Innlent | Morgunblaðið | 2.6.2026 | 21:30 Borgin eigi ekki að reka utanríkisstefnu Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Lilja Björg ráðin sveitarstjóri Unnur Brá sveitarstjóri í nýstofnuðu sveitarfélagi Sjálfstæðismenn með formennsku í 7 af 8 ráðum Nýr meirihluti í Norðurþingi „Þetta eru auðvitað kaflaskil í mínu lífi“ » Fleiri tengdar fréttir Dagmál Fólk vill „burt með þetta rugl“ Situr í öldungaráði Hehe-ættbálksins Vill tengja Tansaníu, Tesla og Ísland „Mér finnst það ekki sanngjarnt“ Segir ESB-umræðu hafa skyggt á kosningarnar » Fleiri tengdar fréttir Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir að nýr meirihluti í Reykjavík ætli að „hætta þessari dellu“ sem hafi verið í gangi í borgarkerfinu og einbeita sér að því sem raunverulega skipti máli. Nýr meirihluti í Reykjavík vill að íslenski fáninn verði að jafnaði dreginn að húni daglega við Ráðhús Reykjavíkur og aðrar stjórnsýslustofnanir borgarinnar í stað þess að borgin flaggi erlendum þjóðfánum vegna alþjóðlegra mála. Í samtali við Andrés Magnússon í Dagmálum Morgunblaðsins segir hún að Reykjavíkurborg eigi ekki að reka sjálfstæða utanríkisstefnu. „Við ætlum að svona reyna að hætta þessari dellu sem hefur verið í gangi í borgarkerfinu og einbeita okkur að því sem raunverulega skiptir máli,“ segir Hildur. Nýr borgarstjóri og þáttaskil í Reykjavík Hún segir málið ekki nýtt af nálinni. Fyrir ári hafi hún lagt fram tillögu í borgarráði um að íslenski fáninn yrði dreginn að húni daglega við Ráðhús Reykjavíkur. „Tillagan hefur ekki enn fengið afgreiðslu ári síðar, þannig að þetta er nú mál sem upprunalega kemur frá mér og ég hef svona sett á oddinn,“ segir hún. Frétt af mbl.is Vilja fella úr gildi nýsamþykktar fánareglur „Engin utanríkismálanefnd rekin í Ráðhúsi Reykjavíkur“ Hildur segir ekkert í samþykktum borgarinnar kveða á um að Reykjavíkurborg eigi að fjalla um utanríkismál eða taka afstöðu í alþjóðlegum deilum. „Það er engin utanríkismálanefnd rekin í Ráðhúsi Reykjavíkur,“ segir Hildur. Hún segir slík mál eiga heima í utanríkisráðuneytinu, utanríkismálanefnd Alþingis eða annars staðar á vettvangi ríkisins, en ekki í Ráðhúsi Reykjavíkur. „Þannig að við ætlum að taka niður erlenda þjóðfána. Og draga upp þann íslenska og hann fær að blakta við hún á degi hverjum við Ráðhús Reykjavíkur,“ segir Hildur. Aðrir fánar við sérstök tilefni Hildur tekur fram að ekki sé verið að útiloka að aðrir fánar verði dregnir að húni við sérstök tilefni. Hún nefnir sérstaklega að hinsegin fáninn fari upp þegar Pride-gangan fari fram í miðborginni. „Auðvitað þegar að það er Pride-gangan niðri í bæ, þá fer hinsegin fáninn upp og svo er eitthvert annað tilefni og þá má draga hvern annan fána upp og svo fara þeir bara niður,“ segir hún. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri ætlar að breyta um kúrs í fánanotkun í ráðhúsinu. Samsett mynd/mbl.is/Kristófer Liljar Að hennar sögn á íslenski fáninn hins vegar að vera sá fáni sem blakti að jafnaði við ráðhúsið. „Á degi hverjum þá fáum við að sjá fallega íslenska fánann,“ segir Hildur. Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar tekur við völdum í Reykjavík í dag. Fyrsta tillaga meirihlutans snýr að fánareglum borgarinnar. Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Lilja Björg ráðin sveitarstjóri Unnur Brá sveitarstjóri í nýstofnuðu sveitarfélagi Sjálfstæðismenn með formennsku í 7 af 8 ráðum Nýr meirihluti í Norðurþingi „Þetta eru auðvitað kaflaskil í mínu lífi“ » Fleiri tengdar fréttir Dagmál Fólk vill „burt með þetta rugl“ Situr í öldungaráði Hehe-ættbálksins Vill tengja Tansaníu, Tesla og Ísland „Mér finnst það ekki sanngjarnt“ Segir ESB-umræðu hafa skyggt á kosningarnar » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Snýr aftur til Manchester United Láta vélmenni slá gras á Klambratúni Lögmaður kærður fyrir að draga sér talsvert fé Fjölmiðlamönnum vísað út og gerðar sektir Borgin eigi ekki að reka utanríkisstefnu Umræðan Af hverju er ESB svona vinsælt? Krónan kostar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Skjálftarnir malla áfram“ Engin töfralausn til í gjaldmiðlamálum Ásgeir: Skrýtin nálgun í pappírnum „Skelfilega erfið mál“ Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Margrét Jónsdóttir Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Mennirnir ekki tengdir fjölskylduböndum „Reta er bara Ozempic á sterum“ Segir lyfin geta dregið fólk til dauða Stefna að upptöku evru „Skelfilega erfið mál“ Tveir skólar sameinast í haust Vilja grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar Markaðsvirði Oculis hrynur Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Braut gegn stúlku sem lá á bráðamóttöku Mótmælendur öskruðu og blístruðu á þingheim Flugi Icelandair aflýst vegna mönnunarvanda Jafnlaunavottun lögð niður Kort: Hrinan á svæði þar sem líkur eru á gosupptökum „Ætlaði aldrei að eignast nýja vini“ Útskýring fengin á lágfluginu Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Andlát: Margrét Jónsdóttir Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Nýjast á mbl.is » Snýr aftur til Manchester United Láta vélmenni slá gras á Klambratúni Lögmaður kærður fyrir að draga sér talsvert fé Fjölmiðlamönnum vísað út og gerðar sektir Borgin eigi ekki að reka utanríkisstefnu Umræðan Af hverju er ESB svona vinsælt? Krónan kostar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Meiri svartsýni í fréttum en raunveruleikinn sýnir Ógnar íslensku atvinnulífi Nýr langtímasamningur við Ljósið í höfn „Krabbameinsgreindum er að fjölga“ Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Margrét Jónsdóttir Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Mennirnir ekki tengdir fjölskylduböndum „Reta er bara Ozempic á sterum“ Segir lyfin geta dregið fólk til dauða Stefna að upptöku evru „Skelfilega erfið mál“ Tveir skólar sameinast í haust Vilja grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar Markaðsvirði Oculis hrynur Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Braut gegn stúlku sem lá á bráðamóttöku Mótmælendur öskruðu og blístruðu á þingheim Flugi Icelandair aflýst vegna mönnunarvanda Jafnlaunavottun lögð niður Kort: Hrinan á svæði þar sem líkur eru á gosupptökum „Ætlaði aldrei að eignast nýja vini“ Útskýring fengin á lágfluginu Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Andlát: Margrét Jónsdóttir Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug