Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Lars Løkke Rasmussen verður áfram utanríkisráðherra

Read Full Article →

Þriðja ríkisstjórn Danmerkur undir forsæti Mette Frederiksen var kynnt í morgun. Lars Løkke Rasmussen, leiðtogi Moderaterne, verður áfram utanríkisráðherra. Hann hefur setið á danska þinginu síðan 1994 og gegnt ýmsum ráðherraembættum, þar á meðal verið forsætisráðherra tvisvar. Mikið mæddi á honum á síðasta kjörtímabili eftir hótanir Donalds Trumps um að taka yfir Grænland, með góðu eða illu. Pia Olsen Dyhr, leiðtogi Sósíalíska þjóðarflokksins, verður efnahags- og innanríkisráðherra og Martin Lidegaard, leiðtogi Radikale, verður iðnaðarráðherra og ráðherra samkeppnismála. Nicolai Wammer og Peter Hummelgard úr Jafnaðarmannaflokknum skipta um embætti. Wammen tekur við dómsmálaráðuneytinu og Hummelgard verður fjármálaráðherra. Ráðherrarnir í nýju ríkisstjórninni eru 21 talsins og þar af eru 11 konur. Þetta er í fyrsta sinn í sögu Danmerkur sem konur í ríkisstjórn eru fleiri en karlar. Mette Frederiksen sagðist í morgun vera stolt af þeirri ríkisstjórn sem flokkarnir fjórir hafi myndað. Níu ráðherrar koma úr röðum jafnaðarmanna, fimm frá Sósíalíska þjóðarflokknum, fjórir úr Moderaterne og þrír frá Radikale.

Share this article