Birna María Sigurðardóttir var nýlega ráðin fjármálastjóri Styrkáss og mun hefja störf í byrjun júlí. Samhliða ráðningunni mun hún taka sæti í framkvæmdastjórn samstæðunnar en Birna María kemur til Styrkáss frá Deloitte þar sem hún starfaði í rúm 18 ár. Undanfarin ár hefur Birna María gegnt stöðu framkvæmdastjóra rekstrar og fjármála hjá Deloitte en hún hefur jafnframt verið meðeigandi frá 2017. Birna María hóf feril sinn á endurskoðunarsviði Deloitte og tók síðar við sem sviðsstjóri áhætturáðgjafar. Hún er með M.Acc.-gráðu í reikningshaldi og endurskoðun frá Háskóla Íslands, hlaut löggildingu sem endurskoðandi árið 2013 og lauk Advanced Management Program frá IESE-viðskiptaháskólanum í Barcelona árið 2023. „Ég hef stundum sagt, bæði í gríni og alvöru, að ég slysaðist eiginlega til að verða endurskoðandi. Ég eignaðist börn ung, sonur minn var eins árs þegar ég hóf B.S.-námið og svo eignaðist ég tvær dætur á meðan á náminu stóð. Þegar kom svo að því að velja meistaranám þá skráði ég mig í reikningshald og endurskoðun því það var eina námið sem var kennt seinni part dags og ég gat því verið heima með yngstu lengur.“ Nánar er fjallað um Birnu í Viðskiptablaði vikunnar . Áskrifendur geta nálgast umfjöllunina í heild sinni hér .