í málinu var deilt um greiðslu 20% eftirstöðva kaupverðs Livio á hlut Ingunnar í IVF holding ehf., móðurfélagi Livio. Ingunni var sagt upp störfum hjá Livio í júlí 2019. Taldi hún uppsögnina ólögmæta og höfðaði mál gegn Livio og IVF Holding. Málinu lauk með dómsátt í nóvember 2020 og varð þá gerður kaupsamningur um eignarhlutina. Í samningnum var kveðið á um að Livio skyldi kaupa allan eignarhlut Ingunnar í IVF gegn greiðslu peninga. 80% skyldi greiða 20 dögum eftir að verðið yrði ákveðið af óháðum aðila og 20% yrðu lögð inn á vörslureikning. Þórir og Ingunn hjá Sunnu frjósemi ehf. Ljósmynd/Aðsend Lágu ekki fyrir gögn sem studdu þátttöku Þá var í samningnum mælt fyrir um trúnaðarskyldur og samkeppnishömlur Ingunnar í þrjú ár. Að loknu þriggja ára tímabilinu skyldi Ingunn fá eftirstöðvarnar greiddar. Eiginmaður Ingunnar stofnaði félag snemma árs 2023, annað í desember 2023. Tilgangur þess fyrra var sagður heilbrigðisþjónusta og síðara frjósemismiðstöð. Þá taldi Livio að Ingunn hefði brotið samkomulagið enda hefði hún vísast haft með í ráðum við stofnun félaganna og ætti ekki rétt á tuttugu prósenta greiðslu eftirstöðvanna. Það var þó ekki fyrr en í mars 2024 sem upplýsingar voru gefnar um að Ingunn væri þátttakandi í undirbúningi opnunar nýrrar frjósemismiðstöðvar, Sunnu, en þá var einn og hálfur mánuður liðinn frá því að samkeppnishömlunum var létt. Frétt af mbl.is Auka samkeppni á frjósemismarkaði Í dómi Landsréttar var vísað til þess að ákvæði um samkeppnisbann hefðu í dómaframkvæmd gjarnan verið túlkuð þröngt og að sá sem héldi fram broti gegn slíku ákvæði bæri almennt sönnunarbyrði fyrir þeirri staðhæfingu sinni. Landsréttur tók fram að samkeppnisákvæðið hefði falið í sér að Ingunni væri óheimilt í þrjú ár að stunda eða taka þátt í tilgreindri starfsemi og að ekki lægju fyrir gögn sem styddu það að hún hefði tekið þátt í slíkri starfsemi á tímabilinu. Þá hefði stofnun eiginmanns hennar á tveimur einkahlutafélögum á tímabilinu ekki falið í sér brot á samningsákvæðinu og yrði raunar ekki séð að eiginmaðurinn eða félögin hefðu hafið starfsemi í skilningi ákvæðisins á umræddu þriggja ára tímabili. Að því gættu og að öðru leyti með vísan til forsendna dómsins í héraði var hann staðfestur. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Reynir aldrei að „skýra burt“ ofbeldið Harma og mótmæla ákvörðuninni harðlega Andoni Iraola: Markmiðið að vinna titla Livio gert að greiða Ingunni 25 milljónir Real Madrid jafnaði metin gegn Tenerife Umræðan Evran er ekki töfralausn Engan afslátt Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Þetta er bara alveg hræðilegt“ Landsliðin flugu með íslenskum vélum Hundrað skjálftar mælst við Þórisjökul Friðuðu húsi verður ekki breytt Mest lesið Í gær Í vikunni Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs SS hyggst hætta halal-slátrunum Þekkt nöfn í eigendahópi nýs kaffihúss Andlát: Ragna Ragnars Unglingsstúlka fannst meðvitundarlaus í Firði Hefur mikla þýðingu fyrir kaupendur fasteigna Ákærður fyrir manndráp af gáleysi eftir banaslys Er bæði eyðilagður og sorgmæddur Vill skoða sölu eða niðurlagningu Sorpu Sektuð fyrir að kalla dómara „lausláta mellu“ Áslaug Arna hættir á Alþingi Íslendings saknað á Taílandi Þota Icelandair föst á Tenerife eftir árekstur Andlát: Steingrímur Ari Arason Tekist á um hvort hundur megi drekka úr vatnshana Hegðunar- og agavandamál áberandi Vara við smáskilaboðum: Ekki ýta á hlekkinn Flytja fanga úr landi og losa um tugi rýma Deilan snúi ekki að launakjörum: Áratuga kverkatak Íslendingur vann 10 milljónir í Víkinglottó Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Íslendings saknað á Taílandi Nýjast á mbl.is » Reynir aldrei að „skýra burt“ ofbeldið Harma og mótmæla ákvörðuninni harðlega Andoni Iraola: Markmiðið að vinna titla Livio gert að greiða Ingunni 25 milljónir Real Madrid jafnaði metin gegn Tenerife Umræðan Evran er ekki töfralausn Engan afslátt Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Stjórnvöld nýti neyðar- og fullveldisrétt Íslands Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs „Þetta er bara alveg hræðilegt“ Hundrað skjálftar mælst við Þórisjökul Mest lesið Í gær Í vikunni Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs SS hyggst hætta halal-slátrunum Þekkt nöfn í eigendahópi nýs kaffihúss Andlát: Ragna Ragnars Unglingsstúlka fannst meðvitundarlaus í Firði Hefur mikla þýðingu fyrir kaupendur fasteigna Ákærður fyrir manndráp af gáleysi eftir banaslys Er bæði eyðilagður og sorgmæddur Vill skoða sölu eða niðurlagningu Sorpu Sektuð fyrir að kalla dómara „lausláta mellu“ Áslaug Arna hættir á Alþingi Íslendings saknað á Taílandi Þota Icelandair föst á Tenerife eftir árekstur Andlát: Steingrímur Ari Arason Tekist á um hvort hundur megi drekka úr vatnshana Hegðunar- og agavandamál áberandi Vara við smáskilaboðum: Ekki ýta á hlekkinn Flytja fanga úr landi og losa um tugi rýma Deilan snúi ekki að launakjörum: Áratuga kverkatak Íslendingur vann 10 milljónir í Víkinglottó Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Íslendings saknað á Taílandi