Lovísa Finnbjörnsdóttir hefur verið ráðin forstjóri Deloitte á Íslandi. Lovísa hefur starfað hjá Deloitte frá 2011 og verið meðeigandi og sviðsstjóri fjármála- og stjórnendaráðgjafar frá árinu 2017. „Hún hefur víðtæka reynslu sem ráðgjafi og hefur stýrt fjölbreyttum ráðgjafarverkefnum fyrir íslensk og erlend fyrirtæki, fjárfesta sem og hið opinbera. Þá starfaði hún um tíma á skrifstofu Deloitte í Kaupmannahöfn,“ segir í tilkynningu Deloitte. Lovísa er með M.Sc.-gráðu í fjármálahagfræði frá Háskóla Íslands, M.Acc.-gráðu í reikningsskilum og endurskoðun og B.Sc.-gráðu í iðnaðarverkfræði frá sama skóla. „Það er með mikilli ánægju sem við tilkynnum að Lovísa Finnbjörnsdóttir hefur tekið við sem forstjóri Deloitte á Íslandi. Við hjá Deloitte búum vel að geta sótt öflugan leiðtoga úr okkar eigin röðum sem mun þróa starfsemina áfram, skerpa á stefnunni og styrkja stöðu Deloitte á Íslandi enn frekar. Við hlökkum til áframhaldandi sóknar undir forystu Lovísu. Hún býr yfir víðtækri reynslu sem stjórnandi og ráðgjafi og mun í nýju hlutverki leiða Deloitte á Íslandi og vinna áfram þétt með viðskiptavinum af þeirri fagmennsku og þekkingu sem einkennir starfsemi félagsins,“ segir stjórn Deloitte á Íslandi. „Ég er þakklát fyrir það traust sem mér er sýnt. Styrkur Deloitte felst fyrst og fremst í fólkinu okkar. Ég hlakka mikið til að vinna þétt með okkar öfluga teymi að áframhaldandi sókn og eflingu starfsemi Deloitte á Íslandi og með viðskiptavinum okkar að metnaðarfullum verkefnum sem skapa raunverulegt virði. Allt okkar starf snýst um að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu sem byggir á trausti, gæðum og árangri í þeirra þágu. Það munum við leggja áherslu á hér eftir sem hingað,“ segir Lovísa.