Viðskipti | mbl | 3.6.2026 | 16:25 Ásgeir: „Sjaldan verið meiri óvissa“ Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. mbl.is/Karítas Markús Ívar Halldórsson [email protected] Setja bókamerki Seðlabanki Íslands leggur áherslu á samvinnu samfélagsins í heild til þess að vinna að raunverulegum viðnámsþrótti og fjármálastöðugleika. Seðlabankastjóri segir sjaldan hafa ríkt jafn mikil óvissa í alþjóðakerfinu. Þá verða heimili landsins að vera undirbúin fyrir mögulegt tímabundið óaðgengi að greiðsluleiðum sem þau eru vön að nota. Á kynningarfundi Seðlabanka Íslands í dag var gerð grein fyrir yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankans. Um kynninguna sáu Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Tómas Örn Brynjólfsson varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika. Ásgeir opnaði kynninguna og sagði meðal annars fjármálakerfið hér á landi vera vel í stakk búið til að bregðast við ófyrirsjáanlegum áföllum. Seðlabanki Íslands. mbl.is/Árni Sæberg Sjaldan verið meiri óvissa Að sögn Ásgeirs hefur „sjaldan verið meiri óvissa í alþjóðakerfinu“. Tómas Örn tók undir þetta og sagði óvissuna „alltumlykjandi“. Þá er umtöluð óvissa að miklu leyti tilkomin vegna aukinnar nothæfi gervigreindar við framkvæmd netárása en hún hefur gert slíkar árásir bæði ódýrari og algengari. Frétt af mbl.is Þrjú hundruð krítískir veikleikar Kynntu fjölbreyttar aðgerðir Í kynningunni komu fram fjölbreyttar aðgerðir sem Seðlabankinn vinnur að sem ætlað er að auka seiglu fjármálakerfisins í kjölfar vaxandi óvissu og ógnarinnar sem stafar af netárásum. Styrkja á greiðslumiðlun með því að gera kortaviðskipti möguleg þrátt fyrir netleysi og fjölga greiðsluleiðum í verslunum bæði á sölustað og á netinu. Efla á viðbúnað fyrir nauðsynlega fjármálaþjónustu, meðal annars með atvikamiðstöð, samhæfingaráætlun og skýrari skilgreiningu á nauðsynlegri fjármálaþjónustu. Einnig er unnið að betri yfirsýn og samskiptum með kerfislega mikilvægum innviðum með auknum kröfum og tíðari samskiptum. Ásgeir sagði samhæfðan viðbúnað gegn rekstraratvikum vera grundvöll fjármálastöðugleika. Það á þá ekki einungis við samhæfðan viðbúnað fjármálastofnana og fyrirtækja, heldur einnig almennings í heild sinni. Samvinna sé nauðsynleg „Aukin seigla fjármálakerfisins er ekkert einkamál seðlabankans,“ sagði Tómas Örn, en í kynningu hans kom fram að hver og einn þurfi að leggja sitt af mörkum ef samfélagið eigi að búa við raunverulegan viðnámsþrótt. Heimili landsins verði að vera undirbúin fyrir mögulegt tímabundið óaðgengi að greiðsluleiðum sem þau eru vön að nota. Þá er vert að huga að því að geta greitt á fleiri en einn máta. Hvetur Tómas fólk til þess að eiga fleiri en eitt greiðslukort „og að hafa eitthvað reiðufé við höndina“. Söluaðilar skuli huga að fjölbreytni í mögulegum greiðsluleiðum viðskiptavina, meðal annars með móttöku reiðufjár og millifærslum. Aðilar á fjármálamarkaði ættu að vera viðbúnir fyrir varaleiðum til að framkvæma nauðsynlega fjármálaþjónustu. Þurfa þeir þá að tryggja öryggi gagna, vinna að varaleiðum fyrir millifærslur og gera einstaklingum og fyrirtækjum aðgengilegt að nálgast reiðufé. Fleiri upplýsingar frá fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans má nálgast á vefsíðu Seðlabankans. mbl.is/Karítas Netlaus notkun greiðslukorta stórt skref Notkun greiðslukorta í netleysi segir Tómas