Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Tómas Brynjólfsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, gera grein fyrir yfirlýsingu sem fjármálastöðugleikanefnd bankans sendi frá sér í morgun á kynningarfundi sem hefst kl. 9:30. Á fundinum verður jafnframt fjallað um tvö rit sem bankinn birti í morgun, Álagspróf og svo Sérrit um viðbúnað fjármálakerfisins við alvarlegum rekstrartruflunum . Í yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar segir m.a. að lánveitendur þurfi að gæta að aukinni áhættu í byggingageiranum. Þá segir að áhætta í rekstri fjármálainnviða hafi aukist.