Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Undirbúa nýja tolla á 59 ríki og ESB

Read Full Article →

Ríkis­stjórn Bandaríkjanna áformar að leggja nýja tolla á 59 við­skiptaríki og Evrópu­sam­bandið fyrir meinta van­rækslu þeirra við að taka á ábendingum um nauðungar­vinnu. Með þessu reynir ríkis­stjórnin að leggja nýja tolla í stað þeirra sem Hæstiréttur Bandaríkjanna dæmdi ólög­lega fyrr í ár. Álagningarhlutfall nýju tollanna verður a.m.k. 10%, að því er segir í frétt WSJ . Sjá einnig Hæstiréttur felldi flesta tolla Trumps úr gildi Embætti viðskiptafulltrúa Bandaríkjana (e. Office of the United States Trade Representative, USTR) tilkynnti í gærkvöldi um a vörur frá Kanada, Mexíkó, Evrópusambandinu og fleiri löndum myndu sæta nýjum 10% tolli þar sem rannsóknir hafi gefið til kynna að umrædd ríki hafi gert viðeigandi ráðstafanir til að koma í veg fyrir innflutning vara sem voru framleiddar af fólki í nauðungarvinnu. Álagningarhlutfallið verður 12,5% á vörur frá Kína, Japan, Indlandi og fleiri þjóðum þar sem þau banna ekki slíkan innflutning og hafa ekki skuldbundið sig til að koma í veg fyrir það með viðskiptasamningi við Trump-stjórnina, að því er segir í tilkynningu USTR. „Það er óásættanlegt að mikilvægustu viðskiptalönd okkar hafi ekki gert ráðstafanir til að bregðast við innflutningi á vörum sem framleiddar eru með nauðungarvinnu,“ sagði Jamieson Greer, viðskiptafulltrúi Bandaríkjanna. Prófessor í alþjóðastjórnmálum við IMD viðskiptaháskólann í Sviss segir að með nýju tollunum sé ríkisstjórnin að endurreisa „tollamúr sinn“.

Share this article