vera eitt mikilvægasta skrefið í átt að auknum viðnámsþrótti. Sagði hann að um mitt ár yrði hægt að nota plastkort með pin-númeri í netleysi. Auglýst verður þegar þessi eiginleiki plastkortanna verður mögulegur. Þá vinnur Seðlabankinn að ýmsum öðrum aðgerðum sem ætlað er að styrkja innviði enn frekar. Fleira áhugavert kom fram í kynningunni en hægt er að horfa á upptöku af fundinum hér fyrir neðan. Nánari upplýsingar má finna á vef Seðlabankans. Blogga um frétt Pistlar » Sigurður Már Jónsson Mette opnar gjafabúðina Sigurður Már Jónsson Elon Musk selur aðgang að geimnum Fleira áhugavert Stjórnin „gjörsamlega að taka þetta mjög alvarlega“ Ásgeir: Skrýtin nálgun í pappírnum Frederiksen heldur áfram um stjórnartaumana Meiri svartsýni í fréttum en raunveruleikinn sýnir Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Seðlabankastjóri gagnrýnir skýrsluna Rauður dagur í Kauphöllinni Bankarnir geti staðið af sér verulegt áfall Beint: Ásgeir og Tómas fara yfir stöðuna Ásgeir: Skrýtin nálgun í pappírnum Enn lækkar virði Oculis Signý tekin við stjórnarformennsku hjá Deloitte ESA heimilar tímabundna ríkisaðstoð Vinna úr CO2 frá stálrisa 370 manns sagt upp í maí Ásgeir: Skrýtin nálgun í pappírnum Beint: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Aukin hætta á meiri verðbólgu Viðskipti með Oculis vekja grunsemdir 370 manns sagt upp í maí Áfram lækkar hlutabréfaverð Oculis Vinna úr CO2 frá stálrisa Anthropic heldur fíleflt á hlutabréfamarkað Nærri milljarður í hagnað af rekstrinum Brim kaupir Lýsi á lægra verði Helga hættir sem framkvæmdastjóri Bláa lónsins Viðskipti með Oculis vekja grunsemdir Brim kaupir Lýsi á lægra verði Fjölda sagt upp hjá Rapyd: Nú rekið af gervigreind Bendir á fleiri leiðir en að hækka laun Sómi í nýjar hendur Eldrauð kauphöll í upphafi dags Hlutabréf Oculis féllu eftir að prófanir skiluðu ekki árangri Ásgeir: Skrýtin nálgun í pappírnum Seðlabankastjóri gagnrýnir skýrsluna Pistlar » Sigurður Már Jónsson Mette opnar gjafabúðina Sigurður Már Jónsson Elon Musk selur aðgang að geimnum Fleira áhugavert Ásgeir: Skrýtin nálgun í pappírnum „Skelfilega erfið mál“ Meiri svartsýni í fréttum en raunveruleikinn sýnir Ráðherrar tjá sig ekki um kjaradeiluna Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Seðlabankastjóri gagnrýnir skýrsluna Rauður dagur í Kauphöllinni Bankarnir geti staðið af sér verulegt áfall Beint: Ásgeir og Tómas fara yfir stöðuna Ásgeir: Skrýtin nálgun í pappírnum Enn lækkar virði Oculis Signý tekin við stjórnarformennsku hjá Deloitte ESA heimilar tímabundna ríkisaðstoð Vinna úr CO2 frá stálrisa 370 manns sagt upp í maí Ásgeir: Skrýtin nálgun í pappírnum Beint: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Aukin hætta á meiri verðbólgu Viðskipti með Oculis vekja grunsemdir 370 manns sagt upp í maí Áfram lækkar hlutabréfaverð Oculis Vinna úr CO2 frá stálrisa Anthropic heldur fíleflt á hlutabréfamarkað Nærri milljarður í hagnað af rekstrinum Brim kaupir Lýsi á lægra verði Helga hættir sem framkvæmdastjóri Bláa lónsins Viðskipti með Oculis vekja grunsemdir Brim kaupir Lýsi á lægra verði Fjölda sagt upp hjá Rapyd: Nú rekið af gervigreind Bendir á fleiri leiðir en að hækka laun Sómi í nýjar hendur Eldrauð kauphöll í upphafi dags Hlutabréf Oculis féllu eftir að prófanir skiluðu ekki árangri Ásgeir: Skrýtin nálgun í pappírnum Seðlabankastjóri gagnrýnir skýrsluna