Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Ein­nota sós­u­pakkningar og hótelsjampó á bannlista ESB

  • What: EU plans to ban single-use packaging by 2030
  • Impact: Businesses will need to adopt more sustainable alternatives
Read Full Article →

Litlu tómatsós­u­pakkningarnar sem margir kannast við af skyndi­bitastöðum og kaffi­húsum eru á leið á bann­lista í Evrópu­sam­bandinu. Sam­kvæmt nýjum reglum ESB um um­búðir og um­búðaúr­gang verður frá árinu 2030 bannað að nota til­teknar ein­nota um­búðir þar sem þær eru taldar óþar­far eða þar sem sjálf­bærari val­kostir eru í boði. Fram­kvæmda­stjórn ESB nefnir sjálf sem dæmi litlar tómatsós­u­pakkningar á veitingastöðum og litlar sjampóflöskur á hótelum. Reglurnar eru hluti af víðtækari að­gerðum til að draga úr um­búðaúr­gangi, auka endur­vinnslu og fjölga endur­nýtan­legum lausnum. Þetta þýðir þó ekki að tómatsósa verði bönnuð eða að veitingastaðir verði skyldaðir til að senda gesti út í kartöflurnar ósmurðar. Bannið beinist að um­búðunum, ekki inni­haldinu. Í stað lítilla ein­nota sós­u­pakkninga gætu veitingastaðir til dæmis boðið sósu úr stærri brúsum, fjöl­nota ílátum eða öðrum lausnum sem skapa minni úr­gang. ESB segir mark­miðið ekki vera að banna ein­nota um­búðir al­farið heldur að stöðva notkun þeirra þar sem hún sé óþörf. Ein­nota um­búðir sem eru nauð­syn­legar vegna mat­vælaöryggis, lýðheilsu eða læknis­fræði­legra nota verða áfram heimilar. Reglurnar ná einnig til net­verslana, sem þurfa að draga úr tómu rými í sendingar­kössum, og drykkja­rum­búða, þar sem aðildarríki þurfa að tryggja að 90% ein­nota plast- og málmíláta verði safnað sér­stak­lega fyrir árið 2029, nema sam­bæri­legum árangri sé náð með öðrum hætti. Á veitinga­markaði verður ekki allt ein­nota tekið út af borðinu. Í matar­sölu til að taka með eða senda heim eiga neyt­endur sam­kvæmt fram­kvæmda­stjórninni að geta valið milli ein­nota og endur­nýtan­legra íláta á sama verði eða lægra verði.

Share this article