Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hundakallinn og partíljónið Lars Løkke Rasmussen

Read Full Article →

Í aðdraganda nýafstaðinna kosninga í Danmörku gekk á með skoðanakönnunum eins og gengur. Í febrúar lögðu aðspurðir mat á hvaða danski stjórnmálamaður væri að þeirra mati duglegastur, hverjum væri helst treystandi og hver er viðkunnanlegastur, eða mest sympatískur. Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, bar höfuð og herðar yfir aðra kollega sína í einni af þessum mælingum . Næstum 70% aðspurðra sögðu hann duglegasta stjórnmálamanninn. Forsætisráðherrann Mette Frederiksen var í öðru sæti. Rasmussen skoraði hins vegar alls ekki eins hátt þegar traust var annars vegar, þar fékk hann aðeins 19% og einungis 15% sögðu hann viðkunnlegastan allra danskra stjórnmálamanna. Þrjátíu ár á þingi og margir ráðherrastólar Þessi duglegi maður var meðal þeirra sem var fjallað um í síðasta þætti Heimskviða: Lars Løkke Rasmussen. Hann er fæddur 15. maí 1964, sem þýðir að það styttist í 62 ára afmælið. Hann er eldri en tvævetur í danskri pólitík, hefur í raun setið á danska þinginu, Folketinget, meira og minna í rúm 30 ár, frá 1994. Hann hefur verið formaður tveggja stjórnmálaflokka og gegnt embættum forsætisráðherra, innanríkis- og heilbrigðisráðherra, fjármálaráðherra og nú síðast utanríkisráðherra. Kannski ekki skrýtið að fólki finnist hann duglegur. Hann var formaður hins rótgróna frjálslynda hægriflokks Venstre lengi vel. Hann sagði af sér sem formaður flokksins 2019 og sagði sig formlega úr flokknum 2021. Nokkrum mánuðum síðar stofnaði hann sinn eigin flokk, Moderaterne, sem sat í ríkisstjórn með jafnaðarmönnum í Socialdemokraterne og jú, gömlu félögunum úr Venstre fram að kosningum í gær. Í þeirri ríkisstjórn var Rasmussen utanríkisráðherra frá 2022. Eins og skoðanakannanir gáfu til kynna náðu hvorki rauða né bláa blokkin að tryggja sér tilskilinn meirihluta þingmanna á danska þinginu. Lars Løkke Rasmussen er því, eins og spáð var, í lykilstöðu þegar kemur að stjórnarmyndunarviðræðum. Moderaterne skilgreinir sig utan hinna hefðbundnu blokka og er því í stöðu sem kallast á dönsku kongemager , sá sem hefur úrslitaatkvæðið til að koma annarri blokkinni til valda. Sígó og „klesstann“ En hvað verður næst veit enginn nú, hvort Rasmussen verður enn og aftur í ríkisstjórn og þá í hvaða ráðuneyti. Hann vakti hins vegar heimsathygli í síðasta embætti sínu sem utanríkisráðherra. Hann sat hitafund í Hvíta húsinu með grænlensku þáverandi starfssystur sinni, Vivian Motzfeld. Fundurinn var haldinn til að reyna að dempa óskaplegan áhuga bandarískra stjórnvalda að eigna sér Grænland. Þetta var átakafundur en að honum loknum stormaði Rasmussen frá Hvíta húsinu, gaf einum viðstöddum á bílaplaninu „klesstann“ og kveikti sér svo í að því er virtist langþráðri sígarettu. „Klesstann“ hér í merkingunni „klesstu hann“ sem er notað yfir athöfnina að smella saman hnúunum á krepptum hnefum. Oftast notað í kumpánlegum tilgangi, til dæmis þegar heilsast er eða fagna á góðu gengi. Partíljón og hundakall Lars Løkke Rasmussen hefur verið lýst sem partíljóni. Orðið yfir það á dönsku er reyndar „festabe“ eða „partíapi“. Ekki er greinarhöfundi ljóst hvers vegna Danir tengja skemmtanaglaða við apa en við notumst við ljón. En það er kannski aukaatriði hér. Eiginkona Rasmussen er færeysk. Hún heitir Sólrun Løkke Rasmussen og saman eiga þau þrjú börn. Eitt þeirra, sonurinn Bergur Løkke Rasmussen, hefur fetað í fótspor föður síns og situr á Evrópuþinginu fyrir hönd Moderatarne. Og þeir feðgar eiga fleira sameiginlegt. Þeir deila loðnum afkomendum ef svo má segja. Rasmussen er nefnilega hundakall. Þau hjónin eiga tvo hunda sem þeim þykir greinilega snoppufríðir því þeir heita Fríða og Beauty. Það rataði í fréttir fyrir tveimur árum þegar Fríða eignaðist óvart hvolpa með Atlasi, hundi Bergs sonar Rasmussen. Eins og skoðanakannanir gáfu til kynna stendur Lars Løkke Rasmussen, formaður Moderaterne, með pálmann í höndunum eftir kosningar í Danmörku í gær. Hann er eldri en tvævetur í pólitíkinni og hefur verið lýst sem dugnaðarforki og partíljóni.

Share this article