Frímann Snær Guðmundsson hefur verið tekinn inn í eigendahóp Deloitte. Hann hóf störf hjá fjármálaráðgjöf Deloitte árið 2015. Frímann ber ábyrgð á þjónustu og ráðgjöf á sviði verðmata og líkanagerðar og hefur gegnt lykilhlutverki í uppbyggingu og þróun þeirrar þjónustu hér á landi, að því er segir í fréttatilkynningu Deloitte. Hann hefur reynslu af ráðgjöf og greiningum fyrir fyrirtæki í ýmsum atvinnugreinum, með sérhæfingu á sviði innviðaverkefna, orku- og veitumála, sjávarútvegs og fiskeldis sem og fasteignafélaga og tryggingamála. Þá hefur hann jafnframt leitt verkefni fyrir ráðuneyti, sveitarfélög og aðra opinbera aðila á sviði fjárhags- og arðsemisgreininga. Frímann er með M.Sc.-gráðu í fjármálahagfræði frá Háskóla Íslands og B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði frá sama skóla, auk þess sem hann stundaði skiptinám við Oklahoma State University í Bandaríkjunum. Þá öðlaðist hann reynslu hjá Deloitte í Danmörku á árunum 2016-2017 og hefur í framhaldinu unnið markvisst að auknu samstarfi Deloitte þvert á Norðurlöndin. Samhliða störfum sínum hefur hann meðal annars kennt námskeið við Háskóla Íslands á sviði viðskiptafræði og hagfræði. „ Frímann hefur um árabil verið traustur ráðgjafi fyrir marga af okkar lykilviðskiptavinum og hefur gegnt mikilvægu hlutverki í að styrkja og efla Fjármálaráðgjöf Deloitte. Það er því mikið ánægjuefni að bjóða hann velkominn í eigendahóp Deloitte og við hlökkum til áframhaldandi samstarfs á komandi árum,” segir Lovísa Finnbjörnsdóttir , forstjóri Deloitte.