Meirihluti Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar tók við stjórnartaumunum í Reykjavík á þriðjudaginn. Sama dag birtist viðtal við nýjan borgarstjóra, Hildi Björnsdóttur, oddvita sjálfstæðismanna, í Morgunblaðinu. Í viðtalinu fór Hildur yfir helstu áherslur nýs meirihluta á kjörtímabilinu. Þar sagði hún að nýr meirihluti hefði skýrt umboð frá kjósendum til að ráðast í víðtækar breytingar á borgarkerfinu, skera niður í yfirbyggingu, draga úr sóun, endurskoða samgöngustefnuna og bæta þjónustu við fjölskyldur: „Fólk vill breytingar, það vill nýjar áherslur, fólk vill bara þetta rugl burt,“ sagði Hildur. Til að lesa meira Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér. Verð frá 6.295 kr. á mánuði Kaupa áskrift